Vesturland

Árgangur

Vesturland - 24.12.1956, Síða 5

Vesturland - 24.12.1956, Síða 5
VESTURLAND 5 y CA lýsincjk lljá \jðui í jóðu iatji ? heppinn að eiga erindi í fyrrasum- ar. Konan mín var með mér og kom okkur saman um að taka bíl- inn með og aka suður til Genf. Vegirnir eru breiðir og góðir og malbikaðir, einnig uppi í fjöllun- um, en þar eru þeir sumstaðar sprengdir inn í kietta og við sáum þar aðvaranir „Varúð steinkast“. Ekki var þó að sjá grjótkast á veg- inum. Þama var sumstaðar mjög fallegt. Sérstaklega þótti okkur fallegt meðfram Genfarvatninu, en vegurinn liggur suður vestur- bakka vatnsins. Þar voru viða ljómandi fallegir veitingastaðir með útsýni út á vatnið. Við fórum inn á einn slíkan stað til að fá okkur mat. Við næsta borð sat ensk hefðarkona með tveim ung- um stúlkum, talaði frönsku við þjónana og pantaði alveg ákveðin, en þegar hún fékk sinn skammt, hafði eitthvað skolast, annaðhvort hjá henni eða þjóninum. Stúlkurn- ar veltust um af hlátri en þjónin- um stökk ekki bros frekar en vera bar, sagði bara: „Þér báðuð um þetta, frú mín“. Ungu stúlkunum og okkur gekk hinsvegar ágætlega og fengum bezta mat. Héldum við síðan áfram veginn til Genfar. Þegar við fórum að nálgast borg- ina, námum við staðar og ég tók upp nafnspjald hótelsins, þar sem búið var að panta herbergi fyrir okkur. Þá Víkur sér að bílnum maður, ávarpar okkur á ensku og spyr hvort okkur vanti eitthvað. Ég spurði hvort hann gæti sagt okkur hvaða leið við ættum að halda á þennan stað í bænum. Hann sagði að það væri hinumegin við ána og lýsti þeirri leið sem bezt væri að fara. Ókum við síðan áfram gegn um miðborgina og í áttina til þess hverfis borgarinnar, sem hótelið var í, og fundum það eftir nokkra leit. Hótelið var þá svo yfirfullt að eigandinn varð að koma okkur fyrir fyrstu tvo dag- ana í einkaíbúð kunningja síns, sem var í sumarfríi uppi í fjöll- unum. Þama var mjög fallegt við vatn- ið og á skógi vöxnum hæðunum *upp frá því. Við vatnið voru sund- staðir og skemmtisiglingar bæði á 'segl- og vélbátum á vatninu. Þar sáum við fólk æfa sig á skíðum Opnið augun og lítið á, hvemig ljósum í íbúð yðar er fyrir komið. — Þér getið ekki ímyndað yður, hve mikla birtu yður vantar. —o— Hér um bil ári eftir að Rogers- fjölskyldan fluttist búferlum, rak hvert óhappið annað á heimili þeirra. Súsanna, litla dóttirin þeirra hjóna, valt niður kjallara- stigann og handleggsbrotnaði. Frú á vatninu, brunandi á eftir vél- toátum. Það er sagður ekki mjög ’mikill vandi en við höfðum þó gaman af að sjá að sumum reynd- ist það fullerfitt. Veðráttan var ákjósanleg, hiti og sólskin á dag- inn, en svalara á nóttunni. Meðal þess sem við sáum þarna var höll Þjóðabandalagsins, sem stendur utantil við borgina, en þar var þá einmitt ráðstefna á vegum sameinuðu þjóðanna um friðsam- lega notkun kjarnorku og einnig hin mikla sýning, sem var í sam- toandi við ráðstefnuna, í mikilli sýningarhöll inni í borginni. Ég hafði því miður ekki tíma til að vera lengi á sýningunni en skoðaði aðallega líkan af geisla- lækningartæki, þar sem geisla- magnað efni er látið svífa kring um sjúklinginn svo sem mest 'geislaverkan verði á sjálft mein- ið án þess að brenna húð sjúkl- ingsins. Auðvitað sáum við þarna líka úranium málmgrýti ýmis kon- ar og allskyns mælitæki, sem voru svo nákvæm að þau gáfu merki ef úr með sjálflýsandi stöfum nálg- aðist tækið. Þarna var líka alls- konar töfrasmíði, sjálfvirkar vélar O. s. frv., sem of langt yrði að telja. Dagarnir liðu þarna fyrr en varði og þegar erindi mínu var lokið flýttum við okkur í burtu til að eyða þeim dögum sem við átt- um eftir, þangað til skipið, sem við ætluðum með færi heim, ein- 'hversstaðar þar sem ódýrara væri en í Sviss. Kjartan J. Jóhannsson. Rogers var að hella heitu soði af kartöflum í „vaskinn" og brenndi sig svo mikið á hendinni, að hún varð að fara í sjúkrahús og láta gera þar að brunasárum sínum. Jón litli kom einn daginn heim úr skólanum með mjög laklegar einkunnir, og fylgdi þeim sú áminning, að hann þyrfti að end- urtaka námið. Móðir hans varð steinhissa. Drengurinn hafði alltaf fram að þessu verið ágætur nem- andi. Herra Rogers skildi ekkert í því, að allt þetta skyldi dynja yfir svona hvað af öðru. Og nú tók hann sjálfur að þjást af slæmum höfuðverk. Að lokum datt honum í hug, að höfuðveikin stafaði frá augunum, og einn dag skrapp hann inn til augnlæknis. „Ég er hræddur um, að ég þurfi að fá sterkari gleraugu," sagði hann. Doktor Morris rannsakaði augu hans nákvæmlega og kvað síðan upp þann úrskurð, að það væri ekert að athuga, hvorki við augu hans né gleraugu. „En, læknir, hvernig stendur þá á því, að ég þreytist svo mjög í augunum?" „Sjáum til. Þér lesið mikið. Augu allra þreytast, ef þau eru ofreynd,“ sagði dr. Morris. „Þér munuð þurfa betra ljós,“ bætti hann við, ,,en gleraugu yðar eru ágæt, og augu yðar eru alveg heil- brigð.“ Rogers sagði, að verið gæti, að ljósið væri helzt til dauft. En þeg- ar hann átti að lýsa því nánar, varð frásögn hans óljós. „Þér gerðuð yður það ómak, að láta skoða augu yðar,“ sagði dr. Morris. „Hvers vegna ekki að gera yður það ómak að skoða ljósaút- búnaðinn?" Þetta ráð virtist skynsamlegt, og Rogers lét sér það að kenningu verða. Hann útvegaði sér bækur úr bókasafninu og viðaði að sér bækl- ingum um fyrirkomulag ljósa. Hann undraðist margt það, sem þarna kom upp úr kafinu. Han lærði, að allríflegur hluti af orku líkamans fer til sjónarinnar. Ef lesið er stöðugt í 8 klukku- stundir, fer til þess orka, sem nægja mundi til að ganga 33 míl- ur!! Þegar ljósið er dauft, vinna aug- un meira erfiði. Nú fór Rogers að gruna, að óhöppin á heimilinu kynnu að stafa af slæmri lýsingu. Það var örðugt að trúa þessu. Han var heldur ekki viss, en ekki var hann óhræddur um, að ljósa- kerfinu í íbúð hans væri eitthvað átoóta vant. Hann komst að þeirri niður- stöðu, að gera mætti umbætur á lýsingunni með mjög litlum kostn- aði. Sumar lagfæringarnar kost- uðu ekkert nema dálitla vinnu. Hann uppgötvaði, að vandinn við alla húsalýsingu er fólginn í þess- ari höfuðreglu: Sjáðu fyrir nægilegu ljósmagni, sem dreifist þaimig, að hvergi verði ofbirta né dimmir skuggar. Nægilegt Ijós var það, sem Rogers vantaði. Enginn þarf að óttast, að birtan verði um of, því að engar ljósaperur né ljósahylki gefa of mikið ljós. Mannsaugað þroskast úti, þar sem hádegissól- in lýsir á við meira en 10.000 leik- sviðsljós. Óvenjusterkur stofu- lampi framleiðir hér um bil 50 kerta ljós. „Á venjulegu heimili nú á dög- um“, segir E. W. Commery, „framleiða vinnuljós manna ekki nema lítinn hluta þess birtumagns, sem heilbrigð augu krefjast, ef vinna skal eitthvað, sem ljósvant er.“ Það, sem mönnum virðist vera ofmikil birta, er ofmikill glampi eða of skörp skil ljóss og skugga, og þessi misskilningur leiðir til margra galla á lýsingu húsa. Húsbóndinn notar 30 vött við verk, sem krefst 100 vatta, af þeirri ástæðu, að stærri pera væri „of björt“, en hún er ekki of björt í raun og veru, heldur of lítið hjúpuð eða klaufalega staðsett. Augun stritast við að sjá, þegar birtan er ekki nóg. Þau stritast við að sigrast á glömpum og aftur- kasti. Ef maður lítur beint til sólarinn- ar, þá er ljósmagnið óþolandi. Nak- in ljósapera veldur augunum sömu þrautum, aðeins í smærri stíl, og sama gerir mynd hennar, sem end- urkastast frá gljáandi fleti. Hér kemur einföld tilraun: Haltu spegli ,ofan á tímaritinu, sem liggur á hnjám þínum. Ef þú sérð spegil- mynd ljósaperunnar, verður annað hvort þú eða lampinn að færast úr stað. Þriðja aðal orsök augnþreytu, auk ófullnæjandi birtu, er of skörp skil ljóss og skugga. Ef þú ert að sauma eða lesa á björtum bletti í herbergi, en annars staðar er dimmt, dregst ljósop augnanna saman í birtunni, en þenst út, þegar horft er í myrkrið. Jafnvel þótt þú reynir að halda þig fast við bjarta blettinn, og ekki skeyta um dimmuna í kring, þá getur þú það ekki. Augun eru stöðugt að breyta sér, ýmist eftir birtunni eða skugganum, það þreytir þau mjög. Ráðið við þessu er að jafna birt- una í herberginu með meira ljósi og hentugra. Framhald á bls. 17

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.