Vesturland

Árgangur

Vesturland - 24.12.1956, Blaðsíða 16

Vesturland - 24.12.1956, Blaðsíða 16
16 VESTURLAND Tveir litlir snáðar ræðast við: — Pabbi minn getur rakað sig án þess að taka vindilinn út úr munninum. — Það er ekki mikið! Pabbi minn getur klippt nöglina á stóru tánni, án þess að fara úr sokkun- um. -----0O0----- Mamma Maríu litlu, fimm ára, hafði kvefast og fékk sér Wiský- lögg um kvöldið, sem meðal við kvefinu. En svo þegar hún kyssti Maríu litlu á eftir, þá hrópaði sú litla. „Mamma! Þú hefur drukkið ilmvatnið hans pabba.“ -----0O0----- Þessi mynd er frá Hnífsdal og var tekin á s.l. sumri. Stóra húsið framarlega á myndinni er nýi barnaskólinn og kapellan. Á síðustu árum hafa nokkur ný íbúðarhús risið þar af grunni. Hnífsdalur er blómlegt framleiðslukauptún. (Ljósmynd: Jón Páll). Óboðnir gestir Kvæðabók eftir Pétur Sigurðsson Eiginkonan: Þú hefir ekki kysst mig í heila viku, Sveinn. Sveinn prófessor: Já, en góða, hvern hefi ég þá verið að kyssa ? -----0O0---- Veiztu hver verður afleiðingin af svona einkunnarbók? Dugleg flenging. Já, komdu pabbi, kennarinn býr hérna rétt hjá. Heimur versnandi fer. Karl nokkur, sem þótti málrófs- maður mikill, gerði oft og tíðum samangurð á nútíðinni og hinum „góðu, gömlu dögum“. Þótti hon- um þar ólíku saman að jafna og virtist stórkostleg afturför hafa átt sér stað á öllum sviðum. Eitt sinn, er rætt var um mat- vendni, segir karl: „Fyrr má nú vera bölvuð ekki sen matvendnin í unga fólkinu. Nú fussa menn og sveia við allra bezta mat, en áður fyrr, á mínum ung- dómsárum, drapst fólkið úr hor og hungri — og þótti gott.“ ★ Þessi litla, fallega ljóðabók eftir Pétur Sigurðsson, mun verða hinn mesti aufúsugestur á íslenzkum heim- ilum. ★ Pétur Sigurðsson er maður lands- kunnur, enda áhugasamur um marga hluti. í kvæðabókinni eru bæði andleg ljóð og ýmis tækifærisljóð. ★ Bókin er 156 bls., bundin í fallegt skinn og kostar kr. 75,00. Tryoglng er nauðsyn Allar tryggingar fáið þér hjá oss með beztu fáanlegum kjörum. ISAFOLDARPRENTSMIÐJA H.F. Umbo&smenn vorir á Veslurlandi: Ásberg Sigurðsson, forstsjóri, Isafirði. Einar Guðfinnsson, útgerðarmaður, Bolungavík. Sæmundur ólafsson, kaupmaður, Bikludal. ísfell h.f., Flateyri. Fjórðungssamband Sjálfstæðis- manna á Vestfjörðum óskar öllu sjálfstæðisfólki á Vestfjörðum gleðilegra jóia, heilla og farsældar á komandi ári. ALMENNAR TRYGGINGAR H.F. Austurstræti 10 - Reykjavík

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.