Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 23

Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 23
jarðneskt og áþreifanlegt og sérfræðingarn- ir koma í stað guðs. Hlutverk sérfræðing- anna er að uppræta þjáninguna - þeir leysa sérhvern vanda. Það þýðir að allt sem veldur mönnum áhyggjum eru „læknis- fræðileg vandamál". Meira að segja sá vandi sem erfiðast virðist vera að uppræta úr mannlífinu, það er að segja dauðinn sjálfur, er að öllu leyti í lögsögu sérfræð- inganna. Þótt dauðinn hafi ekki verið upp- rættur enn, hefur hann að mestu leyti verið einangraður - hann er læknisfræðilegt fyr- irbæri og á sér oftast stað á þar til gerðum stofnunum, svo að segja ósýnilegur al- menningi. Heilbrigðistrúin hefur jafnframt þann kost að hún gerir einstaklinginn að mið- punkti allrar athygli. Þegar ég gengst undir læknisskoðun skipta veikindi mín og heilsa mín meginmáli. Þrátt fyrir allan þann munað og frelsi sem nútíminn hefur uppá að bjóða, er innsta eðli einstaklingsins sjaldan sýnilegt öðrum mönnum. Tilveran er full af skrifuðum og óskrifuðum reglum sem valda því að fjarlægðin milli manna er raunverulega mikil. Menn eru alltaf einir síns liðs að leika eitthvert hlutverk. Þess vegna líður okkur aldrei betur en þegar við getum baðað okkur í athygli þeirra sem þjónusta okkur og hugga í heilbrigðis- og umönnunargeiranum. Auglýsingar um hreinni tennur, þynnri dömubindi og stærri vöðva, þunglyndi, fæðingarbletti, brjóstaskoðun og beinþynningu hafa þann ótvíræða kost fyrir móttakandann að hon- um er sýnd athygli, einhver lætur sig vel- ferð hans skipta og tekur ímynduð eða raunveruleg vandamál hans alvarlega. Og hjá lækninum get ég leyst frá skjóðunni. Hlutverk læknisins er að hjálpa mér og milli okkar ríkir trúnaðarsamband. Eg get slakað á kröfunum og komið til dyranna eins og ég er klæddur - þreyttur, óttasleg- inn eða einfaldlega í örvæntingarfullri leit að athygli. Heilbrigðistrúin virðist gegna stóru hlut- verki í tilraunum manna til að koma á jarðnesku þúsundáraríki. Trúin á að hægt sé að móta fyrirmyndarsamfélag með póli- tískum aðgerðum er í fyrsta lagi undir því komin að til séu markmið sem eru skyn- samleg og eftirsóknarverð fyrir alla, en í öðru lagi að til séu tæknilegar leiðir til að ná þessum markmiðum. Mörgum virðist sem æðstu gildi heilbrigðistrúarinnar upp- fylli þessi skilyrði. Á dögum iðnbyltingar- innar, þegar borgir uxu hraðar en áður, var nýrri þekkingu á smitsjúkdómum og nær- ingarfræði beitt með góðum árangri til að skipuleggja hreinlæti og mataræði í borg- Heilbrigðistrúin virðist gegna stóru hlutverki í tilraunum manna til að koma á jarðnesku þúsundáraríki. Læknar eru betur þjálfaðir sem tæknimenn en nokkrir fyrir- rennarar þeirra, en gegna í raun hlutverki æðstupresta í óopinberum trúarbrögðum samfélagsins. um. Allar götur síðan hafa menn lifað í voninni um heilbrigða og hamingjusama þjóðarsál í hraustum þjóðarlíkama. Að svo miklu leyti sem þessi lýsing á heilbrigðistrú nútímans á við rök að styðj- ast, þykir mér illa vera komið fyrir sjálfum mér og öðrum ungum læknum. Við erum betur þjálfaðir sem tæknimenn en nokkrir fyrirrennarar okkar, en gegnum í raun hlutverki æðstupresta í óopinberum trúar- brögðum samfélagsins. Okkur er kennt að mæla sjúklinginn út og taka vandamál hans tæknilegum tökum, en samfélagið og jafnvel sjúklingurinn sjálfur ætlast til þess að við hjálpum honum við að höndla ham- ingjuna. Ekki nóg með það, heldur eru heilbrigðisfræðin talin veita haldbestu svörin við því hvernig samfélagið skuli skipulagt. Mér virðist því vera hróplegt ósamræmi milli menntunar minnar og þess hlutverks sem læknavísindin gegna í sam- félagi okkar. Þótt það kitli vissulega hé- gómagirndina að fá tilboð um svo glæsi- legt hlutverk, er ég hræddur um að hlut- verkið sé hverjum manni ofviða og engum í hag að þessi tvískinnungur sé látinn við- gangast. En einmitt vegna þess að við dýrkum öll heilbrigðistrúarbrögðin hlýtur svona tal að hljóma eins og guðlast. Stefán Hjörleifsson lauk BA prófi í heimspeki frá Háskóla íslands árið 1992 og læknanámi í Björgvin í Noregi í vetur. Þetta er hiuti afgrein sem birtist í hausthefti Skírnis 1998. HEILBRIGÐISMÁL 1/1999 23

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.