Heilbrigðismál - 01.03.1951, Síða 6

Heilbrigðismál - 01.03.1951, Síða 6
6 FKÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐJSMÁL eru tiltölulega algengar og jafnan mjög alvarlegs eð'Iis. Hins vegar má heldur eklci gefa allt of mikið A-vítamín, því að þá geta komið fram vanskapanir á beinum, en naumast er hætt við að menn fái svo mikið í venjulegu fæði. Líkindin til að foreldrar eignist vanskapað barn eru talin 1 á móti 200. Ef hjón hafa áður eignazt vanskapað barn aukast líkindin fyrir því að þau eignist annað bam vanskapað' 20—25 sinnum. Því eldri sem móðirin er, því meir aukast líkurnar fyrir því að hún eignist vanskapað barn og má segja að þær aukist ár frá ári eftir að konan er komin yfir þrítugt. Talið er að þetta standi í sambandi við æðarnar í legslímhúðinni, sem eru mjúkar og víðar í ungum konum, en harð'na með aldrinum, svo að næring fóstursins verður ekki eins fullkomin. Nýlega hafa tveir brezkir læknar lokið við að gera umfangsmiklar rannsóknir á vansköpunum á taugakerfi. Þeir reyndu að grafast eftir orsökunum til slíkra vanskapana í 939 börnum, sem annað hvort fædd- ust andvana af þessum sökum, eða dóu á fyrsta ári, og voru þetta öll börn sem fæddust með slíkar vanskapanir í Birmingham á ámnum 1940—1947. Það svaraði til 0.59% af öllum fæðingum í borginni á þessu tímabili. Vatnsheili fannst í 15 börnum, mænugátt (spina bifida) í 389, heilaleysi í 366 og aðrar vanskapanir hjá 25. Hjá 8.3% af börn- unum fundust einnig vanskapanir í öðrum líffærum. Heimili allra þessara barna voru skoðuð og fólkið spurt út úr. Það kom í Ijós, að hættan ú meðfæddri vansköpun var mun meiri í fyrstu barneign og eftir þá sjöttu. Ekki fannst neitt samband milli vanskapana og efna- hags, ekki heldur eftir því hvort bam fæddist í eða utan hjónabands né hvort lengra eða skemmra var á milli fæðinga eða eftir því hve mikil frjósemin var. Tíðatruflanir virtust heldur engin áhrif hafa. Hjá systkinum þeirra sem fæddust með vanskapað taugakerfi var 1.89% einnig með vanskapanir í taugakerfi og ef aðeins voru talin systkini, sem fæddust eftir að eitt barn hafði fæðst þannig vanskap- að, voru 2.77% með vanskapað taugakerfi (í stað 0.45%, sem búast hefði mátt við, ef skyldleikaáhrifa hefði ekki gætt). Ef barn fæddist með mænugátt virtust meiri líkindi til að vanslcöpun gerði vart við sig á seinni bömum heldur en eftir aðrar vanskapanir. Það er löngu vitað, að konum, sem komnar eru vfir fertugt hættir miklu frekar en öðrum til að eignast fávita (mongoloid fábjána) og stafar það sennilega af því að legæðarnar eru faraar að stirðna í þeim, svo að hætt er við að fóstrið nærist ekki eins vel og skyldi. Fátt er það sem þunguð kona óttast meira en að eiga vanskapað bam, og það er að vonum. Vafalaust eiga menn eftir að læra margt í náinni framtíð um hvernig afstýra megi slíkri ógæfu. Eftir þeini þekkingu, sem nú er til um þessa hluti, er ástæða til að brýna fyrir vanfærum konum eftirfarandi atriði:

x

Heilbrigðismál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.