Heilbrigðismál - 01.03.1996, Blaðsíða 7
Vanlíðan í vinnunni er
oft rakin til efna í inn-
réttingum á skrifstofum
eða frá tækjum eins og
ljósritunarvélum. Þeir
sem vinna mikið við
tölvur ættu að athuga
enn eina orsök: Augn-
þreytu. í tímaritinu
Prevention er sagt að
langar setur við tölvu-
skjái geti valdið höfuð-
verk. Bæta má úr þessu
með því að fá sér gler-
augu sem eingöngu eru
notuð þegar unnið er
við tölvur. Þetta getur
einnig átt við þá sem
þurfa ekki að nota gler-
augu af öðrum ástæðum.
Konur halla sér
að flöskunni
Áfengisneysla banda-
rískra kvenna er vaxandi
vandamál og er álitið að
fjórar milljónir kvenna
þar í landi misnoti áfengi
eða séu háðar því. Af-
leiðingar áfengisneyslu,
heilsufarslegar og fé-
lagslegar, eru taldar al-
varlegri meðal kvenna en
karla.
Konur eru næmari en
karlar fyrir áhrifum
áfengis, þær verða ölv-
aðar af minni drykkju og
eru líklegri sem fórnar-
lömb ofbeldis. Þunglyndi
er mun oftar fylgifiskur
áfengisneyslu hjá konum
en körlum og þarf að
hafa það í huga þegar
áfengismeðferð er beitt.
American Medical News,
tttars 1996.
Sjúkleg
sóldýrkun
I Bretlandi hefur þess
orðið vart að ungar kon-
ur fari svo oft í ljósa-
bekki að líta má á það
sem áráttuhegðun eða
jafnvel fíkn. Þeim finnst
að þær verði að fara í
ljós þó að stutt sé síðan
þær fóru síðast, jafnvel
aðeins nokkrar klukku-
stundir. Þessu hefur ver-
ið líkt við lystarstol (an-
orexíu) og nefnt tanor-
exía, sem þýða mætti
sem brúnkubrjálæði.
Cosmopolitan,
maí 1996.
Fita truflar sjón
Það sem er hættulegt
fyrir hjartað getur einnig
verið slæmt fyrir sjónina.
Svo virðist sem samband
sé milli fituneyslu og
byrjunarstigs ellirýrnunar
í miðgróf sjónu (macular
degeneration) en hún er
ein algengasta orsök
blindu á Vesturlöndum.
Þeir sem borða mikla
mettaða fitu eru í nær
tvöfaldri hættu á að fá
þennan augnsjúkdóm,
samanborið við aðra.
Tóbaksreykur eykur einn-
ig hættu á sjúkdómnum
en neysla grænmetis og
ávaxta vinnur gegn hon-
um.
Harvard Health Letter,
desettiber 1995.
Prevention,
janúar og tttars 1996.
Fitulaus fita
Koffeinlaust koffein
kom á markað árið 1895,
sykurlaus sykur 1957,
rjómalaus rjómi 1963,
beikonlaust beikon 1969
- og fitulaus fita 1996.
Þessi gervifita, sem
nefnd er Olestra, hefur
nýlega hlotið náð fyrir
augum bandaríska mat-
væla- og lyfjaeftirlitsins
en verður fyrst í stað að-
eins leyfð í snakk svo
sem kartöfluflögur. Mat-
væli með nýju fitunni
bragðast eins og venjuleg
fita hafi verið notuð, en
hitaeiningarnar eru mun
færri vegna þess að fitan
er þannig gerð að hún
berst gegnum meltingar-
veginn án þess að meltast.
Verða kartöfluflögur
framtíðarinnar steiktar
úr fitulausri fitu?
Neysla ávaxta sem eru
ríkir af C-vítamíni virð-
ist flýta fyrir bata eftir
hjartaáfall. Þetta sýnir
indversk rannsókn sem
greint er frá í tímaritinu
Prevention.
Sérfræðingar leggja þó
áherslu á að eina leiðin
til að halda sér í eðlileg-
um holdum sé að borða
ekki of mikið og hreyfa
sig nægilega mikið.
Tittte, janúar 1996.
American Health,
apríl 1996.
Ferskt eða
frosið?
Er ferskt grænmeti
hollara en frosið? Það
þarf ekki að vera.
Ferskt grænmeti getur
verið marga daga á leið-
inni á borð neytenda en
frosið grænmeti er hins
vegar yfirleitt fryst
meðan það er alveg nýtt.
Það er því fullt af
næringarefnum við fryst-
ingu og tapar þeim lítið
við þá geymsluaðferð. Af
svipuðum ástæðum er
niðursoðið grænmeti
heldur ekki slæmur kost-
ur.
í rannsókn sem gerð
var í Illinois í Bandaríkj-
unum sást ekki merkjan-
legur munur á beta-
karótíni, C-vítamíni og
níasíni eftir því hvort um
var að ræða hrátt, frosið
eða niðursoðið grænmeti.
Medical Tribune Nezvs Service,
jútú 1996.
Men's Health, júní 1996.
HEILBRIGÐISMÁL 1/1996 7