Vesturland - 24.12.1956, Blaðsíða 10
10
VESTURLAND
Heimsókn í barnaskólann
Góður skóli er virðuleg stofnun,
sem hefir þýðingarmiklu hlutverki
að gegna. Barnaskóli Isaf jarðar er
ein af elztu og virðulegustu stofn-
unum þessa bæjar. Hann var ein
af þeim stofnunum, sem reis upp
í dagreningu nýs tíma, þegar
landsmenn minntust 1000 ára
bygðar landsins, árið sem konung-
ur færði landsmönnum nýja stjórn-
arskrá.
Þjóðhátíðarárið 1874 var fyrst
settur barnaskóli á Isafirði. Var
fyrsti skólastjóri hans Ámi Jóns-
son, sem síðar varð einn umsvifa-
mesti og stórbrotnasti athafna-
maður, sem hér hefir starfað.
Stjómaði hann skólanum í eitt ár.
Fjárhagur bæjarfélagsins mun þá
hafa staðið með litlum blóma.
Skutu því ýms samtök og einstakl-
ingar í bænum saman 1600 ríkis-
dölum, til þess að byggja skólahús.
Af þeirri upphæð gaf Sass, sem
hér var kaupmaður þá, 3000 krón-
ur. Skólahúsið reis síðan af gmnni.
Er það nú hús Bjama Hávarðsson-
ar nr. 3 við Silfurgötu. Þar var
skóli haldinn í 27 ár. Sumarið 1901
var svo byggð neðri hæðin af nú-
amkomu'L í ^alem
1. jóladag kl. 9:
Morgunbæn.
1. jóladag kl. 4,30:
Hátíðarsamkoma.
2. jóladag: Hátíð sunnu-
dagaskólans.
kl. 2 yngri deild.
kl. 5 eldri deild.
2. jóladag kl. 8,30: Sam-
koma (fest) fyrir Færey-
inga og aðra aðkomu
sjómenn.
Gamlárskvöld kl. 11: Sam-
koma.
Nýársdag kl. 4,30: Sam-
koma.
Fjölmennið á samkom-
umar!
Gleðileg jól!
verandi skólahúsi, og hefir skólinn
verið þar til húsa síðan. Árið 1906
var svo byggð efri hæðin og mörg-
um ámm síðar var byggt fimleika-
hús við skólann, þar sem nú er
kennarastofan.
Fyrsta skólaárið voru nemendur
skólans 22, en síðan hefir nem-
endafjöldinn verið, sem hér segir:
Veturinn 84—85 88 nemendur.
94—95 25 —
04—05 73 —
14—15 155 —
24—25 164 —
34—35 338 —
— 44—45 433 —
— 54—55 386 —
Þess ber að geta í sambandi við
nemendafjöldann á ámnum fyrir
aldamótin, að á þeim ámm héldu
margir bæjarbúar heimiliskennara.
Gefur nemendafjöldinn því ekki
rétta mynd af þeim barnahóp, sem
naut almennrar barnafræðslu. Ár-
ið 1934 haifði skólaskyldan verið
færð niður í 7 ár, en árið 1954 hef-
ir bekkjadeildum skólans aftur
verið fækkað, þar sem heill ár-
gangur hefir þá flutzt yfir í Gagn-
fræðaskólann vegna nýju fræðslu-
löggjafarinnar.
Á þessum árum hafa verið 10
skólastjórar við Barnaskóla Isa-
fjarðar. Eins og áður er getið,
stjórnaði Árni Jónsson, vei’zlunar-
stjóri, skólanum fyrsta starfsár-
ið. Þá tók við skólastjórninni séra
Sigurður Gunnarsson, sem síðar
var mörg ár prestur í Stykkis-
hólmi og þingmaður Sunnmýlinga
og Snæfellinga. Stjómaði hann
skólanum í 4 ár. Eftir hann tók
Grímur Jónsson, faðir Jóns Gríms-
sonar, við skólastjórn, en hann var
skólastjóri bamaskólans frá 1879
þar til 1901, að skólinn flutti í núv.
skólahús. Þá tók dr. Bjöm Bjama-
son frá Viðfirði við skólastjórn-
inni. Var hann skólastjóri frá 1901
—1907, að undanteknu einu ári,
sem hann dvaldist erlendis, til að
verja sína doktorsritgerð, en þá
var skólastjóri séra Ásgeir Ás-
geirsson, síðar prófastur að
Hvammi í Dölum. Síðan hafa ver-
ið skólastjórar séra Bjarni Jóns-
son, síðar vígsslubiskup, 1907—-
1910, Sigurjón Jónsson, síðar
bankastjóri, 1910—1915, Baldur
Sveinsson, sem síðar varð ritstjóri
Vísis í Reykjavík, 1915—1918,
Sigurður Jónsson 1918—1930 og
loks Bjöm H. Jónsson 1930—1956.
Hafði hann verið kennari við skól-
ann í 6 ár áður og hefir því starfað
lengur en nokkur annar maður við
skólann. Næstur kemur væntan-
lega Jón Hróbjartsson, sem starf-
aði við skólann samfleytt í 30 ár.
Eínn reyndasti skólamaður þessa
lands, komst eitt sinn svo að orði
„Það langskemmtilegasta í ys og
erfiðleikum annríks skóla er þetta:
að sjá ungt fólk vaxa upp undir
handarjaðri sínum, fylgjast með
bamingi þess og gleði, áhyggjum
þess og sigmm og sjá síðan á eft-
ir því út í lífið og fylgjast með
því þar, hvernig það kemur fótum
undir sig og stækkar og hækkar.“
Undir þessi orð hins reynda skóla-
manns munu flestir geta tekið.
Fátt er ánægjulegra en að sjá
ungt fólk feta sig upp námsstig-
ann og ná nýjum og nýjum á-
rangri á menntabrautinni og verða
síðan virkir þátttakendur í starfi
þjóðfélagsins.
---o-----
Vealurland birtir liér nokkrar
svipmundir, sem nýlcga voru tekn-
ar i Barnaskóla ísafjarðar. Lengst
Ul vinstri d mgndinn hér að ofun
er GuSni Jónsson, kennari, aS af-
henda nemendum sínum brauS-
hleif, en siSan kemur frú Una'Thor-
oddsen og gefur börnunum þorska-
lýsi. Lcngst til hægri er Björgvin
Sighvalsson, kennari, aS selja ungri
stúllcn sparimcrki.
Á mgndinni aS ncöan sést Afi
meS börnunum sínum.
Ljósm.: Jón Páll.