Heilbrigðismál - 01.05.1961, Qupperneq 2
AljreB Gíslason
lœknir og
alþingismaöur
formaöur
Krabbameins-
félags
Reykjavikur
um 10 ára skeið
„Undirritaðir læknar, sem kosnir voru af
Læknafélagi Reykjavíkur til að undirbúa
stofnun félagsskapar til baráttu gegn
krabbameini, leyfa sér hér með/ að bjóða
yður á fund í I. kennslust. Háskólans
þriðjudaginn 1. febrúar og ráðstafanir gerð-
ar til að stofna félagið, sem ætlazt er til að
nái yfir allt landið."
Alfreð Gíslason, Gisli Fr. Petersen,
Halldór Hansen, Niels Dungal,
Ólafur Bjarnason
Alfreð Gíslason læknir setti fundinn og
bað Jón Sigurðsson skólastjóra að taka að
sér fundarstjórn og Gísla Sigurbjörnsson
starf fundarritara.
Prófessor Niels Dungal tók þá til máls og
flutti ítarlegt og fróðlegt erindi um krabba-
mein. Benti hann með sterkum rökum á, að
ástandið í sjúkrahúsmálum þjóðarinnar
væri algjörlega óviðunandi og að hér þyrfti
skjótra aðgerða við. Þá ræddi hann um það,
sem gera þyrfti í baráttunni við krabba-
meinið. Árlegar rannsóknir væru nauðsyn-
legar, aðstoða þyrfti lækna til þess að læra
nýjar aðferðir í meðferð á krabbameins-
sjúklingum. Styrkja þyrfti sjúklinga til utan
ferða og á margt annað minntist prófessor-
inn. — Þá ræddi hann allítarlega um krabba-
meinsrannsóknir, sérstaklega á krabbameini
í lungum.
Prófessor Dungal hvatti mjög til þess að
stofnað yrði félag til baráttu við krabba-
meinið og sagðist gera sér sérstaklega miklar
vonir um þátttöku kvenna í slíkum samtök-
um og benti á í því sambandi störf kvenna
fyrir Landspítalann og Slysavamafélagið.
Páll Sigurðsson læknir þakkaði forgöngu-
mönnunum fyrir fundarboðið og próf. Dun-
gal fyrir prýðilegt erindi. Skýrði læknirinn
frá skýrslu um krabbamein, sem hér hefur
verið gerð undanfarin 6—8 ár.
Gísli Fr. Petersen dr. med. yfirlæknir
taldi að félag til baráttu gegn krabbamein-
inu gæti gert mikið gagn. — Eitt geislalækn-
ingatæki aðeins væri til í landinu og væri
brýn nauðsyn á að fá annað tæki, en til þess
að hægt væri að notfæra sér það, verður að
auka húsrými Röntgendeildarinnar, sem nú
þégar er alltof lítil. — Þá þyrfti mjög nauð-
synlega að fá nokkur sjúkrarúm til afnota
fyrir krabbameinssjúklinga.
Alfreð Gíslason læknir sagðist vona að
baráttan við krabbameinið myndi eflast að
miklum mun við félagsstofnun þá, sem hér
væri fyrirhuguð, enda er á því mikil þörf. —
Læknar þurfa að hafa samvinnu um þessi
mál og fá aðstoð allra hugsandi manna í
þessari baráttu við vonleysi, bölsýni og upp-
gjöf. — Fræðsla um krabbamein er nauðsyn-
leg og brýna verður fyrir læknum aukna ár-
vekni í þessu efni. Allt þetta starf mun kosta
mikið fé og mikla fyrirhöfn — en þetta verð-
ur að gerast.
Gísli Sigurbjömsson skýrði allítarlega frá
starfsemi danska krabbameinsfélagsins og
hvatti eindregið til félagsstofnunar á svip-
uðum grundvelli. Þá mintist hann á Radi-
umsjóð íslands og það brautryðjandastarf,
sem forgöngumenn hans unnu í þessum
málum, — og nefndi hann í því sambandi
Jón heitinn Laxdal, sem var einn af aðal-
hvatamönnum sjóðsstofnunarinnar.
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAI.
2