Heilbrigðismál - 01.01.1964, Qupperneq 7

Heilbrigðismál - 01.01.1964, Qupperneq 7
Við lungnaoperation i Landspitalanum. stíflunni og út að yfirborði lungans, þar safnast saman slírn, sýklar ná yfirhöndinni og valda bólgu. Einkennin eru alveg hin sömu og við venjulega taksótt, svo sem hiti, hósti, upp- gangur, mæði og verkur, og er því ofur eðli- legt og raunar nauðsynlegt, að læknar gefi þessum sjúklingi sýklaeyðandi lyf, og oft hverfa einkennin á nokkrum dögum og sjúklingurin virðist albata, en algengt er, að nokkrum vikum eða mánuðum síðar fái sjúklingurinn lungnabólgu á ný, ef um krabbamein er að ræða. Hjá öllum mið- aldra og eldri sjúklingum er því skynsam- legt — og raunar sjálfsagt — að láta taka röntgenmynd af lungum að afstaðinni lungnabólgu, einkum ef batinn er óeðlilega hægfara og sérstaklega verður að vera vel á verði, ef um síendurteknar lungnabólgur er að ræða. Stundum lýsa sjúklingar sérkennilegu pípi eða flautuhljóði, sem þeir heyra öðru megin í brjóstroli, bundið við öndun og alltaf á sama stað. Þetta hljóð táknar ævin- lega þrengsli i lungnapípu og stafar oft af æxli, sem þar fer smá stækkandi. Enginn glöggur læknir lætur þetta einkenni fram lijá sér fara. Mæði er ekki algeng í byrjun sjúkdóms- ins, en verður það þegar frá líður, og stafar þá af bólgum, stífluðum lungnapípum, eða að æxlið er orðið mjög útbreitt í lunganu. Einnig getur verið kominn vökvi í brjóst- holið, sem myndast gjarna fljótt, ef æxlið vex utarlega í lunganu eða meinvörp frá æxlinu koma í brjósthimnuna. Þyngslaverk- ur fylgir oft stíflu í lungnapípu og vægur takverkur getur stafað af bólgunni einni, ef um lítið æxli er að ræða, en sár og stöðugur verkur táknar oftast, að um er að ræða stórt æxli, sem búið er að vaxa lengi, og ef verk- urinn er mjög sár, þá er æxlið oft vaxið út í brjósthimnu eða hryggjarliði. Meinvörp frá lungnakrabba koma einnig oft í heila, fréttabréf um heilbrigbismál 7

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.