Vesturland

Árgangur

Vesturland - 24.12.1956, Blaðsíða 11

Vesturland - 24.12.1956, Blaðsíða 11
VESTURLAND 11 * Þegar jólin gleymdust. Óvenjuleg Um allmörg ár hafði litið út fyr- ir að þetta myndi koma fyrir. — Svo var það árið 1984, að öll þjóð- in gleymdi að halda jólin hátíðleg. Nú, þegar ég minnist þessa, sé ég, að það var ekkert óeðlilegt við þetta, og eigi ber að saka neinn sérstakan um, að svona skyldi fara. Milli 1960 og 1970 var þegar far- ið að fyrnast yfir jólin í hugum fólks. — Þið munið sjálfsagt þá tíma, eða hafið a. m. k. lesið um þá. — Þegar heimurinn var í upp- lausn, og ringulreið ríkti. Þá var beinlínis ómögulegt að kaupa nokkuð til þess að halda upp á jól- in. — Allir voru önnum kafnir við að treysta varnir landsins, og höfðu annað að sýsla en búa til leikföng eða þess konar óþarfa. — Ríkisstjómin hafði þar að auki komizt að þeim sannind- um, að efnahagslífinu stafaði hætta af jólunum og því umstangi, er þeim fylgdi. Ekki minna en einn fjórði hluti af árlegri veltu heild- sölu- og smásöluverzlana var i beinu sambandi við jólin og aðeins landbúnaðurinn og þungaiðnaður- inn voru þar stærri þættir í efna- hagslífinu. — Þess vegna kom stjórnin á fót, um 1980, sérstakri stjórnardeild, sem að vísu hafði ekki beinlínis það hlutverk að af- nema jólahald meðal þjóðarinnar, en átti þó að stemma þarna stigu við, svo að jólahátíðahöldin veiktu ekki efnahags- og vamarkerfi landsins. Þess vegna voru allir hvattir til þess að gefa eingöngu jólagafir úr plasti eða pappír. — En svo varð skortur á plasti líka, og þá urðu allir að láta sér nægja gjafir úr pappír. Eftir því sem tímar liðu þótti kjánalegt að vera að tala um það, að nú væm svo og svo margir dag- ar til jóla. Það var líka afar heimskulegt, þegar þess er gætt, að hið eina, sem hægt var að fá til jólagjafa var lítilsháttar vasa- bók eða eldspýtnastokkur. Þess vegna hættu blöðin líka að skrifa um jólin og jólaundirbúning, og það birtust engar jólasögur í vikublöðunum, engar teikningar með greni, jólasveinum og þess háttar, og meira að segja þulirnir í útvarpinu hættu að tala um jól- in, því að þeir vissu, að hlustend- umir yrðu þá svo þunglyndir, þeg- ar þeir yrðu minntir á gamla daga. Smám saman varð þannig álitið beinlínis ósiðlegt að minnast á jól- in. Árið 1984 náði þetta hámarki. — Dagblöð frá þeim tíma sýna, að það ár var aldrei minnst einu orði á þessa hátíð. Þjóðin átti í mikl- um erfiðleikum, og jafnvel það að gleðjast fáeina daga mundi vera talið óþjóðlegt. Það var kominn 20. desember, svo kom 21. og eng- inn minntist einu orði á jólin. Ekk- ert minnti á þau, enginn búðar- gluggi var skreyttur. Svo leit fólk á dagatalið og gat sannfærzt um að kominn væri 23. desember. — Það leit í búðargluggana. Þar var ekkert að sjá nema vinnufatnað og hina svonefndu saum-blýanta, en þá notaði kvenfólkið til þess að teikna strik á fótleggina með, svo að það liti út, sem það gengi í for- láta nylon-sokkum. Samt sem áður hlýtur að hafa verið fólk, sem óafvitandi þráði jól bernskunnar. Það sýnir sá at- burður, sem átti sér stað í bænum okkar, 24. desember 1984. Sagna- ritarar hafa skrifað mikið um það, sem gerðist þá, en þar sem ég var sjálfur sjónarvottur að því sem gerðist, og fjölskylda mín var beinlínis þátttakandi í atburðinum, tel ég það skyldu mína að skýra frá málsatvikum. — Þið skiljið, lesendur góðir. Söguhetjan var faðir minn. Ég get vel viðurkennt það nú, en þá skammaðist ég mín lengi fyrir það. Pabbi hafði verið nokkur ár á sjúkrahúsi fyrir geðsjúka. — Við heimsóttum hann í hverri viku. — í rauninni var ekki mikið að hon- um, en — það kom einstaka sinn- um fyrir, að hann varð æstur, og geðlæknarnir, þeir hálærðu herr- ar, gerðu hvað þeir gátu til þess að róa hann. Þeir sögðu, að hann jólasaga. hefði tapað sambandi við nútíðina og lifði í fortíðinni. Þetta var víst talsvert útbreiddur sjúkdómur. — Læknarnir reyndu að fá hann til að lifa í nútíðinni með því að ræða við hann um viðburði hins líðandi dags. Stundum fóru þeir með hann í gönguferðir um bæinn, en þá vildi það alltaf til, að hann fékk þá flugu í höfuðið, að fara inn á einhvem rólegan stað og fá sér hressingu, eða glas af víni. — Þá var alltaf farið með hann rakleitt í sjúkrahúsið aftur. í>að vom nefnilega meira en tuttugu ár síð- an að ríkisstjórnin hafði bannað fólki að sitja inni á veitingahús- um og drekka rándýrt brennslu- efni. Venjulega var hann vingjarnleg- ur og þægur. Ég hefi aðeins einu sinni séð hann æstan. Hvemig honum heppnaðist að flýja af sjúkrahúsinu 24. desem- ber 1984 hefir aldrei fengizt út- skýrt. Hann hafði hegðað sér til- tölulega vel í heilan mánuð, og einn morgun hafði hann meira að segja haft orð á því við læknana, að honum þætti skynsamlegt, að fólk héldi ekki lengur jólin hátíð- leg, því að hann væri fullkomlega sammála ríkisstjórninni um það, að slíkt væri aðeins sóun á vinnu- afli og efni. Það var álitið, að nú væri hann að ná sér af sjúkleik- anum, og þessvegna var honum leyft að fara sinna ferða í sjúkra- húsinu. Ég geri ráð fyrir, að hann hafi bara gengið beint út um aðal- dyrnar og farið heim. Við sáum hann koma gangandi yfir grasflötina, hlaðinn pappa- öskjum og við urðum, sannast að segja, skelkuð, en mamma bað okkur að gera ekki neitt til þess að æsa hann upp. Hann kom inn í stofuna og brosti. Og þvílíkt bros! Ég hafði aldrei séð slíkt áð- ur. Svo gaf honn okkur, hverju fyrir sig, eina pappaöskju. í öskjunni, sem hann gaf mömmu, voru blýantamir, sem nota átti til þess að gera strik á fætuma. 1 minni öskju var bolti, búinn til úr pappírskvoðu, og í öskjunni, sem litla systir mín fékk voru fáein allavega lit bönd úr silkipappír. Mamma var áhyggjufull á svip- inn, en okkur krökkunum fannst þetta reglulega skemmtilegt. Við settumst á gólfið og fórum að leika okkur að gjöfunum, og ég man greinilega, að pabbi sagði: „Þau vantar tréð — jólatréð“ — Okkur fannst þetta ákaflega ein- kennilega sagt. — Hvað var jóla- tré, og hvernig kæmist það fyrir í stofunni okkar? — Svo fór pabbi upp á háaloft, og mamma*hastaði á okkur. Svo fór hún að símanum til þess að hringja til sjúkrahúss- ins. Þegar pabbi kom niður aftur var hann óhugnanlegur ásýndum. — Hann hafði farið í einkennileg, rauð föt, sem voru lögð hvítum skinnum, og hann hafði límt bóm- ull á hökuna og kinnamar. Á höfðinu hafði hann skrýtna skott- húfu og hékk skúfurinn niður á annað eyrað. Hann hló og baðaði út handleggjunum. Við urðum dauðhrædd að sjá pabba í þessum ham. En skyndilega veifaði hann Þotið upp stigann.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.