Heilbrigðismál - 01.01.1950, Blaðsíða 7

Heilbrigðismál - 01.01.1950, Blaðsíða 7
PRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL 7 Pasteurstofnunina í París, að læknir, sem var að gera tilraunir með botulismus-toxin, dó af eitrinu, sem hann var að vinna með. Hann skildi ekkert í því sjálfur hvernig hann gæti hafa fengið eitrið ofan í sig. Loksins gat hann leyst gátuna, áður en hann dó: Hann var með alskegg og hafð'i strokið skeggið með höndunum. Auðvitað hafði hann ávallt þvegið sér áður en hann fór af rannsóknastofunni, en hann hafði strokið skegg sitt undan og eftir þvottinn og ekki gætt þess að gera ráð fyrir eitrinu í skegginu, svo að sú ögn sem komst af fingrum hans á munn og varaslímhúð, með sígarettum og mat, var nægileg til að valda honum bana. Mönnum hefur reiknast svo til, að 100 grömm af þessu eitri væri nægilegt til að drepa alla Lundúnabúa. Ef ein fingurbjörg af slíku eitri fullsterku lcæmist í Gvendarbrunna, væri það nóg til þess að drepa hvert mannsbarn í Reykjavík. Það er engin furða þótt hernaðarþjóðirnar hafi gert miklar rann- sóknir á þessu eitri með það fyrir augum að nota það í stríði. Vitan- legt er að mörg kílógrömm eru til af því, vel geymd, til notkunar ef einhverjum stjórnmálaglæpamanni dettur í hug að nota það í næsta styrj al darbrj álæði. Atómorkulækning á íslandi Fyrsta tilraun hér á landi til að lækna sjúkdóm með atómorku var gerð í Rannsóknastofu Iíáskólans við Barónsstíg 2. febrúar 1949. Sjúklingurinn var fullorðinn maður, sem liafði sjaldgæfan sjúkdóm, sem á læknamáli heitir polycythæmia. Hann er fólginn í því, að of mikið myndast af rauðum blóðkornum, svo að blóðið verður of þyklct og getur verið hætt við' að æðar stíflist af þeim sökum, einkum í heilanum. Sjúklingurinn verður dökkrauður í andliti. Þessi sjúklingur var orðinn lítt vinnufær og leið illa. Atómorkulyf var pantað frá Ameríku til að gera tilraun til að lækna þenna sjúlding. Það er geislavirkt fosfór, sem missir geislaverk- un sína smám saman, og tapast hálf geislaorkan á liálfum mánuði. Með fyrirgreiðslu íslenzka konsúlsins í New York, Hannesar Kjart- anssonar, tókst að fá lyfið nógu fljótt flugleiðis, og þegar hingað kom mældi Þorbjörn Sigurgeirsson, atómorkufræðingur, geislamagn lyfsins, og eftir því var skammturinn reiknaður út, sem síðan var dælt inn í æð á sjúklingnum. Lyfið er litlaus vökvi, sem lítur út eins og vatn. Mjög þarf að fara gætilega með það til að forðast geislunina. Glasið var í steinsteyptri öskju og langt band á því til að taka það' með, en bannað að snerta glasið og tappann nema með töngum og gúmmí- hönzkum. Lyfið verkar þannig, að hið geislamagnaða fosfór sezt í beinin og merg þeirra, þar sem rauðu blóðkornin myndast. Geislamagnið er haft

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.