Búnaðarrit - 01.06.1969, Blaðsíða 136
386
BÚNAÐARRIT
Glóa væru mörgum ágætum kostum búnar, þótt byggingu
sé að nokkru ábótavant, og hlaut hann I. verSlauna viður-
kenningu vegna afkvæma sinna, en faðir lians, Frosti V83,
lilaut sams konar viðurkenningu árið 1965, sjá Búnaðar-
rit 1967, bls. 568. Glói er vel byggt naut með ágæta
yfirlínu. Var lýsingu á lionum ungum í Búnaðarriti 1967,
bls. 449, aðeins breytt að því leyti, að liann telst nú
hafa boldýpt í meðallagi og langt bil milli fram- og
afturspena, sem eru í meðallagi stórir. Þetta er fremur
langur, blutfallagóður gripur, og mætti búast við sterk-
ari afturbyggingu dætra hans en raun er á.
2. Fjölnir VI10. Þetta naut hefur verið notað um
nokkurra ára skeið, en ekki hlotið viðurkenningu fyrr
en nú, þar sem gögn hefur vantað um afurðir móður
þess, sbr. Búnaðarrit 1967 bls. 535, en næg reynsla á
dætur nú fyrst handbær. Lýsing á Fjölni hefur því ekki
birzt í Búnaðarriti fyrr en nú, þótt hann liafi áður
verið dæmdur á sýningum. Skrásetningarnúmer hans,
ættskrá og lýsing fer hér á eftir:
VllO. Fjölnir, f. 21. júní 1962 hjá Marinó Jakobssyni, Skáney,
Reykholtsdal. Eig.: Búfjárræktarstöð' Vesturlands. F. Fylkir
N88. M. Svört 54. Mf. Mýrdal, Sturlu-Reykjuni. Mff. Roði,
Völlum, Dyrhólahreppi. Mfff. Bíldur S5. Mfm. Huppa (13),
Garðakoti. Mm. Skjalda 49. Mmf. Skuggi, Skáney og Snæ-
fellsnesi. Mmm. Laufa 43. Mmff. heimaalinn sonur Grana í
Reykholti frá Kluftum og Kolgranar á Skáney. Mmfm.
Huppa (12) frá Hesti. Mmmf. Brandur, Hvanneyri. Mmmm.
= Mmfin. Lýsing, 27. sept. 1968: dökkkolóttur með hvítan
blctt á kviði; koll.; fremur stuttur, lögulegur haus; húð í
meðallagi að þykkt og mýkt; bein yfirlína; góðar útlögur
og boldýpt; malir bcinar, eilítið afturdrcgnar; fótstaða
fremur þröng; smáir, vel settir spenar, en lítið skinnlos í
júgurstæði.
Sýndar voru 16 dætur Fjölnis úr Borgarfirði. Af þeim
voru 9 rauðar (margar kolóttar um granir), 4 kolóttar og
kolskjöldóttar, 2 brandskjöldóttar og 1 grá, allar kollótt-
ar. Þessar systur voru allar ungar, flestar að 1. kálfi.