Vesturland

Volume

Vesturland - 13.08.1959, Page 2

Vesturland - 13.08.1959, Page 2
2 VESTURLAND íþróttir — Frá Héraðssambandi Vestfjarða Frá lþróttanámskeiðinu að Núpi. Kennararnir Valdi- mar Örnólfsson til vinstri og Siffurður R. Guðmunds- son til hægri. Frá íþróttabandalagi ísfirðinga Starfsemi sambandsins hófst með því að heimsótt voru öll fé- lög þess og komið á keppni bama á aldrinum 9—13 ára. Keppt var í eftirtöldum greinum og eru beztu árangrar sem hér segir: 80 m. hlaup: Þórir Axelss. Stefni 12,5; Guðrún Gunnlaugd., Gretti 13,0. Langstökk: Þórir Axelss., Stefni 3,83; Erla Árnad. Höfrungi, 3,37. Iiúluvarp: Gunnar Pálsson, Stefni 9,23; Borghildur Bjarnad., Stefni 6,19 m. Hástökk: Páll Stefánsson, önundi 1,25; Borghildur Bjarnad., Stefni 1,03 m. 1000 m. lilaup: Garðar Guðmundss., Framar 3:53,8; Klara Arnarsdóttir, Gretti 4 :13,0. Þátttakendur voru alls 94 börn frá 8 félögum. Þeir Sigurður R. Guðmundsson og Tómas Jónsson, sáu um keppnina. 1. júlí hófst íþróttanámskeið að Núpi fyrir aldursflokkinn 13—16 Sigurður R. Guðmundsson ára. Þátttakendur voru alls 25. Kennd var undirstaða í eftirtöld- um íþróttum: Frjálsum íþróttum, fimleikum, körfuknattleik, blaki, handknattleik, sundi og knatt- spyrnu. Auk þess voru haldnir fyrirlestrar og haldnar kvöldvök- ur, æfður söngur, þjóðdansar og dans. Farið var í gönguferðir og nágrenni skoðað. Sýndar voru kennslu og skemmtimyndir. Kenn arar voru þeir Sigurður R. Guð- mundsson og Valdimar Ömólfs- son. 5. júlí var haldið íþróttamót fyrir þátttakendur og aðra ungl- inga 'af sambandssvæðinu. Keppt var í tveim aldursflokkum 18 ára og yngri og 16 ára og yngri, bæði fyrir stúlkur og drengi. Beztu ár- angrar voru: Unglingar 17—18 ára: 80 /77. hlaup: Karl Bjarnas. Ste^ni 10,4; Jónína Ingólfsd. Stefni 12,0. Hástölck: Kristján Björnss. Stefni 1,40; Fríður Guðmundsd., Mýrarhr. 1,20. Langstökk: Kr. Björn.sson, Stefni 5,40; Jónína Ingólfsd., Stefni 3,95. Kringlukast: Kristján Björnsson, Stefni 34,45; Fríður Guðmundsdótt- ir, Mýrarhr. 22,74. Kúluvarp: Karl Bjarnason, Stefni 13,39; Fríður Guðmundsd. Mýrarhr. 7.48. 1500 /77. hlaup: Halldór Valgeirs- son, Mýrarhr. 5:55,5. Unglingar 16 ára og yngri: 80 /77. hlaup: Kristján Mikkaelss. Gretti 10,8; Ásta Valdimarsdóttir Mýrarlir. 12,8. Ilástökk: Ómar Þórðarson, Stefni I, 35; Ásta Valdimarsd., Mýrhr. 1,20. Langstökk: Kristján Mikkaelss. Gretti 4,73; Ásta Valdimarsdóttir, Mýrarhr. 3,73. Kringlukast: Gunnar Pálss. Stefni 27,26; Ólöf Jónsd., Mýrarhr. 19,77. Kúluvarp: Ellert Ólafsson, Stefni 10,69; Ólöf Jónsd., Mýrarhr. 7,43. 1500 /77. lilaup: Kristján Mikkaels. Gretti 5:33,2. íþróttanámskeiö með þessu sniði era lítt þekkt hér á landi, en víða erlendis hafa þau gefið góða raun. Sigurður R. Guðmundsson, íþróttakennari á Núpi, átti frum- kvæði að þessu námskeiði og hef- ur hann sýnt mikinn áhuga og dugnað í starfi sínu utan skóla sem innan. í lok námskeiðsins fór héraðs- mót sambandsins fram eða 11. og 12. júlí. Jón hjartar á Flateyri á nú 25 ára keppnisafmæli. Úrslit íþróttakeppninnar laugar- daginn 11. júlí 1959: KARLAR: . .Kúluvarp. 1. Ólafur Þórðarson, H 13,70 m.; 2. Ójáfur Finnbogason, V 12,48 m. Kringlukast: 1. Ólafur Þórðarson, II, 37,45 m.; 2. Ólafur Finnbogason, V, 35,36 m. 400 m. lilaup: 1. Kristján Mikka- elsson, G, 36,1 sek.; 2. Bergsveinn Gíslason, M, 64,9 sek. . .Langstökk: 1. Steinar Höskuldss., H, 5,68 m.; II. Kristján Björnsson, S. 5,55 m. Stangarstökk: 1. Sverrir Jónsson, V, 2,52 m.; 2. Karl Bjarnason S, 2,42 m. Þrístökk: Kristján Björnsson, S, 12,34 m.; 2. Haraldur Stefánsson, V, 11,61 m. . .Urátlarvélaakslur: 1. Sverrir Jónsson, V, 79 st.; 2. Bergur Torfa- son, M, 77 st. Starfslilaup: 1. Bergsveinn Gísla- son, M, 4,50; 2. Sverrir Jónsson V, 5.49. Fimleikar. Fimleikaflokkur karla undir stjóm Bjarna Bachmanns, fór til Reykjavíkur í byrjun júlí og sýndi fimleika á Laugardalsvellinum í sambandi við vígslu leikvangsins. Vakti flokkurinn mikla athygli og hlaut verðugt hrós fyrir frammi- stöðuna. Knattspyrna. III. flokkur knattspymumanna frá Í.B.Í. tók þátt í Islandsmótinu í knattspyrnu, léku piltarnir í Reykjavík, Hafnarfirði og Akra- nesi. Var frammistaða flokksins með ágætum. Úrslit leikja urðu sem hér segir: Í.B.Í. — Þróttur 1:2. Í.B.Í. — Ilafnarfjörður 0:0. l.B.l. — Akranes 3:0. l.B.I. — Fram 1:4. Einnig lék flokkurinn aukaleik við K.R. og varð jafntefli 2:2. Far- arstjóri og þjálfari flokksins er Jens Kristmannsson. lslandsniót. Islandsmót II. deildar á Norður- og Vestursvæðinu fór fram hér á Isafirði 14. júlí s.l. Kepptu þá Ak- ureyri og Isafjörður og sigruðu Akureyringar með 3 mörkum gegn 2. Leikurinn var jafn, en Akureyr- ingar náðu forystunni í fyrri hálf- leik og skoruðu þá sín þrjú mörk, en ísfirðingar skoruðu sín tvö mörk í seinni hálfleik. Dómari var Magnús Pétursson úr Reykjavík. Vestfirðingavaka. Um verzlunarmannahelgina var haldin hér á ísafirði Vestfirðinga- vaka, eins og undanfarin ár. Knattspymufélagið Hörður sá um framkvæmd -hennar að þessu sinni KONUR: Kúluvarp: 1. Fríður Guðmundsd., M, 7,86 m.; 2. Jónína Ingólfsdóttii', S, 7,56 m. og minntist jafnframt 40 ára af- mælis félagsins. Á laugardag hóf- ust hátíðarhöldin með knatt- spyrnukappleik milli Ksf. Harðar og Hafnfirðinga og ui'ðu úrslit þau að hvor aðili skoraði þrjú mörk. Dómari var Friðrik Bjarnason. Á sunnudag byrjaði hátíðin með fim- leikasýningu karla undir stjórn Bjama Bachmanns, því næst fór fram drengjaboðhlaup milli Harð- ar og Vestra, var hlaupið frá Mjó- sundum og upp að Túngötu. Sigr- aði sveit Harðar og er það þriðja árið í röð, sem Hörður vinnur þetta hlaup. Strax á eftir hófst svo handknattleikskeppni karla milli Isfirðinga og Hafnfirðinga. Var leikurinn skemmtilegur á að horfa. Hafnfirðingamir voru ör- uggir sigurvegarar og unnu leik- inn með 14 mörkum gegn 4. Að lokum fór fram knattspyrnukapp- leikur milli Hafnfirðinga og ís- firðinga og sigraðu Hafnfirðingar með 4 mörkum gegn 3. Dómari í knattspymunni og handknattleikn- um var Ragnar Magnússon frá Hafnarfirði. Dansleikir voru bæði á laugar- dags og sunnudagskvöld. í sambandi við þessa Vestfirð- ingavöku er vert að minnast á eitt atriði og það er þetta fyrirbrigði að fólk reynir að skjóta sér und- an því að kaupa merki. Nú ætti það ekki að vera neinum ofvaxið að kaupa merki fyrir tíu krónur. Fólk þarf að gera sér það ljóst, að töluverður kostnaður er því sam- fara fyrir íþróttafélögin, þegar að- komuflokkar koma til bæjarins, það þarf að sjá þeim fyrir fæði og húsnæði og einnig þarf að taka nokkum þátt í ferðakostnaði. Væri óskandi að fólk tæki tillit til þessa, og láti sig ekki muna um tíkall- inn næst þegar aðkomuflokkar koma hingað í heimsókn. Framhald á 7. síðu. # * #

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.