Skutull - 13.04.1945, Qupperneq 1
XXIII. ár. ísafirði, 13. apríl 1945. 15.—16. tbl.
Leiðrétting:
Seinasta blað álti að vera
nr. 13 og 14, en ekki 12 og
13. — Petta leiðréttist liér
með. Ritstj.
Prentstofan Isrún h. f.
Almennur borgarafnndur
um áfengismál
haldinn að tilhlutun Þingstúku
/
Isafjarðar 8. apríl.
t
Fundinn setti Grímur Kristgeirsson þingtemplar.
Ræðumenn voru: Baldur Johnsen héraðslæknir, Guð-
mundur Sveinsson skrifstofustjóri, Benedikt Benedikts-
son véistjóri, Bolungarvík, Grímur Kristgeirsson, Arn-
grímur Fr. Bjarnason kaupmaður, Sigurður Guðmunds-
son, Hannibal Valdimarsson, Jónas Tómasson, Haraldur
Guðmundsson skipstjóri og Vilhelm Jónsson.
Fundarstjóri var Elías J. Pálsson, en fundarritari
Eyjólfur Jónsson.
Vegleg minningar-
gjöf.
Hinn 17. febrúar síðastliðinn
voru tvö ár liðin frá þeim
hörmulega atburði, er vélskip-
ið Þormóður frá Bildudal fórst
með fjölda manns.
Til minningar um liið látna
fólk afhenti Kvennadeild
Slysavarnafélags Islands á
Bíldudal sóknarprestinum, sr.
Jóhi Kr. Isfeld, sjóð að upp-
liæð kr. 3000, er vera skal
minningargjafasjóður um þá,
er i þessu ægilega slysi fórust.
Tekur sjóðurinn framvegis
móti gjöfum frá öllum þeim,
er heiðra vilja minningu þessa
fólks.
Aðalmarkmið sjóðsins er að
stuðla að því, að reist uerði
skólahús á Bíldudal, þar sem
starfræktur verði ungmenna-
skóli, er taki við af barnaskól-
anum.
Þennan sama dag gáfu að-
standendur þeirra, er fórust
með v. s. Þormóði, Bíldudals-
söfnuði vandaða bók ásamt
skríni til þess að geyma hana
í. — Bók þessi á að varðveitast
í Bíldudalskirkju.
Er. á titilblaði bókarinnar
skrautritaður þessi formáli.
„Bók þessa hafa gera látið
aðstandendur þeirra, er fórust
frá Bíldudal með vélskipinu
Þormóði, hinn 17. febrúar 1943.
Hún á að geyma svipmót og
æfiatriði þeirra, er svo svip-
lega voru burtu kallaðir.
Einnig er bókinni ætlað,
meðan rúm leyfir, að taka við
myndum og minningum um
aðra, er deyja úr byggðarlag-
inu, og verða þannig byrjun
að merkilegum minningararfi
óborinna kynslóða“.
Með þessu hafa Bílddæl-
ingar á fagran hátt sameinað
harmisleginn hug sinn í þjón-
ustu lífs og gróanda í minn-
ingu hins dapurlegasta atburð-
ar, er yfir byggðarlag þeirra
hefir. dunið.
Þannig snúast ágætir menn
jafnan við eyðingu og dauða.
— Þannig gera menn lífið
LlF, sem vert.sé að lifa.
0
Þessar samþykktir voru gerðar á
fundinum:
1. Almennur borgarafundur hald-
inn að tilhlutun Þingstúku Isafjarð-
ar skorar á templara og aðra, sem
l)indindi unna, að liefja nú þegar
undirbúning að því, að löggjöf verði
sett, sem banni sölu, tilbúning og
neyzlu áfengra drykkja í hvaða
mynd sem þeir eru.
2. Fundurinn skorar á öll félög
í bænum að sameinast í virkri sókn
gegn áfengisflóðinu með funda-
liöldum, áskorunum og öðrum
leyfilegum meðölum.
Væntir fundurinn einkum öflugs
stuðnings íþróttafélaga, kennara,
skáta, kvenfélaga og stéttarfélaga.
3. Almennur borgarafundur hald-
inn á Isafirði 8. apríl 1945 að til-
hlutun Þingstúku ísafjarðar, skorar
ú ríkisstjórnina að láta fara fram
atkvæðagreiöslu samkvæmt lögum
um héraðabönn um afnám áfengis-
útsölunnar liér á ísafirði.
4. Fundurinn skorar á fræðslu-
málastjórn rikisins að auka bind-
indisfræðsiu í skólum, setja reglur
um framkvæmd hennar og ganga
ríkt eftir því, að þeim regluin sé
fyigt.
Flutningsmenn þessara tillagna
allra voru: Grímur Kristgeirsson,
Arngrímur F'r. Bjarnason, Halldór
Jónmundsson, Sigurður Guðmunds-
son og Helgi Guðmundsson.
Allar tillögurnar voru samþykkt-
ar nálega einróma og ineð almennri
þátttöku fundarmanna í atkvæða-
greiðslunum.
Er á fundinn leið, báru þeir Jón-
as Tómasson og Ágúst Vigfússon
fram svohljóðandi tillögu:
„Fundurinn samþykkir að lcjósa
7 manna nefnd, til þess að fylgja
eftir ályktunum fundarins með sér-
stökum rökstuðningi og öðrum ráð-
um, sem líklegust væru til áhrifa".
Var tillagn samþykkt og í nefnd-
Ina kosnir:
■ Grímur Kristgeirsson, Arngfímur
Fr. Bjarnason, Jóhann Gunnar Ól-
afsson, Hannibal Valdimarsson,
Baldur Johnsen, Sigurður Guð-
Munum þessi spaklegu
orð séra Guðmundar
Guðmundssonar frá
Gufudal:
„Gegndrepa af brenni-
vlni heldur enginn trú-
an vörð um auðnu Is-
lands“.
mundsson og Guðin. Sveinsson.
Fundur þessi sýndi mikinn og
almehnan álniga á að útrýma á-
fengisplágunni í bænum, og verður
að vænla þess, að ríkisstjórnin
verði við almennum vilja bæjarbúa
í áfengismálunum. Er þar fyrsti
áfanginn sá, að losna við áfengis-
verzlunina hér, en af henni fellur
ömurlegur skuggi inn á hundruð
heimila um alla Vestfirði.
Til eru lög, sem lieimila einstök-
um héruðum að skera úr því með
almennri atkvæðagreiðslu, hvort
þar skuli véfti liöfð áfengisútsala
eða ekki. — Er ekki nokkur vafi
á því, að hér er meginþorri bæjar-
búa fylgjandi því, að útbú áfengis-
verzlunar ríkisins hverfi úr tölu
verzlananna í bænum. — Því liljót-
um vér að krefjast þess, að ríkis-
stjórnin heimili að slík atkvæða-
greiðsla fari fram á grundvelli lag-
anna um héraðabönn. — Vér tök-
um ekki alvarlega þá mótbáru, að
þetta sé ekki hægt vegna spánar-
samningsins. Það vita allir, að nú
er engin saltfiskssala til Spánar og
heldur ekki útlit fyrir að hún verði
nokkur á næstu árum. Og eins og
á var bent á fundinum á að vera
hægt að fá dauðum bókstaf af létt,
ef samband er við Spán. En sé það
hinsvegar ekkert, þá verður ekki
séð annað en sainningsnefna þessi
sé af sjálfu sér niður fallin. — Frá
héraðabönnum á einstökum stöð-
um viljum vér svo stefna að alls-
herjar innflutningsbánni á áfengi,
Smátt og stórt
Níunda apríl árið 1940 barst sú
harmafregn til Islands, að Þjóð-
verjar hefðu tekið Danmörku her-
skildi og síðan brotizt inn í Noreg
með óvígan her. Þessara sorglegu
atburða var minnzt í Reykjavík á
ýmsan liátt á mánudaginn var, en
þá voru liðin rétt 5 ár, síðan þeir
dundu eins og reiðarslag yfir
frændþjóðir vorar.
Allan þennan tíma hafa Danir og
Norðmenn barizt hetjulegri bar-
áttu við hin ægilegustu kúgunar-
og grimmdaröfl, sem sögur fara af.
Er það nú von allra Islendinga, að
nóttinni sé að verða lokið og dags-
brún að renna.
Jón Sveinsson, (Nonni),' hinn
víðfrægi rithöfundur, sem allir ls-
lendjpgar kannast við, er látinn
fyrir sköinmu suður i Þýzkalandi í
hárri elli.
Flugmálanefnd Bandarikjanna
hefir mælt með tveimur amerísk-
um flugfélögum, til þess a* annast
áætlunarferðir af liendi Banda-
ríkjanna við Evrópu. Þetta eru
stórfélögin Pan american Airways
og American Export Airlines.
Á hið síðarnefnda að annast flug-
ið á norðurleiðinni um New-York,
Newfoundland, Grænland, Island,
Oslo, Stokkhólm, Helsingfors, Len-
ingrad, Moskva, Teheran og til
Basra.
Skipastóll Islendinga va«' í árs-
lok 1944 sem hér segir: Tuttugu og
níu botnvörpungar, 593 mótorbátar
(meðaltalsstærð 30 smálestir), 7
farþegaskip (meðaltalsstærð 1000
smálestir), 7 flutningaskip (600
smálestir livert að meðaltali), tvö
varðskip, og eitt dráttarskip.
Ungur Islendingur í Englandi
liefir verið ákærður fyrir að myrða
enska stúlku. Mál lians átti að
koina fyrir enskan dómstól 4. þessa
mánaðar, en af því hafa engar nán-
ari fregnir borizt ennþá.
Rússar hafa sagt upp vináttu- og
hlutleysissamningi sínum við
Tyrki. Er talið, að sú breyting
vaki fyrir Rússum, að þeir fái opna
leið um Dardanellasund.
Il.f. Loflleióir. Afgreiðslumaður
Loftleiða, Þorleifur Guðmundsspn,
liefir sent lilaðinu eftirfarandi upp-
lýsingar: Flugvélar h.f. Loftleiða
fluttu í marzmánuði samtals 361
farþega, og allmikið af pósti. Flog-
ið var til Isafjarðar, Flateyrar,
Þingeyrar, Bíldudals, Patreksfjarð-
ar, Ingólfsfjarðar, Djúpuvíkur,
Hólmavíkur og til ýmsra staða við
Breiðafjörð. Ennfremur sjúkraflug
austur að Lóni í Kelduhverfi í
Norðúr-Þingeyjarsýslu. Til Siglu-
fjarðar vorú farnar nokkrar ferðir.
Milli Isafjarðar og Reykjavíkur
voru fluttir 146 farþegar.
Þegar þess er gætt, að aðeins
tvær ferðir voru farnar frá 1. marz
til 14. marz, sökum óhagstæðs veð-
urs, má telja árangurinn af fluginu
í mánuðinum góðan, þegar einnig
er liöfð í liuga sú fádæma ótíð, sem
verið hefir.