Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 1997, Síða 5
Kristján Sturlaugsson var barna-
kennari, ættaður vestan úr Dölum,
sem átti með henni Dúu sinni fríðan
barnahóp. Sigurlaug er skólasystir
mín og Lóa er pólitíkusinn í geng-
inu og situr í bæjarstjórn. Stúlli
Miðaldamaður, bróðir þeirra, er
einn af helstu burðarásum Síldar-
ævintýrisins, músíkmaður fram í
fmgurgóma og er þó ekki allt upp
talið af mannvænlegum börnum
þeirra Kristjáns og Dúu.
Kristján í Brúatfossi Kjartansson
rak billjardstofú og veitingahús í
Brúarfossi ásamt Ólínu konu sinni.
Brúarfoss var stórt bláleitt hús, sem
stóð þar sem nú er Ráðhústorg bæj-
arins, skáhallt á móti kaupfélagshús-
inu. Kristján var áhugamaður um
stofnun sérstaks verkalýðsfélags
starfsmanna síldarverksmiðjanna, en
ekki varð af þeirri hugmynd. Þau
hjón áttu stóran barnahóp og var
Finnboga ein þeirra, bekkjarsystir
mín.
Kristján Sveinsson var verkamað-
ur í síldarverksmiðjunum og bjó
syðst á Lindargötunni ásamt Sigríði
konu sinni, systur Helga Dan hesta-
manns og hálfsystur Þórhalls Daní-
elssonar frá Hornafirði. Með þeim
bjó dóttir þeirra og sonur hennar
ungur, sem einnig hét Kristján eftir
afa sínum. Sagan segir að eitt sinn,
er afinn var að vakna eftir smáblund
í stofustólnum, hafi dóttursonur
hans danglað með hamri í höfuð
hans. Fræg eru orð frú Sigríðar, sem
vítti guttann með óviðjafnanlegri
elsku ömmunnar: Það var ekki fal-
legt af þér, Kristján minn, að rota
hann afa þinn!
Kristján Sigtryggs var listasmiður
sem var með verkstæði sitt á efstu
hæð í Suðurgötu 10. Kristján var
afar hæglátur og vandaður maður,
sem setti pípuna sjaldan frá sér og
rasaði ekki að neinu. Hann átti
mannvænleg börn og var Steini á
F-66 einn af sonum hans. Hann bjó
fjölskyldu sinni hús yst og efst í
bænum og stóð það lengi vel eitt og
sér. Það sem heillaði flesta stráka á
mínum aldri var þó bíllinn hans,
sem hann byggði sjálfur yfir á sér-
stakan hátt á verkstæði sínu, en til
þess reisti hann stillansa með bíla-
braut, sem lengi stóðu við suðurvegg
Suðurgötu 10 og náðu yfir á lóð
Guðmundar Einarssonar.
Einn af listasmiðum á því verk-
stæði var Kristján Tíkall. Kristján
Eiríksson var góðlegur karl með
þykkt yfirvararskegg og oftast með
kaskeiti. Hann var snillingur að
smíða rokka fyrr á tímum og var
lengi kenndur við þá smíði. Hann
bjó með stórri fjölskyldu sinni í litlu
húsi fýrir sunnan Alþýðuhúsið, en
Heiða dóttir hans var bekkjarsystir
mín.
Stjáni á Kambi var kominn af
stórri og gagnmerkri siglfirskri ætt.
Kristján Ásgrímsson var bryggjufor-
maður á söltunarstöðinni Dröfn. Af
honum er einnig kominn stór og
veglegur ættbálkur, en bróðir hans
Helgi og Kambsbræður synir hans
réru lengi á Hjalta SI-12, sem flestir
muna eftir. Stjáni á Kambi var lág-
vaxinn spengilegur karl, hvers
manns hugljúfi, hvort sem börn eða
fullorðnir áttu í hlut. Stöðin hans
var beint fyrir neðan heimili mitt,
þannig að hann þurfti oft að vara
okkur krakkana við bryggjunum og
gerði hann það á sinn meistaralega
hátt, þannig að hann fór ekki í stríð
við krakkana, heldur þótti okkur öll-
um vænt um hann á eftir og hlýdd-
um - oftast.
Kristján litli minn er ungur mað-
ur, sem fæstir þekkja undir því nafni
nema þeir sem kynntust móður hans
á yngri árum. Kristján Elíasson,
skipstjóri, er mesti dugnaðarforkur
bæði til sjós og í félagsmálum. Heiða
Jónu, sem er móðir hans, kom oft til
að spjalla við og aðstoða móður
mína í ýmsu og varð þá m.a. tíðrætt
um þennan ágæta son sinn og þekkti
ég hann þess vegna aldrei undir öðru
nafni. Hann er af Gosa-ætt og þess
vegna af kjarnakyni.
Það er hæfilegt að ljúka þessari
upptalningu á þeim Kristjánum,
sem mér koma í hug í sambandi við
bæinn okkar, á Kristjáni Jóhanns-
syni, frænda mínum, sem ber að
sjálfsögðu nafn langafa okkar úr
Lambanesi, en Kristján er sonur Lóu
Jóns og Jóa. Þessi Iistfengi frændi
minn, sem nú er kennari á Akureyri,
var öllum drengjum liðugri á sínum
tíma og gat enginn leikið eftir þær
kúnstir ýmsar sem hann hafði fyrir
okkur.
Það er Ijóst af þessari upptalningu,
að Siglufjörður hefur verið vel settur
af Kristjánum í gegn um tíðina. Þeir
hafa sett sinn svip á bæinn og Siglu-
fjörður hefur notið starfa þeirra og
hæfileika í ríkum mæli.
Jón Sœmundur Sigurjónsson
/
5