Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt. 1996, Blaðsíða 14
Jón Sœmundur Sigurj
Þegar Siglfirðingafélagið
kemur að tímamótum 35 ára
sögu, þá hvarflar hugurinn
heim á þær slóðir og í það
umhverfi sem félagið er
sprottið úr. Ljóst er að margt
hefur breyst frá þeim tíma er
maður var sjálfur að vaxa úr
grasi á heimaslóð og er í því
sambandi af nógu að taka.
Það er t.d. skemmtilegt að
láta hugann reika um það
hvernig verslun var háttað á
Siglufirði um miðja öldina,
því það gefur áhugavert við-
mið við nútíðina og um leið
innsýn í það hvaða skónúmer
passaði fyrir Siglufjörð í þá
daga. Saga verslunar á Siglu-
firði verður væntanlega skrif-
uð seinna af sagnfræðilegri
nákvæmni og þekkingu þar
sem sagt verður frá faktorum,
Gránufélaginu og öðrum
merkilegum staðreyndum.
Ekkert af þessu er hér á ferð-
inni, heldur eru þetta einung-
is minningaslitrur sem flestir
Siglfirðingar ættu að kannast
við.
Stór bær Siglufjörður.
það er einkennandi fyrir
Siglufjörð í dag, eins og
reyndar fleiri smærri staði, að
öll verslun er í miðbænum.
það er reyndar einnig sagt
sem einkenni fyrir smæð
verslunarstaða, að þar sé eng-
in skóbúð. Eg man nú reynd-
ar ekki eftir neinni verslun á
Siglufirði, sem var bara skó-
búð, en vefnaðarvörudeild
kaupfélagsins hjá henni Jó-
ónsson:
Búðaráp
hönnu í Suðurgötu 2 í aðal-
húsi fyrirtækisins var tvískipt.
Onnur deildin var skóbúð.
Aðrar búðir, eins og Oddur
og Óli Thor í Útvegsbanka-
húsinu versluðu einnig með
skó ásamt öðru fatakyns.
Áður en ég man eftir mér var
skóbúð í húsi Andrésar Hafli-
þasonar við Aðalgötu. Séð frá
þessu sjónarhorni er auðvitað
augljóst að Siglufjörður var
enginn smábær.
Búðir hér og þar.
Dreifing verslunarinnar bar
þess líka merki. það voru ekki
bara búðir í miðbænum. þeg-
ar ég var sendur út eftir mjólk
fyrir 1950, þá skoppaði ég
oftast eftir Suðurgötunni suð-
ur í Bakkabúð, sem var í húsi
Kela Ben., föður Kiddjóns
vinar míns, en þar var fyrst í
stað danskur maður á fleti
fyrir, sem hét Kaj. Hann rak
Bakkabúðina einhvern tíma
þar til Siggi bakari í Félags-
bakaríinu yfirtók reksturinn
og Kaj flutti burtu. í Bakka-
búðinni fékkst mjólk og
brauð. Seinna opnaði Eggert
Theodórs nýja Bakkabúð í
húsi sem var flutt úr Lækjar-
götunni í Suðurgötu 40.
Kaupfélagið seldi líka mjólk
og brauð í Suðurgötu 4, en
brauðið fékk það úr eigin
bakaríi í Hvanneyrarbraut
42. í því húsi var líka mat-
vöruverslun og erum við þá
komin í hinn enda bæjarins. I
nokkurn tíma gerði Gestur
Fanndal tilraun með mat-
vöruverslun enn utar í bæn-
um, en sú verslun var staðsett
í húsi sem nú er íbúðarhús
skáhallt fyrir ofan sundhöll-
ina.
Bakarí og mjólkurbúðir.
Um tíma voru bakaríin
þrjú. Yngsta bakaríið, sem
Siglfirðingar kalla nú gamla
bakaríið, var kaupfélagsbak-
aríið, sem Steindór Hannes-
son stjórnaði og sem nú er
orðið íbúþarhús, þá kom Fé-
lagsbakaríið, sem nú er kallað
Billinn, sem Siggi bakari átti í
Lækjargötunni og svo
Hertervigsbakaríið, sem var
niðri í Vetrarbraut. Siglfirð-
ingar hafa að vísu lítið gefið
eftir í þessum efnum því nú
munu tvö bakarí vera á
staðnum, þótt hvorugt þeirra
sé staðsett á söguslóðum bak-
aría fyrri tíma.
Mjólkurbúðir voru kafli út
af fyrir sig. Mjólk var ekki
seld í matvörubúðum, heldur
í séstökum mjólkurbúðum
þar sem mjólkinni var dælt á
brúsa, sem hver og einn kom
með sér í búðina. Mjölnir var
hættur, þegar ég man eftir
mér, þannig að Drangur sá
um alla aðflutninga á mjólk
frá Akureyri og frá Sauþár-
króki, en F-7 dró mjólkina
frá Hóli, oftast með Hansen
við styrið. Rósa í mjólkur-
búðinni var fyrir mér ein
helsta virðuleikapersónan í
bænum. Hólsmjólkurbúð
hennar var í Túngötu 2. það
var heppileg staðsetning beint
á móti fiskbúðinni hans
Togga í Túngötu 1. þar fyrir
utan var helsta mjólkurbúðin
hjá KEA í Aðalgötu 9.
Fiskbúðir.
Fiskbúðin hans Togga að
Túngötu 1 var ekki eina fisk-
búðin á svæðinu, því ef geng-
ið var niður fyrir norska sjó-
mannaheimilið og upp með
því að sunnan, þá var maður
kominn í fiskbúðina hans
Petersens, sem var í kjallaran-
um í því húsi. Nú hefur um
árabil verið starfrækt fiskbúð
í þessum kjallara, fyrst Jósi og
Böddi og síðan Eysteinn,
Guggi og Salli, en þá er geng-
ið inn um vesturendann. þeg-
ar Toggi og Petersen voru
hættir tók Matti í fiskbúðinni
við, en hann var með sína
fiskbúð í gömlu bílastöðinni
beint á móti Bíócafé á horni
Aðalgötu og Lækjargötu. Að-
algötumegin íþví húsi rak
Kristmar Olafsson sjoppu og
hafði opna lúgu á kvöldin og
var því alltaf kallaður Krist-
mar í gatinu af krökkunum.
Nú er fyrir löngu búið að rífa
þetta einlyfta timburhús líkt
og hina bílastöðina, sem tók
síþan alveg við því hlutverki
nokkru sunnar og ofan við
Lækjargötuna.
Fjöldi matvörubúða.
Matvörubúðir voru all-
margar eins og hæfði stórum
bæ. Ekki fann ég fyrir versl-
un Gests Fanndal þótt ég
gengi niður Suðurgötuna í þá
Ur Siglufjarðarapóteki. Ljósm. Kristfinnur Guðjónsson.
14