Heilbrigðismál - 01.12.1995, Blaðsíða 15

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Blaðsíða 15
Kesara Anamthawat Jónsson (RALA) menna að gera! Aðferðirnar eru margvíslegar, en í stórum dráttum má greina á milli aðferða annars vegar þar sem frumur eru með- höndlaðar utan líkamans og komið aftur fyrir í líkamanum (þetta er t.d. hægt að gera með blóð og mergfrumur) og hins vegar þar sem meðferð fer fram í líkama sjúklings. Oft er talað um mun á meðferð á líkamsfrumum og með- ferð á kynfrumum. Genalækningar á líkamsfrumum erfast alls ekki til næstu kynslóðar og eru því ekki ólíkar öðrum lækningaaðferðum hvað það snertir. Aðeins breytingar á kynfrumum gætu erfst. Breyting- ar á kynfrumum eða fósturvísum eru að flestra mati fráleitar frá sjón- armiði skynsemi og siðfræði. Að- eins örfáir fræðilegir möguleikar eru til dæmis á því að breyting á kynfrumum væri eina leiðin til að foreldrar gætu átt eðlilegt barn. Samt eru það vangaveltur um slík- ar aðgerðir sem vekja mesta at- hygli. Er til dæmis hægt að búa til mann með ákveðna eiginleika? Fyrsta alvarlega tilraun til gena- lækninga í mönnum var gerð árið 1990. Reynt var að lækna sjaldgæf- an galla í virkni ónæmiskerfisins, sjúkdóm sem kallast SCID (severe combined immunodeficiency). Meðferð á þessum sjúkdómi hefur tekist í að minnsta kosti tveimur til- fellum, en árangur genalækninga almennt hefur enn sem komið er verið minni en menn höfðu vonað. Einnig hefur tekist að sýna fram á einhverja lækkun á kólesteróli í blóði sjúklings með arfgenga hækk- un kólesteróls og veruleg bata- merki hjá nokkrum krabbameins- sjúklingum, sem meðhöndlaðir hafa verið með mismunandi að- ferðum genalækninga. Rétt er að benda á að aðferðir sem beitt er við genalækningar á krabbameini eru aðallega óbeinar, t.d. aðgerðir sem auka virkni lyfja eða örva ónæmis- viðbrögð. Um þessar mundir unnið að rúmlega 100 viðurkenndum til- raunum til genalækninga á mönn- um. Það er athyglisvert að lang- flestar tilraunirnar beinast að krabbameini (60%), færri beinast að erfðagöllum (25%) og nokkrar að eyðni o. fl. Genalækningar á mönnum eru enn á frumstigi en unnið er að miklum fjölda slíkra rannsókna með dýratilraunum. Fengist er við ýmsa sjúkdóma og framfarir eru örar. Forvarnir eða lækning? Oft er haft á orði að betra sé að geta komið í veg fyrir sjúkdóma en að þurfa að lækna þá. Hvað snertir erfðalæknisfræði þýðir þetta oftast það sama og að koma í veg fyrir að einstaklingar með ákveðna erfða- galla fæðist. Þá er spurningin hve langt á að ganga. Við getum ef til vill orðið sammála um alvarlega sjúkdóma þar sem ekki er um neina lífsmöguleika að ræða, en hvað með dreyrasýki, sem nú er hægt að meðhöndla, hvað með Á þessari íslensku mynd af Iitn- ingum í krabbameinsfrumu litast litningur númer 3 rauður og litn- ingur númer 17 grænn. í eðlilegri frumu eru tveir litningar af hverri gerð en hér eru þeir fleiri og sumir stærri. Myndin er tekin með flúr- ljómunartækni. genabreytingar sem auka líkur á brjóstakrabbameini um fimmtugt? Okkur er mishætt við að fá hina ýmsu sjúkdóma. I sumum fjöl- skyldum eru hjartasjúkdómar al- gengir, í öðrum ákveðin krabba- mein eða gigt. Við erfum ákveðið erfðamynstur sem getur gert okkur viðkvæmari fyrir einhverjum um- hverfisáhrifum og ef til vill þolnari gegn öðrum. Hvort við fáum ákveðinn sjúkdóm eða ekki getur þannig ákvarðast af samspili margra þátta, bæði erfða og um- hverfis. Því fer fjarri að hægt sé að spá al- mennt fyrir um heilsufar fólks á komandi árum með því skoða erfðaefni nýfædds einstaklings eða fósturs. Það felast miklir möguleik- ar í erfðarannsóknum og erfða- tækni en virðingin fyrir manninum verður að vera í fyrirrúmi. Jðrunn Erla Eyfjörð sameindaerfða- fræðingur, D. Phil, starfar á Rann- sóknastofu í sameinda- og frumulíf- fræði hjá Krabbameinsfélagi íslands. Grein þessi er að hluta byggð á erindi sem Jórunn flutti á Heilbrigðisþingi 1995. HEILBRIGÐISMAL 4/1995 15

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.