Heilbrigðismál - 01.01.1964, Page 4
Röntgenmynd. Iier i lunga.
þennan sjúkdóm orðinn 100 á ári eftir 5—0
ár.
Ég mun ekki ræða neitt að xáði orsakir
sjúkdómsins. Það mundi vera að bera í
bakkafullan lækinn, jafn mikið og hefur
verið um þetta ritað og rætt undanfarið. Þó
vil ég geta jxess, að efnin eru fjölmörg auk
tóbaksreyksins, sem vísindamenn hafa illan
bifur á ,svo sem arsen, krómsölt, nikkel,
tjara, asphalt, ýrnsar geislavirkar loftteg-
undir, steinolía og benzíngufur. Það kom
sem sé í ljós, að lungnakrabbi var mjög al-
gengur nxeðal námumanna, Jxar sem eitthvað
af þessum efnum var fyrir hendi, og sjúk-
dómurinn er algengari í stórum iðnaðar-
borgum, þar sem loft er mengað, en annars
staðar. Þá hafa og veirur verið nefndar sem
hugsanleg orsök sjúkdómsins.
Argentíski læknirinn Roffo, sem er
heimsfrægur fyrir krabbameinsrannsóknir,
sýndi fyrstur manna fram á, að í vindling-
um er efni, sem getur framkallað krabba-
mein, ef því er dælt í tilraunadýr. Þetta er
að vísu ekki alveg hliðstætt reykingum, en
þeir sem reykja ofan í sig sem kallað er, fá
þó ekki aðeins heitan reykinn á slímliúðina
4
Röntgenmynd eftir að berið hefur verið numið burt
með operation.
í lungnapípunum, lieldur einnig mikið af
sótkornum. í reyknum og sótinu eru fjöl-
mörg efni, sem hvert um sig eða samverk-
andi gætu valdið eða flýtt fyrir myndun og
vexti krabbameins. Mest hefur verið rætt
um efnin benzpyrene og polonium. Talið
er, að ekki sé veruleg hætta á kxabbameini,
fyrr en viðkomandi hefur reykt í 10—15 ár
a. m. k.
íslendingar urðu heldur seinni til en
ýrnsar aðrar jrjóðir að auka við sig reyking-
ar, en nú orðið reykja jreir mjög mikið. Á
tímabilinu 1910—1949 rúmlega hundrað-
faldaðist vindlinganeyzla hér á landi. (1910
voru flutt inn 1258 kg af vindlingum, en
1949 129100 kg og neyzla hvers íbúa var
1913 0,03 ensk pund, en 1947 1,30 ensk
pund) og síðustu árin hafa reykingar aukizt
jafnt og þétt.
1 dagblöðunum höfum við lesið þær
hörmulegu staðreyndir, að 30—50% nem-
enda í sumum barna- og unglingaskólum
höfuðborgarinnar reyki.
Það er góðra gjalda vert, að heilbrigðis-
FRf'TTABRÉF UM HEILBRIGRISMÁL