Heilbrigðismál - 01.05.1961, Side 10
Starfsfálh leitarstöðvar K.F.Í., læknarnir Rikharð Thors (t. v.) og Gunnlaugur Snœdal (t. Ii.), Guðrún Bjamadátt-
ir, rannsóknarst.stúlka (t. v.) og Halldóra Thoroddsen shrifstofustjóri.
síðustu árum. Læknar hér á landi fylgjast
vel með í þessari þróun og standa vonir til,
að starfsskilyrði batni að miklum mun við
stækkun Landsspítalans, Rannsóknarstofa
Háskólans þarf einnig á auknu húsrými að
halda fyrir hina mikilvægu rannsóknar- og
vísindastarfsemi, sem þar er rekin undir
handleiðslu prófessors Dungals. Þetta eru
rannsóknir, sem nú hafa vakið athygli víða
utan landssteinanna í hópi vísindamanna,
og standa vonir til að hægt verði að byggja
á þeim víðtækari rannsóknir á grundvallar-
orsökum krabbameinsins.
Það gætir vaxandi bjartsýni á meðal vís-
indamanna, sérstaklega eftir að tekist hefur
að sanna, að veirur valdi krabbameini í
mjög mörgum tilfellum, þ. e. a. s. að veirur
komi til sögunnar, eða nái tökum þegar sér-
stök skilyrði hafa skapast, — þegar mótstöðu-
afl tiltekinna frumuhópa, eða alls líkamans
hafi lamast meira eða minna.
Þetta hefur sérstaklega. beint athygli
manna að möguleika á ónæmisaðgerðum
eins og við aðra bakteríu eða veirusjúkdóma
og eftir þeim leiðum er nú unnið af kappi
á rannsóknarstofnunum víða um heim, und-
ir handleiðslu hinna færustu manna. Þess
má geta, að dr. Salk, sem frægur varð fyrir
uppgötvun lömunarveikisbóluefnisins, er
einmitt kominn í þessar rannsóknir.
LEITARSTÖÐ
Á sínum tíma skaut upp þeirri hugmynd,
að tímabært væri að setja á fót hér í bæ
stonun, þar sem fólki væri gefinn kostur á
nákvæmri læknisskoðun í heilsuvemdar-
skyni, en þó aðallega miðuð við leit að
krabbameini. Slíkar stöðvar höfðu þá um
skeið verið reknar sums staðar erlendis, m.
a. í Bandaríkjunum. Aðalhvatamaður að
hugmyndinni mun hafa verið Alfreð Gísla-
son læknir. Ekki var þó málið rætt sérstak-
lega á vegum krabbameinsfélaganna fyrr en
á stjórnarfundi hjá Krabbameinsfél. ísl. 6.
10
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁl.