Melkorka - 01.10.1950, Page 17

Melkorka - 01.10.1950, Page 17
ISBARATTU einum Crægasta vísindamanni Frakka. I’au eiga tvö börn á lííi, sem hafa lta-ði fetað í fótspor foreldra sinna og eru vísindamenn. Frant að síðutu styrjöld gaf Éugenie Cotton sig eingöngu að vísindastörfum. í stríðinu tóku Þjóðverjarnir ltæði ntann hennar og son fasta, og þá ákvað hún að vinna fyrir friðinn og frelsið. Henni var ljóst að vísindunum er aðeins að takmörkuðu leyti beitt í þágu mannkynsins, ef friðinum i heintinum er ógnað. Því gekk hún í samband franskra kvenna og er nú for- seti þess. Hún er forseti Alþjóðasambands lýðræðis- sinnaðra kvenna. Þá er hún og varaforseti Alþjóða- friðarhrcyfingarinnar. Höfuðverkefni frú Cotton sem stendur er friðarstarfið og ætlar að verða henni liættu- legra cn öll önnur verkefni, sem hún hefur tekið að sér á langri og viðbtirðaríkri ævi. Harriet Becher Stozue. Höfundúr bókarinnar „Kofi Tómasar frænda" — hókarinnar, setn er fjórða mest lesna bókin í heiminum, er fædd 1811 í Nýja Englandi. Árið 1832 fluttist hún með fjölskyldu sinni til Cin- cinnati — og þar kynntist hún vandantálum anterísku þjóðarinnar i sambandi við frelsisbaráttu negranna. Á þessum tíma komu andstæður ameríska þjóðfélagsins skýrt í ljós, andstæðurnar milli iðnaðar og peninga- Harriet Becher Stowc valds Norður-Ameríku og yfirstétta Suðurrikjanna, stór- jarða- og þrælaeiganda, milli yfirstéttar og hins vinn- andi fólks. Árið 1831 brauzt út víðtæk svertingjaupp- reisn í Virginíu og „Kofi Tómasar frænda“ byggist að miklu á þeint viðburðum. Bókin varð smámsaman þýdd á 20 tungumál. Um áhrif hennar má geta þess að í borgarastyrjöldinni 1861 —1865 gengu ungir menn. sem lesið höfðu bókina í þús- unda lali út í dauöann fyrir frclsi og málstað negranna. Harriet Becher Stowe var gift og 7 barna móðir áður en hún hóf rithöfundarferil sinn. Hún andaðist 1896. MELKORKA 67

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.