Vesturland - 03.06.1976, Page 3
3
Alþingi afgreiddi:
VÍÐTÆKA LÚGGJÖF» SVIDI
sjAvarUtvegsmála
Löggjöf um fiskveiðilnndhelgi Islonds,
Fiskveiðusjóðs, stjórnun fiskveiðn og
sjóðukerfið murkn nkveðnn og
skynsumlegu stefnu
Á nýafstöðnu þingi voru samþykkt ýmis mikil-
væg lög, sum sem varða vestfirðinga sérstaklega
eins og t.d. lögin um Orkubú Vestfjarða, en 1
þessu spjalli mun ég eingöngu ræða aðgerðir
löggjafans í sambandi við sjávarútvegsmál, svo
og gerðir sjávarútvegsráðuneytisins á sama tíma.
Sjávarútvegur, veiðar og vinnsla, er mikilvæg-
asti þátturinn í þjóðarbúskapnum undirstaða þess
lífs, er við lifum í þessu landi, aflgjafi þeirra
hluta sem gera skal. Hlut vestfirðinga í þessum
atvinnuvegi þarf ekki að ræða á þessum vettvangi
við þekkjum hann öll.
200 MÍLNA FISKVEIÐI-
LANDHELGI.
Eins og al|þjóð er kumnugt
var gafin út reglugerð um
200 míLna filskveiðilandhelgi
hLnn 15. júlí 1975 og gildis-
takan ákveðin þrem mánuðum
síðar eða 15. október s.l.,
þetta tel ég mikilvægustu
aðgerð í málefnum sjávar-
útvegsinis á s.l. ári. Reglu-
gerðin var sett samkvæmt
landgrunnslögunum frá 1948,
en á þeitm llögum hefur stækk-
un landhelginnar alltaf
byiggst. Þar með stigum við
tokaskrafið í baráttu ckkar
fyrir 200 mílna efnahagslög-
sögu íslands. Baráttunni var
ekki þar með lokíð, vegna
þess að margar þjóðir vé-
fengdu rétt ckkar tii ei.nihiiða
útfærslu, cig þess vegna höf-
um við orðið að heyja stríð
á tveimur vígstöðvum á mið-
unum við strendur landsLns
og á hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna, en nú hilldr
undir siigur í þessu lífshags-
munamáli þjóðarinnar — sig-
ur á þessu ári.
SJÓÐAKERFIÐ
Á s.il. ári fóru fram miklar
umræður um ..sjóðakerfið”
svanefhda, og það gagnrýnt
harkalega, bæði af sjómönn-
um og útvegsmönnum enda
bót.t al'lir sjóðiir siávarútvegs-
inw bafi í orði hevrt undir
sjóðakerfisihugtakið, þá voru
það fvrst og framst Olíusióð-
urinn og Tryggingasjóður
fiskiskipa, sem dllu hinni
megnu óánægju sjómanna og
útvegsmamna, enda runnu
73,4%, af heildartekjum sjóð-
anna til þessara tveggja
sjóða. Olíusjóðurinn var
myndaður til að mæta gífur-
legum veröhækkunum á oliu
síðla árs 1973 og óx hann
með hröðum skrefum vegna
áframhaldandi verðhækkana,
uns hann var lagður niður.
Tryggingasjóður fiskis'kipa
var hinsvegar stofnaður árið
1961 og starfar áfram, en
velta hans minnkar um meira
en hehnimg.
Tekjur þessara sjóða byggð-
ust að mestu á útflutnings-
gjöldum af sjávarafurðum,
en það þýddi að þeir sem öfl-
uðu mest greiddu mest til
þeirra, til að einfalda dæmið
má hinsvegar segja að þeir,
sem sýndu minnsta hagsýni
í rekstri nutu þessara sjóða
hvað mest, þar eð greiðslur
úr þeim byggðust á eyðslu.
Með þessari tilhögun, sem ég
hefi lýst hér í fáum orðum
og mjög stórum dráttum, fór
fram veruieg tilfærsla á fjár-
munum mili einistaklinga og
fyrirtækja í útgerð, milli
skipaflokka og veiðigreina,
og hefði verið óhjákvæmilegt
að breyta greiðslureglunum,
ef al'lsherjar endurskoðun á
sjóðakerfinu hefði ekki farið
fram með þeim hætti, sem
raun vorð á. Þá voru út-
flutningsgjöldin misjöfin eftir
afurðum, þannig að milli
vinnslugreina fór fram veru-
leg tilfærsla fjármagns.
Talið er að allt hafi þetta
orðið til að beina útgerð og
vinnslu inn á aðrar brautir
en þær, sem hagkvæmastar
voru fyrir þjóðfélagsheild-
ina. Ríkisstjórn og Alþingi
gátu ekki með einhliða að-
gerðum breytt þessu kerfi,
þar eð þær breytingar hefðu
haft bein áhrif á kjarasamn-
inga milh sjómanna og út-
vegsmanna.
Við gerð samninga um
kaup og kjör sjómanna á
bátaflotanum í marz 1975
óskuðu samninganefndir Sjó-
mannasambands íslands og
Landssambands ísl. útvegs-
manna í bréfi hinn 8. apríl
að ríkisstjórnin hlutaðist til
um endurskoðun sjóðakerfis-
ins undir forystu Þjóðhags-
stofnunarinnar, og báru fram
tillögu um tilhögun nefndar-
skipunar í því sambandi.
Samkvæmt henni átti nefndin
einungis að vera sldpuð full-
trúum hagsmunasamtaka sjó-
manna og útvegsmanna auk
hagrannsóknarstjóra.
Ég fagnaði þessum tilmæl-
um og var nefndin skipuð í
samræmi við óskir viðkom-
andi.
Nefndin vann mikið starf
og gott, og skilaði ítarlegu
áliti og tillögum með bréfi
dags. 19. janúar s.l. Sam-
komulag tókst í nefndinni um
tillögur um breytingar á
gildandi lögum.
Algjör forsenda þessara að-
gerða og lagabreytinga var
fuilt samkomulag yrði milli
sjómannasamtakanna og út-
vegsmanna um fiskverð og að
samningar tækjust á þessum
breytta grundvelli í samræmi
við ábendingar tillögunefndar
innar, svo og um breytmgar
á ákvæðum þeirra samninga,
sem ekki voru lausir frá s.l.,
áramótum, en fulltrúar um-
ræddra hagsmunaaðila höfðu
undirritað slíka yfirlýsingu.
ÝMIS LÖG UM
FISKVEIÐAMÁL.
Til fróðleiks vill ég geta
þess að frá 1. september 1974
hafa verið samþykkt á al-
þingi 17 lög, en mörg þeirra
eru sett tii þess að auka
stjórnun fiskveiðanna. Lög nr.
12 frá 25 apríl 1975 um sam-
ræmda vinnslu sjávarafla og
veiðar, sem háðar eru sér-
stökum leyfum, voru sett til
að ráðuneytið geti haft virka
stjórn á vinnslu og veiðum
rækju og skelfisks. Nýlega
var samþykkt frumvarp til
laga um upptöku ólöglegs
sjávarafla, en nauðsynlegt
var að setja þau lög, til þess
að unnt verði að fylgja eftir
ýmsum reglugerðarákvæðum
um veiðitakmarkanir.
LÖG UM VEIÐAR í
FISKVEIÐILANDHELGI
ÍSLANDS
Samþykkt hafa verið ný lög
Fralmhald á 14. síðu.
Matthíais Bjarnason, sjávarútvegsráðnerra.