Búnaðarrit - 01.01.1941, Side 147
BÚNAÐARRIT
141
eða yfir nóttina. Vatninu er þá hellt af og hrognunum
hellt hægt í tölumerkt lítramál. En fyrst verðnr að
telja t. d. 1 desilítra (100 gr.). Hrognunum er hellt hægt
úr málinu í kassann fullan af vatni og byrjað við þann
enda, sem vatnið kemur inn um. Hrognin eru þannig
lögð ineð straumnum. Gott er fyrir viðvaninga að nota
skeið sér til hjálpar. Gæta verður þess að leggja hrogn-
in sem jafnast og ekki mjög nærri kassa hliðunum.
Eftir að búið er að leggja yfir allan kassa botninn, má
•með fjöður jafna betur úr hrognunum ef þörf þykir.
Eftirlit með klakstöðinni. — Þegar búið er að leggja
hrognin niður, eru öll hvít hrogn tínd burtu og tala
þeirra skrifuð hjá sér. Er það gert með trétöng, er
likist iiísatöng (pincette) að gerð. Varlega verður að
í'ara að þessu því hrognin þola mjög illa viðkomu eða
hristing. Þá eru lokin sett yí'ir og látið liggja afskipa-
laust i eina eða tvær vikur nema livað líta verður
eftir, að vatnsrennslið sé í lagi. Vilji maður líta ofan
í kassana, verður að taka hlemmana varlega af og
cinungis taka þau hvít hrogn, sem myglusveppur er
inyndaður á. Ef ekkert óhapp vill til, er það nægilegt
að tína öll hvít hrogn einu sinn í viku. Skal í hvert
sinn skrá niður á list i tölu dauðu hrognanna, svo mað-
ur vili ætíð, livað mikið er eftir lifandi í klakstöðinni.
Tími sá, sem hrognin eru að klekjast út, er almennt
talin 18—22 vikur. Fer það eftir hitastigi vatnsins,
því heitara sem það er, því fyrr klekjast lirognin iit, en
yfir 5° má það þó aldrei l'ara. Bezt er að vatnið sé
ekki nema 1—2° á C. Kosturinn við það, að vatnið sé
sem kaldast er, að þá klekjast hrognin svo seint út, að
sá tími fer að nálgast, að ísa leysi af ám og vötnum og
Eægt sé að láta seiðin á sína uppvaxtarstaði, þegar þau
eru fær til, nefnilega þegar kviðpokinn er búinn. Séu
]>au klakin mikið fyrr, verður að fóðra þau, en það er
alltaf talsverðum erfiðleikum bundið. Eftir 9—11 vik-