Búnaðarrit - 01.01.1941, Síða 82
B Ú.N A Ð A R R 1 T
76
jörð. Tíðarfarinu i maí svipar mjög til aprilveðr-
átlunnar þótt hitinn yrði meiri, sein þó oftast var
lítill, 9.—10. maí kom ökla djúpur snjór, en hann
leysti upp næstu dægur. Kornsáningu lokið 8. maí,
og í kornökrunum byrjaði að koma upp 18.—22,
iim líkt leyli var allur klaki úr jörð. Ám var viðast
slej)])t um miðjan maí, og kýr fyrst látnar úl 20.—25
og er það rúmri viku síðar en í meðalári. Oll jarð-
ræktarstörf gengu erfiðlega vegna úrkomu og kulda-
tíðar, því jörð var oft mjög blaut lil vinnslu.
Niður í garða var víða sett 20. maí og því allvíða
ekki lokið fyrr en í fardögum (6. júní). Sauðburður
gekk fremur vel, og vanhöld lítil, olli þar mestu, að
siðasta vikan af maí var með góðum hlýindum.
Sumarið (júní—september). Júní var ineð köldu
og sólarlitlu veðurfari, gróðri fór hægt fram og kúm
varð að gefa lengur fram eftir mán, en venjulelga
cða fram að 17. Kartöflur komu óvenju seint iijij)
eða 20.—28. Aðfaranótt 28. júní gerði afspyrnurok
á austan sem olli geysi skemmdum á kartöflugörð-
uin, kornökrum og grasgróðri ölluni. Bjó lengi að
veðrinu, og tel ég að þelta veður hafi verið j)að
mesta sem komið hefir á þessum árstíma i l'jölda
ára. í júnílok voru tún víðast illa sprottin.
Júní var hægviðrasamur, kaldari en í meðallagi
og með fremur óþurrkasömu tíðarfari. Sláttur byrj-
aði almennt 15.—20 ágúst, tún sprottin i löku meðal-
lagi. Mest af því grasi sem losað var í júlí náðist
ekki fyrr en í ágúst og þá töluvert hrakið.
Rygg og hal'rar skriðu 1 % viku síðar en í meðallagi
cða 18.—28. júlí, og hið sama varð fyrir grasteg-
undir fræræktarinnar. Ágúst var sömuleiðis kaldur
og óþurrkasamur. Þurkflæsur voru 5., 22., 28., 26.
og 27. ágúst, en jafan stóðu þær stutta stund, og
stunduin ekki heila daga, varð því töðuþurrk víða
ábótavant. Víðasl lokið töðuhirðingu 22.—26. ágúst.