Melkorka - 01.10.1950, Síða 16
KONUR í FREt
Frú Sun Yat-sen
Ellen Key
Frú Sun Yat-sen er kfnversk, fæclcl 1890. Hún cr systir
frú Chiang Kai-shek. l'ær eru báðar uppfæddar í ein-
hverri rfkustu og áhrifamestu fjölskyldu Kína. Hafa
báðar haft mikil áhrif í stjórnmálum Kína. Frú Sun
Vat-sen er nú varaforsætisráðherra í alþýðustjórninni.
Hún hefur ætíð staðið í frelsisbaráttu þjóðar sinnar
ásamt manni sinum, sem var foringi hins byltingarsinn-
aða hluta kínversku þjóðarinnar. Hann dó 1925.
Ellen Key. Heimsfragur sænskur uppeldisfræðingur
og ritböfundur. hað var einkunt bók hennar „Old barns-
ins" sem gerði hana fræga. Skoðanir hennar á sviði upp-
eldis- og hjónbandsmála voru algerlega byltingasinnað-
ar, cnda cláði æska þeirra ttma lCllen Key og sá í henni
postula hins nýja tíma. Hún var mikill friðar- og ætt-
jarðarvinur og fyrsta opinbera fyrirlcsturinn um friðar-
mál hélt hún 1897. Skömmu eftir varð hún að flýja
land vegna rógburðar og ofsókna andstæðinga sinna. A
efri árum settist lnin aftur að í Svíþjóð og kepptist þá
öll þjóðin við að lieiðra hana á margvíslegan hátt.
Kenningar hennar höfðu þá farið sigurför um allan
hinn menntaða heim.
Hún er fædd II. desember 1849 og andaðist 25. apríl
1926.
Dolores lbarruri — er spönsk og gat sér ódauðicgan
orðstír í spönsku borgarastyrjöldinni á árunum 1936—
1939 fyrir hugrekki og hrífandi mælskulist. — l’assion-
aria — eldsálin var hún kölluð af alþýðu landsins.
Eftir að fasistarnir tóku völdin í heimalandi hennar
flýði hún til Frakklands og hefur dvalizt þar síðan, og
heldur ótrauð áfram að berjast í ræðum og riti móti
fasistastjórn Francos.
Hún er varaforseti Alþjóðabandalags lýðræðissinn-
aðra kvenna.
Éugenie Cotton er fa dd 1881 í Frakklandi og er pró-
fessor í eðlisfræði. 'l'ók doktorsgráðu í eðlisfræði 1925.
Arið 1934 sæmdi franska stjórnin hana riddaraorðu
frön’sku heiðursfylkingarinnar. Frú Cotton hefur staðið
í fremstu röð franskra vísindamanna. Árið 1941 varð
hún að draga sig í hlé vegna aldurs, en hélt áfram vís-
indastarfsemi sinni. Hún er gift Aime Cotton prófessor,
66
MELKORKA