Skutull - 13.04.1945, Síða 6
60
S K U T U L L
Verzlunargróði og þjóðartekjur.
Fljótaárvirkjun Siglfirðinga
er tekin í notkun.
i.
1 síðustu heimsstyrjöld, 1914—18,
sat hér að völdum íhaldssöm em-
hœttismannastjórn, enda voru þá
samtök verkamanna og bænda lítið
í'arin að láta til sín taka, og þessar
stéttir höfðu engin skipulögð stjórn-
málasamtök, fyrr en seint á stríðs-
árunum. — Má því heita, að þá
væri áhrifa þeirra ekki farið að
gæta að neinu ráði. Samt sem áður
var á þessum árum tekin upp lands-
verzlun, til þess að tryggja lands-
mönnum nauðsynjavörur og koma
í veg fyrir óhæfilegt okur kaup-
manna og heildsala með þessar vör-
ur í skjóli þess, hve takmarkaður
innflutningurinn varð að vera.
1 þessari heimsstyrjöld getur
varla heitið, að minnzt hafi verið
á landsverzlun, þegar frá eru tald-
ar samþykktir flokksþinga Alþýðu-
flokksins og nokkrar greinar í
Skutli. Og engar tillögur hafa kom-
ið fram á Alþingi, um að taka upp
slíkt skipulag. Aðalskýringarinnar
á þessu mun að leita í því, að síð-
an vorið 1939, hefir flokkur heild-
salanna, Sjálfstæðisflokkurinn jafn-
an átt sterk ítök í stjórn landsins
og aðalstefna stjórnarfarsins hefir
allt tímabilið byggzt á því, að hægt
væri að ná samkomulagi við liann,
eða áhrifamenn innan hans.
Petta, ásamt því, að stórútgerðar-
mönnum landsins hefir af sömu
ástæðu haldizt uppi að raka saman
stríðsgróða, sem nemur tugum
miljóna króna, er ein aðalástæðan
til þess ófremdarástands, sem ríkj-
andi hefir verið í fjármálum og
verðlagsmálum þjóðarinnar, og hún
á eftir að súpa alvarlega seiðið af,
ef ekki verður röggsamlega kippt í
taumana á siðustu stundu.
(
II.
Hvílíka geysi-þýðingu verzlunin
hefir fyrir þjóðarbúskap okkar, má
m. a. marka af því, að innflutning-
ur til landsins nam árið 1943 um
250 milj. króna en útflutningur um
230 milj. króna, en ætla má, að
heildartekjur þjóðarinnar hafi þetta
ár numið ekki minna en 600 milj.
króna.
Það er því hreint ekki lítili
hluti þjóðarteknanna, sem gengur
um greipar íslenzkra heildsala.
Þeir, sem kunnugir eru vinnu-
brögðum heildsálastéttarinnar, vita,
að með fáum heiðarlegum undan-
tekningum, hafa heildsalarnir not-
að aðstöðu sína í stríðinu, til þess
að skammtæsér af þjóðartekjunum
eins og þeim hefur þóknazt sjálfum,
án þess að skeyta nokkuð þeim
reglum, sem ríkisvaldið hefur sctt,
til þess að takmarka gróða þeirra.
Verðlagsbrot heildsalanna, sem upp
hafa komizt um áramótin, gefa ör-
lítið hugboð um þessi vinnubrögð,
í stríðinu, þá er aðstaða hennar lil
ófriðarþjóðanna um leið orðin allt
önnur en hún hefir verið. Þá er
hætt við því, að vér getum ekki
lengur ráðið, hvaða herir fá hér
bækistöðvar. Þetta vita kommúnist-
ar. Þess vegna er stefna þeirra í
þessu máli hvorki byggð á föður-
landsást né íslenzkum hagsmunum.
Þetta veit almenningur í landinu".
ÓFEIGUR, blað Jónasar Jónsson-
ar frá Hriflu, er nýkominn út. Þar
er minnzt á þingskörung Norður-
Isfirðinga þessum orðum:
„Eftir að búnaðarþing kom sam-
an birti Mbl. óvenjulega rætna árás
á búnaðarþing og bændur. Sigurður
Bjarnason frá Vigur var höfundur.
Hann er þingmaður Sjálfstæðis-
bænda við Djúpið á daginn, en
fulltrúi kommúnista á nóttunni".
Svo er það ekki meira. En hvað
skyldi maðurinn meina?
en langmestur hluti þeirra er þess
eðlis, að engin tök eru á að hafa
hendur í hári hinna brotlegu.
Annar vottur um gróða heildsal-
anna hefur verið sýnilegur mörg-
um í taumlausri óhófseyðslu sumra
einstaklinga innan stéttarinnar,
bæði hér á landi og erlendis. Is-
lenzka þjóðin — fátækasta og
minnsta þjóð heimsins — hefur
leyft sér þann „luksus“ að skapa á
örfáum árum heilan hóp auðkýf-
inga, er tekið hafa upp lifnaðar-
hætti, sem áður liafa verið óþekkt-
ir á Islandi, nema í reyfarasögum
þeim og kvikmyndum, sem haft
hafa að viðfangsefni lýsingar á
sníkjudýrum auðvaldslandanna.
En afleiðingarnar af því skipu-
lagi verzlunarinnar, sem látið hef-
ur verið viðgangast öll stríðsárin,
eru engan veginn upptaldar með
verðlagsbrotum heildsalanna. 1
skjóli þessa skipulags er möguleiki
til stórfelldra skattsvika ekki að-
eins heildsalanna lieldur og ann-
ara milliliða. Og það þarf í engar
grafgötur með það að fara, að einn-
ig þeir hafa skammtað sér ríflegan
hluta af þjóðartekjunum.
III.
Islenzka þjóðin liefur undanfarið
verið að koma á allskonar skipu-
lagi, til þess að tryggja alþýðu
landsins viðunandi lífskjör. Vmis-
legt af þessu liefur verið til mikilla
bóta, þótt ekki eigi allar þessar
ráðstafanir óskilið mál. Verkamenn
og bændur hafá reynt að bæta kjör
sín eftir föngum með samtakamætti
sínum og áhrifum fulltrúa sinna á
Alþingi.
Margt af þessum ráðstöfunum
hefur kostað mikið fé, sem orðið
hefur að leggja á landsmenn að
greiða með auknum sköttum. Nú er
veriÍS að auka þessar skattaálögur
um tugi miljóna. Hin síðasta tekju-
öflun kemur mjög víða við, svo
næst liggur að halda, að búið sé
nærri því að þurrausa alla aðal-
tekjustofna ríkissjóðs.
Mönnum er sagt að þessir skattar
séu nauðsynlegir og engu sé að
kvíða, því jafnframt sé verið að
undirbúa nýsköpun framleiðslunn-
ar, sem eigi að tryggja öllum at-
vinnu eftir stríðið.
En allar kjarabætur, öll nýsköp-
un atvinnuveganna verður til lítils,
ef fáeinum mönnum er fenginn í
hendur mjög verulegur hluti af
þjóöartekjum landsmanna og þeim
gefiö iækifœri, að skammta sér af
honum eftir vild, og því sízt ef þaö
svo aö síðustu er lútið viögangast,
aö þessar sjálfskömmtuöu tekjur
fari fram hjá öllum skattskrám, en
síðan sé haldið áfram æ ofan í æ
að hækka álögurnar á þeim, sem
fram telja allar tekjur sínar.
Slíkt skipulag getur ekki staðizt.
Islenzka þjóðin hefir ekki efni á að
verja tugum eða jafnvel hundruð-
um miljóna króna af hinuin tak-
mörkuðu þjóðartekjum sínum, til
þess að lialda uppi óhófseyðslu og
auðsöfnun fáeinna menningarlítilla
stríðsgróðamanna.
Kári.
TIL SÖLU:
Aldekkaður trillubátur í góðu
standi, stærð tæp 3 tonn.
Þórður Ólafsson
frá Odda,
Sundstræti 29, ísafirði.
Siglfirðingar hafa til þessa aðeins
haft litia og dýra raforku fram-
leidda í 3—400 heslafla dieselstöð.-
Þeir hafa líka öðlazl þá reynslu, að
rekstursöryggi slíkrar stöðvar sé
ekkert sambærilegt við vatnsafls-
rafstöðvar.
Þessvegna réðust þeir í virkjun
Skeiðsfoss í Fljótum usmarið 1942.
Virkjuninni er að vísu ekki lokið
ennþá, en nokkru fyrir páska var
farið að reyna vélarnar, og þann
29. fyrra mánaðar (á skírdag) skeði
sá merkisatburður í sögu Siglufjarð-
arkaupstaðar, að hleypt var raf-
magni á bæjarkerfið í fyrsta sinn
frá hinni nýju rafstöð við Skeiðs-
foss.
Ein vélasamstæða af tveimur,
sem fyrirhugaðar eru, hefir nú ver-
ið sett niður og framleiðir hún
sem stendur 1500—1800 hestöfl, en
talið er að þessi samstæða muni
geta framleitt 2300—2400 hestöfl
eftir að stíflan hefir verið liækkuð
um 6 metra í viðbót. Stendur til,
Undir þessari fyrirsögn birtir
Alþýðublaðið í heild forsíðugrein
Skutuls frá 24. marz s.l. um stríðs-
yfirlýsingarmálið.
Löng athugasemd fylgir þó grein-
inni frá ritstjóra Alþýðublaðsins.
^Alþýðublaðið lýsir sig að mestu
sammála greininni, en kvartar und-
an því, að Skutull skuli ekki vekja
athygli á því, sem blöðin í höfuð-
borginni hafi skrifað um málið. Þá
telur Alþýðublaðið það rangt, að
nokkur styrjaldarþátttaka felist í
yfirlýsingu Alþingis í þessu máli,
og skilur ekkert í, að ritstjóri Skut-
uls skuli hafa rangfært samþykkt,
sem gerð hafi verið í svo við-
kvæmu máli, þv'í víst muni honum
vera orðalag hennar fullkunnugt.
— Segir blaðið að nú fari bráðum
að líða að því, að sdmþykkt Al-
þingis verði birt.
Alþýðublaðið lýsir sig hinsvegar
ákaft fylgjandi því, að Island fái
sæti á San-Francisco-ráðstefnunni,
þar sem — eins og blaðið orðar
það — eigi ekki að ræða nein
hernaðarmál yfirstandandi styrj-
aldar.
Að endingu flytur blaðið svo
boð um j)að frá Finni Jónssyni
dómsmálaráðherra út af ummælum
í Tímanum, að greinin í Skutli sé
skrifuð án nokkurs sambands við
liann, sem og hárrétt er.
Um þessa athugasemd skal það
eitt tekið fram. 1. Að Skutull telur
sig þess lítt um kominn ennþá,
hvað sem verður, að auglýsa efni
höfuðstaðarblaðanna og gefa því
vængi víðar en þau fara. Þessvegna
bað hann eitt dagblað höfuðborg-
arinnar að flytja greinina um
Stríðsmálið sínum mörgu þúsund-
um lesenda, sem Skutull nær ekki til
'2. Orðalag yfirlýsingar Alþingis
er ritstjóra Skutuls því miður ekki
kunnugt, en það er von hans, að
það fari ekki mjög fjarri hinu
rétta, að efni hennar sé í aðal-
átriðum það, sem Skutull hefir
birt — og liefir j)ó enginn ráð-
herra eða alþingismaður staðið í
sambandi við Skutul uni þetta mál.
Þarf enginn að undrast það, þótt
pukur þings og stjórnar með málið
leiði til þess, að ýmiskonar mis-
skilningur skjóti upp kolli, og er
þó ekki víst að svo sé í þessu til-
felli.
3. Alþýðublaðið vill sýnilega ekki
að það verði gert í sumar.
Verið er að athuga, hvaða stærð
sé hæfileg á síðari samstæðu, og
eru líkur til, að vatnsmagn þoli
allt að 3600 hestöflum í viðbót. —
Yrði þá orka stöðvarinnar, þegar
fullri virkjun er lokið allt að 6000
hestöflum.
Ekki er Skutli fullkunnugt um,
hve mikið mannvirki þetta muni
kosta, en ýmsir telja, að Skeiðs-
fossvirkjunin fullgerð rnuni kosta
ca. 14—16 miljónir króna.
Firmað Höjgaard & Schults hefir
, séð um v'erk þetta fyrir Siglufjarð-
arbæ, og var Kaj Langvad verk-
fræðingur aðalyfirmaður við fram-
kvæmd þess.
Það er fyllsta ástæða til að óska
Siglufjarðarbæ til hamingju með
orkuver sitt, því að engum dylst,
að það getur haft ómetanlega þýð-
ingu fyrir þetta bæjarfélag, sem
liefir nálega óþrjótandi iðnaðar-
möguleika, þótt ekki sé á annað
litið en síldariðnaðinn einan.
fallast á þá skoðun Skutuls, að yfir-
lýsing Alþingis fari langt til með
að jafngilda stríðsyfirlýsingu. Al-
þýðublaðið lælur sér það nægja, að
í yfirlýsingunni sé neitáð að segja
nokkurri þjóð stríð á hendur og
að Island sé ófáanlegt til að heyja
styrjöld.
En Skutull telur það nálega jafn-
gilda slíkum beinum stríðsyfirlýs-
ingum, ef vér tökum á oss skuld-
bindingu um afnot stórvelda af
landi voru á friðartímum í hern-
aðar þarfir. Vitna ég enn til yfir-
lýsingar sameinuðu þjóðanna, sem
allir þátttakendur í San Francisco-
ráðstefnunni verða að undirrita.
En þar segir:
Hver ríkisstjórn um sig skuld-
bindur sig til þess að leggja fram
öll efni sín, hernaðarleg- og fjár-
hagsleg... o. s. frv.
Þeim ætti þó að vera hún kunn-
ug, þessi yfirlýsing, þingmönnum
okkar, eða a. m. k. ætti liún að
finnast í stjórnarráðinu, ef vel
væri leitað.
Og fynndist engum þá fara að
þrengjast fyrir dyrum, ef Island
hefði undirritað slíka skuldbind-
ingu, jafnvel þólt vér hefðum engri
þjóð sagt stríð á hendur.
4. Um San Francisco-ráðstefnuna
segir ritstjóri Alþýðublaðsins að
þar eigi ekki að ræða nein hernað-
armál yfirstandandi styrjaldar. En
á ekki að ræða þar liernaðarskipu-
lag heimsins í framtíðinni? Og er
það ekki einmitt það, sem máli
skiptir? Eru þar nokkrar aðrar
þjóðir en beinir stríðsaðilar, og
getur þá litla Island átt þangað
nokkurt erindi. — Þjóðin hlýtur
að taka afstöðu til þessa máls, ef
hún annars telur sér nokkurntíma
heimilt að taka afstöðu.
O--------
BLAÐIÐ TIMINN
birti 6. þessa mánaðar ýmsa kafla
úr grein Skutuls úm „Stríðsmálið“
á fyrstu síðu undir stórum fyrir-
sögnum og táldi upplýsingar þær,
er í greininni fólust hinar merki-
legustu. Tíminn sagði meðal ann-
ars í fyrirsögn greinar sinnar:
Merkilegar upplýsingar i Skutli
um stríösyfirlýsingarmáliö:
Átti að leyna málinu fyrir
forsela og Alþingi, ef Tyrkinn
hefði getað þagað?
Stríðsyfirlýsingarmálið og ráð-
stefnan i San Francisco.