Heilbrigðismál - 01.01.1964, Side 15

Heilbrigðismál - 01.01.1964, Side 15
Lungu stórborganna Maðurinn getur liíað án matar í 5 vikur og vatnslaus í 5 daga, en hann getur ekki lifað í 5 mínútur án andrúmsloftsins. Af þessu má vera augljóst, að andrúms- loftið er miklu þýðingarmeira en matur og drykkur. Á hverjum degi ævinnar frá vöggu til gxafar notar maðurinn allt að 10 rúm- metra andrúmslofts, eða í kringum 15 kg lofts. Miklum tíma og fjármunum var eytt í að tryggja hreinlæti í matargerð, og öruggt drykkjarvatn var beinlínis undirstaða heil- brigðisframfara nútímans. Á seinni árunr hefur mönnum orðið bet- ur og betur ljóst hveija þýðingu hefur fyrir heilbrigðina að eiga kost á hreinu andrúms- lofti, en í þessurn efnum eins og mörgum öðrum fundu menn ekki, hvað Jreir höfðu átt, þar sem var hreint andrúmsloft, fyrr en þeir höfðu misst Jrað. Urgangur brennsluefna í kynditækjum húsa, vélum verksmiðja og farartækja ausa ólyfjan út í andrúmsloftið í vaxandi mæli. í heimsins hreinustu borg, Reykjavík, er þetta vandamál farið að segja til sín vegna hinnar ört vaxandi bílaumferðar. Það er heldur ekki mikið gert til að hvetja menn til að hafa brennslutækin í bííunum í lagi. Það er ekki óalgengt að sjá bílana, jafnvel stærtisvagnana spúa kolsvört- um reykjarmekki yfir vegfarendur. Það væri raunar engu minni ástæða til að taka slíka bíla úr umferð heldur en Jrá hemla- lausu. Þessi mál Jrarf að taka fastari tökum. En á einu sviði er Reykjavík Jró enginn eftirbátur framsæknustu borga erlendra — og á ég þar við hina fögru skrúðgarða borg- arinnar. Grónum opnum svæðum í borginni hef- ur verið líkt við lungu og vissulega má Jrað til sannsvegar færa, og það í fleiru en einu tilliti. Við skulum aðeins líta á eina hlið þess máls, verksmiðjurekstur grænu blað- anna. í grænu blöðunum eru grænukorn, sem geta með aðstoð sólarinnar breytt hinni banvænu kolsýru í næringarefni svo sem mjölva og sykur, og skilað aftur hinu lífgef- andi súrefni, sem er undirstaða alls æðra lífs liér á jörðu. Það er víða hægt að veita fljótandi verksmiðjuúrgangi og öðru skolpi í lokræsi, sem leidd eru út í haf víðsfjarri mannabú- stöðum, en Jrar sem slík lokræsi liggja í fljót eða á grunnsævi er víða fyrirskipað að gjör- hreinsa og jafnvel sótthreinsa skólpið áður en Jrví er sleppt rit í árnar. Hversu miklu meiri ástæða væri Jró ekki tli að halda andrúmsloftinu hreinu, með Jrví að gera viðeigandi ráðstafanir í sam- bandi við útblástursloft og reyk farartækja og verksmiðja. Því fleiri lallegir og vel ræktaðir grænir «. Jurt i lokuöu hylki deyr von bráðar. b. Dýr i lokuöu hylki dcyr fljótt. c. Jurt og dýr i lokuðu hylki lifa. Jurtin framleiÖir súrefni handa dýrinu og dýrið Itlosýru fyr- ir jurtina, og pannig hjálpa jurl og dýr hvort ööru. Þannig er hring- rásin i riki náttúrunnar. FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGF3ISMÁL 15

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.