Búnaðarrit - 01.06.1969, Page 134
384
BÚNAÐARRIT
að útliti, encla margar aðfengnar, en þær búa yfir mikilli
afurðagelu. Yfir hinum sýndu kúm var þó mikill svipur
ræktunar, og vakti ein þeirra, Skrauta 53, Skógum, at-
liygli fyrir óvenju vel lagað júgur með mjög vel gerðum
og vel settum spenum. Af I. verðlauna kúnum voru 5
dætur Öndólfs N136, og hefur liann stóraukið meðalnyt-
ina í félaginu. Níu fullmjólkandi dætur lians skiluðu
17365 fitueininga afurðum að meðaltali árið 1967.
II. Afkvæmasýningar á Vesturlandi
Eftir Ólaf E. Stefánsson
Að þessu sinni bar að halda afkvæmasýningar á nautum
á Vesturlandi, ef ástæða þætti til. Búnaðarsamband
Borgarfjarðar og Búfjárræktarstöð Vesturlands á Hvann-
eyri óskuðu eftir sýningu á þremur nautum, sem notuð
eru til sæðinga á starfssvæði stöðvarinnar, sem nær yfir
Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dalasýslu. Naut þessi voru
Glói V87, Fjölnir frá Skáney og Jökull V90. Dætur
tveggja fyrst nefndu nautanna voru valdar úr Borgar-
firði, og fór sýning á þeim frarn 26. september. Vegna
sauðfjárveikivarna voru sýningarstaðir í Borgarfjarðar-
sýslu tveir, Fellsendi og Miilakot, auk þess sem nokkrar
kvígur voin skoðaðar á einstökum bæjum í Mýrasýslu.
Dætur Jökuls V90 lir Miðdölum voru sýndar að Skógskoti
daginn eftir, þar sem hann var um árabil. Sama dag
voru nautin skoðuð á Búfjárræktarstöðinni á Hvanneyri.
Nú var farið eftir nýrri reglugerð um búfjárrækt frá 31.
ágúst 1967, þar sem m. a. er kveðið á um, að sýna skuli
á afkvæmasýningunum bið fæsta 16 kvígur undan liverju
nauti í stað 12 áður, ]>ólt að vísu þurfi aðeins 10 þeirra