Heilbrigðismál - 01.12.1995, Blaðsíða 7

Heilbrigðismál - 01.12.1995, Blaðsíða 7
Skynjarar fyrir kolsýring Ekki er lengur deilt um ágæti reykskynjara, en ný viðvörunartæki eru komin á markað vestanhafs. Það eru skynjarar sem gefa til kynna með hljóðmerki ef kolsýringur í andrúms- lofti fer yfir hættumörk. Þeir kosta frá 3.000 krón- um. Sem kunnugt er mynd- ast þessi litarlausa og lyktarlausa lofttegund við bruna efna sem kol- efni er í. Kolsýringur binst auðveldar en súr- efni við blóðrauða og getur kolsýringseitrun valdið dauða. Sérstakrar varúðar ber að gæta þar sem olía eða gas er notað til upphitunar og ef loft- ræsting er ófullnægjandi. Einnig er ástæða til að varast útblástur frá bílum og öðrum tækjum. Health, september 1995. Feitur matur og flugveiki Flugmenn hafa ekki orð á sér fyrir að vera oft flugveikir, en þegar reyndir bandarískir flug- menn voru spurðir við- urkenndu 29% að það hefði valdið þeim vand- ræðum. Við háskólann í Norð- ur-Dakóta voru neyslu- venjur flugmanna kann- aðar. Þeir sem borðuðu fituríkan mat, mjólkuraf- urðir eða saltan mat sfð- ustu þrjár stundir fyrir flugtak urðu oftar flug- veikir en þeir sem fengu sér hollari fæðu. Prevention, desember 1995. Alvarlegum umferðar- slysum fjölgar um helm- ing við hverja 10-15 kíló- metra sem hraði öku- tækja eykst þegar komið er yfir 80 kílómetra hraða á klukkustund, segir í American Medical News. Það er því ekki að undra að heilbrigðisyfirvöld hafi áhyggjur af því að nú er rætt um að leyfa fylkis- stjórnunum að ákveða hámarkshraða, sem hef- ur fram að þessu verið samræmdur af alríkis- stjórninni. Myndin er af slysstað við hraðbraut í Nýj u-Mexíkó. Hjartað í hættu „Þrjú af hverjum fjór- um hjartaáföllum reyk- ingamanna á aldrinum frá þrítugu til sextugs má rekja til reykinga," segir Richard Peto hjá krabba- meinsrannsóknastofnun- inni í Oxford í Englandi. Hann byggir þessa stað- hæfingu á nýrri rannsókn sem sýndi að það er ekki rétt að reykingar skaði aðeins fólk á efri árum. Á fertugsaldri eru reyk- ingamenn í sex sinnum meiri hættu en aðrir á að fá hjartaáfall. Þetta er ekki eini lífs- hættulegi sjúkdómurinn sem tengist reykingum. Þeir eru að minnsta kosti á þriðja tug talsins, að sögn Peto. American Heálth, nóvember 1995. Reykleysi vestanhafs • Allir 3600 veitingastað- ir skyndibitakeðjunnar Dunkin Donuts eru orðn- ir reyklausir og kunna viðskiptavinirnir vel að meta það. • Fyrir einu ári voru 100 veitingastaðir í New Jersey reyklausir. Nú eru þeir orðnir 400. • Öll fangelsi í Texas og Kaliforníu eru orðin reyklaus. Roykfritt, september 1995. Fábrotin fæða og færri ár Fjölbreytni í fæðuvali er einn af þeim þáttum sem næringarfræðingar hafa lagt áherslu á í boð- skap sínum til almenn- ings. Nú hefur gildi þessa verið áréttað í bandarískri rannsókn sem sýndi að þeir sem borða fábrotna fæðu lifa skemur en aðrir. Skýring- in er að nokkru leyti sú að þeir sem lifa á ein- hæfri fæðu sleppa gjarn- an grænmeti og ávöxt- um, sem geta skipt sköp- um varðandi hollustu máltíðarinnar. Prevention, nóvember 1995. Gott að hafa gæludýr Börn eru á 35% banda- rískra heimila en gælu- dýr á 58% heimila. Ekki skal efast um þá lífsfyll- ingu sem fylgir uppeldi barna en fullyrt er að nærvera gæludýra styrki sjálfsímynd eigandans og þegar hann strýkur ketti sínum eða hundi veitir það slökunaráhrif. Það kemur eflaust mörgum á óvart að rann- sóknir sýna að gæludýra- eigendur eru með lægri blóðþrýsing og minni blóðfitu en aðrir, þurfa sjaldnar að leita læknis og eru fljótari að ná sér eftir sjúkdóma. American Health, september 1995. Bestu vinir mannsins bæta heilsufar hans. HEILBRIGÐISMÁL 4/1995 7

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.