Heilbrigðismál - 01.05.1961, Blaðsíða 1
FRÉTTABRÉF
ITM IEILBRICB1SMÁL
9. árgangur . Mai-júni 1961 . 3. tölublaO
JCrabbamemsfélag <Jslatfds 10 ára
i.
Á þessum merku tímamótum í sögu
krabbameinsvama á íslandi er ástæða til að
líta um öxl og horfa yfir farinn veg.
Það er rétt að gera sér grein fyrir hugsjón-
um forvígismannanna, athuga hvað fyrir
þeim hefur vakað í upphafi, í einstökum at-
riðum, eftir atvikum og hvernig tekist hafi
til um framkvæmdir.
Saga Krabbameinsfélags íslands verður
ekki skráð nema minnst sé brautryðjenda
starfs Krabbameinsfélags Reykjavíkur, því
að innan vébanda þess félagsskapar var
grundvöllur baráttunnar lagður.
Hér á eftir verður því orðrétt tekin upp
fundargerð undirbúningsfundar að stofnun
Krabbameinsfélags Reykjavíkur, og síðan
nokkuð rakið starf þess fram að stofnun
Krabbameinsfélags íslands.
Loks verður svo gefið stutt yfirlit yfir
starfsemi Krabbameinsfélags íslands frá
stofnun til þessa dags. Inn í þá sögu fléttast,
að sjálfsögðu ýmislegt úr starfi Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur og annarra krabba-
meinsfélaga, sem stofnuð hafa verið.
frettabréf um heilbrigðismál
Niels Dungal
prófessor
form. K.F.Í.
frá stofnun.
II.
Fundur til undirbúnings félags, er hafi
baráttu gegn krabbameini að markmiði.
Undirbúningsfundur að stofnun félags,
sem á að hafa það mark og mið, að hefja
markvissa baráttu við krabbameinið, var
haldinn þriðjud. 1. febrúar 1949 kl. 81/2 e. h.
í I. kennslustofu Háskólans. Til fundarins
var boðað af Læknafélagi Reykjavíkur og
var fundarboð svohljóðandi:
I