Heilbrigðismál - 01.03.1996, Blaðsíða 26

Heilbrigðismál - 01.03.1996, Blaðsíða 26
„Reyhtu“ með áskrift að spariskírteinum Ef þú átt erfitt með að stíga fyrsta skrefið og hefja reglulegan sparnað með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs, skaltu líta á sparnaðinn eins og hver önnur útgjöld. Sá sem reykir virdist alltaf eiga peninga til að kaupa sígarettur. Það ætti því að vera jafn auðvelt fyrir þann sem vill spara að verja ákveðinni fjárhæð í reglulegan sparnað. Ef þú getur eytt, geturðu líka sparað. Þú getur til að mynda „reykt pakka á dag með áskrift" með því að leggja fyrir andvirði sígarettupakka í reglulegan sparnað (sumir „reykja" tvo pakka á dag). Það þarf enginn að efast um hvor þessara „reykinga" eru hollari, en með því að tengja sparnaðinn á þennan hátt við daglega neyslu verður oft auðveldara að stíga fyrsta skrefið og byrja að spara reglulega Sparnaður er ekki andstæða neyslunnar, heldur eðlilegur hluti hennar og þegar upp er staðið er jafn auðvelt að spara eins og að eyða. Byrjaðu að spara strax í dag með áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs. Það þarf bara eitt símtal til að byrja - að spara! Áskriftarsíminn er 562 6040 og 800 6575 (sem er opinn allan sólarhringinn). Áskrift er lífstíll

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.