Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 18

Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 18
Sigurður Stefán Jónasson Heilbrigði og hamingja Getur ofurtrú á heilbrigði torveldað mönnum sýn á lífið og tilveruna? Grein eftir Stefán Hjörleifsson Menningaráhrif af læknisfræðilegum hugsunarhætti Sérhvert samfélag er nokkurs konar hlutafélag um verðmæti. Við deilum gæð- um náttúrunnar, eigum hlutdeild í andlegri þekkingu og þekkingarleit, og sköpum sið- ferðileg verðmæti og hlúum að þeim í sameiningu. Til eru verðmæti sem eru sér- eign hvers manns eða sameiginlegt áhuga- mál fárra manna. Fleira er þó sameign, og sameiginlegt gildismat manna er einn sterkasti burðarásinn í mannlegu samfé- lagi. Segja má að menningin sé samfelld tilraun til að átta sig á því hvaða lífsgæði eru í húfi í tilverunni og til að ná tökum á þeim. Menningin er með öðrum orðum forsenda fyrir því að lögð verði rækt við lífsgæðin og réttlát skipting þeirra meðal manna tryggð. Næsta ljóst er að góð heilsa eða heil- brigði er meðal þess sem flestir sækjast eft- ir. Þó er ekki að sama skapi auðvelt að henda reiður á stöðu heilbrigðisins meðal annarra gæða sem menn þarfnast og eru í hávegum höfð. Þótt ég sjái ekki frekar en aðrir til botns í því torskilda fyrirbæri sem heilbrigðið er, ætla ég að varpa fram vinnutilgátu um tengsl heilbrigðis og ann- arra gæða. I því sambandi er óhjákvæmi- legt að benda á nokkur atriði sem varða þetta hugtak. Ég vil í fyrsta lagi biðja menn að leiða hugann að því að heilbrigði er á vissan hátt forsenda lífsnautnar og hamingju. Það sem menn þurfa á að halda til að geta notið lífs- gæða er fyrst og fremst lífsandinn sjálfur, en í öðru lagi að vera við sem besta heilsu. Undir þessu sjónarhorni er heilbrigðið skil- yrði fyrir hlutdeild í verðmætum og þar af leiðandi nokkurs konar forsenda fyrir hamingju. Því má til sanns vegar færa að heilbrigðið sé frumgæði sem menn hafi rík- ari þörf fyrir en öll önnur verðmæti. Þetta viðhorf til heilbrigðis segir þó ekki allan sannleikann. Vanheill maður getur vissulega átt hlutdeild í ýmsum lífsgæðum og kann jafnvel að vera sælli en sá sem býr við góða heilsu. Þótt líklega sé sjaldgæft að þeir séu hamingjusamir sem þjást af alvar- legum veikindum, og þótt góð heilsa sé forsenda fyrir ýmsu sem menn takast á hendur, veitir heilbrigðið enga tryggingu fyrir því að athafnir manna færi þeim ham- ingju. Hér virðist vera um þversögn að ræða. Heilbrigðið er drjúgur þáttur í því sem við sækjumst eftir í leit okkar að hamingjunni. Þó er engin trygging fyrir því að sá sem er heill heilsu sé jafnframt hamingjusamur. Hamingjan á það jafnvel til að heiðra hinn sjúka mann með nærveru sinni, þótt eng- inn telji hann öfundsverðan af hlutskipti sínu. Tilgáta mín er sú að hugsjónir manna um heilbrigðið séu með þeim ósköpum gerðar að sérstakrar aðgátar sé þörf til að forða því að þær ryðji úr vegi ýmsum verðmætum sem nauðsynleg eru í lífi mennskra manna. Þetta er ofureinfalt - og margir hafa haft orð á þessu á undan mér. Ef einblínt er á lífsmörkin - á hjartsláttinn og blóðþrýstinginn, sem gjörgæslutækin mæla - á lífshorfurnar - á ævilengdina og faraldsfræðina, sem landlæknarnir mæla - og á tæknibrögðin sem beitt er til að halda mönnum á lífi, er hætta á að menn missi Þótt líklega sé sjaldgæft að þeir séu hamingju- samir sem þjást af alvarlegum veik- indum, og þótt góð heilsa sé forsenda fyrir ýmsu sem menn takast á hendur, veitir heilbrigðið enga tryggingu fyrir því að at- hafnir manna færi þeim hamingju. 18 HEILBRIGÐISMÁL 1/1999

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.