Vesturland - 22.01.1948, Blaðsíða 2
2
7C°,TURLAND
Sannleiksást barnakennarans
Rógurinn um Isafjörð fluttur út.
Jólasaga.
Það er ekki oft, sem grein-
ar úr Skutli eru endurprentað-
ar í Alþýðublaðinu. Er enginn
hissa á því, þvi blaðið er með
ómerkilegustu blöðum, sem
gefið er út á landinu. En fyrir
jólin tókst hinum nýja rit-
stjóra, Helga Hannessyni, að fá
endurjirentaða eina grein eftir
sig, og þá náttúrlega ekki af
verri endanum, að áliti hans
sjálfs. Að sjálfsögðu hefur
hann valið þá ritsmíð sína, sem
hann telur bezta og táknræn-
asta fyrir málflutning sinn og
ritsnilld. Grein, sem sé þess
verð að birtast þjóðinni allri.
Rangfærslur Skutuls.
Skal hér drepið á nokluir
atriði í grein þessari, sem sýna
sannleiksást ritstjórans, sem
aldrei stingur svo niður penna,
að hann hrópi ekki lýgi —
lýgi um málflutning annara.
Þar segir m. a.:
„Við afgreiðslu fjárhagsá-
ætlunar bæjarins (þ. e. 1946 og
1947) hefur fólki verið talin
trú um, að 200.000 króna
hæklcun útsvara væri til
greiðslu vegna kaupa togara og
byggingu fiskiðj uvers“.
Þetta er ekki rétl. CJtsvör
hækkuðu aðeins 1946 um kr.
200 þús. vegna framlags til tog-
ara. CJtsvör 1947 hækkuðu ekk-
ert vegna togara.
Hvorugt árið hafa þau liækk-
að vegna byggingar fyrirhug-
aðs fiskiðjuvers. Til þcss var
áætluð lántaka bæði árin kr.
100 þús, en lán ekki tekið. Þá
hefir aldrei verið áætlað fé ai'
útsvörum til sjómannaskóla,
heldur ráðgerð lántaka kr. 30
þús., en ekki tekið, þar eð laga-
grundvöllur til byggingu sjó-
mannaskóla á Vestfjörðum er
ekki fyrir hendi.
Þá er frá því skýrt í grein-
inni, að bæjarstjóri hafi starf-
að hjá E. Claessen, áður en
liann réðist hingað vestur.
Þetta er ekki rétt. Hann hefur
aldrei starfað hjá E. Claessen.
Hann starfaði hjá nefnd, sem
Sigurjón Á. Ölafsson alþingis-
maður var einn aðalmaður í.
Gaf Sigurjón hann lausan án
uppsagnarfrests, svo hann
gæti tekið við starfinu hér
vestra. Sýnir það vel mann-
kosti Sigurjóns.
En úr því, að Helgi Hannes-
son finnur lijá sér hvöt til að
tala, um menn, sem hafa cilt-
hvað starfað hjá E. Claessen,
]iá ætti hann ekki að gleyma
sjálfum sér.
Verkalýðsleiðtogi á mála
hjá Claessen.
Allir Isfirðingar þekkja
Helga Hannesson og fégræðgi
hans. Hann hefur komið sér
hér vel fyrir og neytt til þess
flestra bragða. Hann eignað-
ist bíl hér um árið — allir
þekkja þá sögu. Bill þessi hef-
ur gefið honum góðar tekjur,
livort sem þær hafa nú ávallt
verið taldar fram eða ekki. Á
síðastliðnu sumri stundaði
Iielgi bílkeyrslu og bílkennslu
hér í bænum. Sótti hann starf-
ið svo fast, að hann hafði
stundum ekki tima til að mæta
á bæjarstjórnarfundum vegna
þessa.
Bílkennsla er bæði ábata-
samur og skemmtilegur starfi.
Allt í einu bvarf Helgi frá
þessu öllu og flaug suður. Eitt-
hvað févænlegra var í boði. Jú,
Helgi Hannesson formaður
verkalýðsfélagsins Baldur var
ráðinn sérstakur sendimaður
Eggerts Claessens vegna vinnu-
deilna á Norðurlandi.
Hiun stóri og vamb-
mikli krati fór með miklum
bægslagangi af stað. Reyndi
hann að splundra samtökum
verkamanna m. a. með aðstoð
falsskeyti, sem sögð voru frá
Alþýðusambandi Islands. En
allt kom fyrir ekki. Það var
hljóðlátur maður, sem kom
suður aftur. Hann hlaut fyrir-
litningu állra góðra manna
fyrir tiltæki þetta. Norður-
landsreisu Helga Hannessonar
munu Isfirðingar aldrei
gleyma, og það veit hann bezt
sjálfur. Hann ætlaði ekki að
koma hingað vestur aítur, en
grimm örlög völdu honum þó
það hlutskipti enn um skeið.
Lubbamennska.
Þá er þess getið um Harald
Steinþórsson, fyrv. starfsmann
bæjarskrifstofunnar, að hann
hafi greitt sér kaup að fullu en
láðst hinsvegar að greiða út-
svar sitt. Þetta er ekki rétt.
Haraldur hafði að fullu lokið
greiðslu á útsvari sínu áður en
grein þessi birtist. Er hér um
einkennileg skrif að ræða, að
birta opinberlega ósannindi'
um útsvarsgreiðslur eins ein-
staklings,- þegar vitað er, að
fjöldi manna á af ýmsum á-
stæðum gjöld sín ógreidd.
Má t. d. nefna Iiagalín með
ógreiddan útsvarshluta frá
1946, Hannibal greiddi sitt út-
svar á eftir Haraldi. Ilvað
veldur svona málflutningi? Er
það ómótstæðileg livöt til að
fara með ósannindi og mann-
skemmandi dylgjur um náung-
ann ?
Fégræðgi Marzelíusar og
meirihlutans.
Loks er „fjárplógsmennsku“
íhalds og kommúnista gcrð
skil i greininni og þessi þokka-
lega starfsemi skrifuð á nafn
Marzelíusar Bernharðss., sem
allir Isfirðingar þekkja að
heiðarleik og dugnaði. Er því
haldið fram að honum hafi
verið falin mörg verk og stór
á vegum bæj arins, svo hann
gæti grætt sem mest til að
styðja blöð samstarfsflokk-
>a,nna. Síðan eru þessi mörgu
og stóru verk talin upp i eftir-
farandi röð:
Efnisútvegun til húsmæðra-
skóla. Smíði á lóðsbát. Bygg-
ing hafnarbakkans. Sala á tré-
texi lil viðgerða á Hlíðarhúsi.
Og loks tilboð Marzelíusar i
bíl Rafveitunnar.
Þetta, eru dæmin um hina
ægilegu f j árplógsmennsku
Marzeliusar og meirihluta bæj-
arstjórnar. Þetta skal nú at-
luigað dálitið nánar.
Hið sanna er:
Marzelíus hel'ur ekkert le
fengið greitt fyrir efnisútvegun
til húsmæðraskólans. Grímur
rakari þáði 27 þús. króna árs-
laun fyrir svipað starf.
Enginn samningur hefur
verið gerður við Marzelíus um
smíði lóðsbáts, svo ekki liefur
hann grætt á því verki.
Emil Jónsson samgöngu-
málaróðherra samdi við Marz-
elíus um þóknun fyrir bygg-
ingu Hafnarbakkans. Ef krat-
arnir á Isafirði eru óánægðir
með þann samning, skulu þeir
beina ásökunum sínum til
jiessa ráðherra síns og leggja
Iionum lífsreglur framvegis við
samningagerðir um hafnar-
framkvæmdir í landinu.
Engin trétexplata var sett
upp í Hlíðarhúsum 1946 og
trétex til þess því hvorki keypt
af Marzelíusi né öðrum.
Marzelíus keypti ekki raf-
veitubílinn og hefir því ekkert
á honum grætt eða mun græða.
Hvar er þá fjárplógs-
mennska og fégræðgi Marzelí-
usar og meirihlutans. Eru það
samningskjör Emils Jónssonar
um hafnarbakkann. Það er það
eina, scm kemur til greina.'
IJitl eru aðeins vindhögg. Níð-
skrif um hafnarbakkann eru
því löðrungur í andlit krata-
ráðherrans, Emils Jónssonar, en
ekki ádeila á meirihlutann í
bæj arstj órn Isafj arðar.
Málelnag j aldþrot.
Svona er þá sannleikurinn í
jólasögunni. Þetta er það
bezta og réttasta, sem IJclgi
Hannesson hefur að segja frá
Isafirði.
Hvernig stendur á því, að
menn með réttu ráði skrifa
svona. Halda þeir, að blaðales-
endur á Isafirði séu fábjánar.
Nei, Helgi Hannesson, svona
blaðamennska er algert mál-
efnagjaldþrot. Aílir sjá að
svona málflutningur er ekki
notaður nema af því, að ekki
er hægl að beita betri rökum
gegn núverandi meirihluta, og
því er gripið til þess örþrifa-
ráðs að veifa fremur röngu tré
en öngu.
Margur heldur mann af sér.
Það er sagður mannlegur
veikleiki að ætla öðrum ]>á á-
galla, sem maður sjálfur er oí'-
urseldur. Það er alkunna, að
lauslátar konur og drykkfelld-
ir menn dæma hart sömu á-
galla í'fari náungans.
Enginn maður talar eins
mikið um lygar annara og fé-
græðgi og Helgi Hannesson.
En eins og hér hefur vei'ið
sýnt fram á mun enginn mað-
ur í bæjarstjórn Isafjarðar
vera fégráðugri en Helgi
Hannesson og enginn ritstjóri
á íslandi óvandaðri í málflutn-
ingi og lygnari, en hinn nýi
ritstjóri Skutuls, „verkalýðs-
leiðtoginn“ og sendimaður E.
Claessens, Iielgi Hannesson.
Bííðubros og l'agurgali
barnakennarans fær ekki dul-
ið bið rétta innræti hans.
BIÓ ALÞYÐUHUSSINS
sýnir
Sunnudag ld. 9:
Broshýra stúlkan
(The Laughing Lady).
Ensk kvikmynd. Spenn-
andi skrautmynd frá dög-
um frönsku stjórnarbylting-
arinnar.
A ð a 1 h 1 u t v e r k :
Anna Ziegler
Webster Booth
Peter Graves
Sunnudag kl. 5:
Keppinautar
Skemmtileg mynd úr líí'i
sjómanna á Brctagncskaga
og Gornvallskaga, leikin af
frönskum og enskum leikur-
um.
Engin sýning á laugardag.