Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1996, Blaðsíða 2

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1996, Blaðsíða 2
K: ræru Siglfirðingar, innan sveitar og utan. Afmælishátíð félagsins ber hæst í félagslífinu hjá Siglfirðingum um þessar mundir. Af því tilefni er blaðið stærra en venjulega. Akveðið var að leita til siglfirskra fyrirtækja um auglýsingar og styrk til að kosta útgáfu blaðsins. Var því vel tekið og vil ég þakka það hér. Sérstak- lega vil ég þakka mikla og góða hjálp vina minna í afmælisnefndinni, þeim Steina Birgis og Óla Bald, meðal annars við öflun auglýsinga. Að venju var leitað til góðra siglfirskra penna um greinar í blaðið. Eins og sjá má tóku þeir vel við sér. Ætlunin var að helga blaðið að mestu Siglfirðingafélaginu í Reykjavík en auðvitað gekk á ýmsu að útvega efni um félagið hjá eldri félögum og stofnendum. Bað ég Ólaf Nilsson að fá Arnold Bjarnason í lið með sér og skrifa sögu félagsins, þar sem þeir tveir voru meðal stofnenda fyrir 35 árum. Þrátt fyrir góðar undirtektir varð ekki úr þeirri söguritun að sinni en ... batnani mönnum er best að lifa og saga félagsins hlýtur að birtast í næsta blaði. Það er því ekki allt framkvæmanlegt þó að viljinn sé fyrir hendi. Einnig var ætlunin að hafa viðtal við tvo fyrrverandi formenn félagsins, þá Ólaf Ragnars- son og Heiðar Ástvaldsson. Ekki reyndist unnt að ná í Ólaf en í blaðinu birtist bráðskemmtilegt viðtal við Heiðar. Hér eru stutt viðtöl við m.a. Ástu Einarsdóttur sem hafði yfirum- sjón til fjölda ára með hinum árlega Kaffidegi Siglfirðingafélagsins og Önnu Laufeyju Þórhallsdóttur sem hefur starfað ötullega í félaginu mörg undanfarin ár, sérstaklega við félagatalið en einnig ýmislegt annað. Vil ég minnast þess að þegar ég var formaður Síldarballs- nefndar um nokkurra ára skeið voru Anna Laufey og öll hennar fjöl- skylda ævinlega mér til aðstoðar við allan undirbúning fyrir böllin. Gunnar Trausti Guðbjörnsson og Gunnar Rafn Sigurbjörnsson taka ævinlega vel í að skrifa í blaðið og skiluðu þeir inn greinum. Formaður félagsins, Jón Sæmundur Sigurjónsson, skrifar einnig grein að vanda, að þessu sinni um verslanir á Siglufirði fyrr á tímum. Auðvitað nýtti ég mér pennann í fjölskyldunni, Huldu Steinsdóttur, sem horfir til baka og minnist Siglufjarðar eins og hann var. Þakka vil ég Ingu Lind Karlsdóttur en hún skrifaði við- tölin í blaðið, Steingrími Kristinssyni sem sendi mér innanbúðarmyndirnar í grein Jóns Sæmundar, Bjarna Þorgeirssyni á Siglufirði fyrir forsíðumyndina og Brynju Svavarsdóttur, athafnakonu á Siglufirði, þakka ég fyrir margs konar aðstoð. Er það von mín að þið hafið gaman af blaðinu og takið viljann fyrir verkið, en til þess að hægt sé að halda því gangandi vil ég hvetja ykkur til að senda mér greinar, sögur og/eða gamlar/nýjar myndir. Sjáumst á Afmœlisbátíðinni þann 19. október nk. Góða skemmtun! S. Jóna Hilmarsdóttir Arg. ‘51 Eg, Maggi, Mári, Matti og Ragna ætlum að mæta. Söfnum liði og mætum öll! Steini Birgis í byrjun mars var okkur þremenningunum falið það verkefni að undirbúa þessa afmælishátíð. Frá fyrsta degi vorum við mjög bjartsýn á góða þátttöku og erum það enn. Takmark okkar er að fylla Súlnasalinn af Siglfirð- ingum og öðrum Siglfirðingum. Undirbúningurinn hefur gengið vel og verið bráð- skemmtilegur. Höfum við setið u.þ.b. tíu fundi og skipulagt þessa hátíð eftir okkar bestu getu. Oll skemmtiatriði eru siglfirsk eða tengd Siglftrðingum. Vonandi hafið þið gaman af. Gleðilega hátíð! (Árni Þór) Jóna, Steini og Óli SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKjAVÍKOG NÁGRENNI FRETTABREF ÚTGEFANDI: SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍKOG NÁGRENNI. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR' S. JÓNA HILMARSDÓTTIR Frá afrruelisnefnd: 2

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.