Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 25

Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 25
Reykingar grunnskólanema hafa heldur verið að aukast - samkvæmt nýrri könnun héraðslækna Um 7,8% grunnskólanema á aldrinum 12-16 ára reykja daglega, samkvæmt könnun sem héraðs- læknar gerðu í fyrravor í samvinnu við Krabbameinsfélag Reykjavíkur og með stuðningi Tóbaksvama- nefndar. Þetta er aukning um 0,6% frá því fjórum árum áður. í Reykja- vík var hlutfallið 8,6% árið 1998 en hafði verið 22,8% árið 1974. Könnunin, sem gerð var í aprfl- mánuði 1998, náði til rúmlega tutt- ugu þúsund nemenda um land allt og var sambærileg við kannanir sem gerðar hafa verið á fjögurra ára fresti, á landsvísu síðan 1990 og í Reykjavík síðan 1974. Helstu niðurstöður fyrir landið í heild sýna að nú reykja 8,2% pilta og 7,4% stúlkna, og er þá miðað við daglegar reykingar í aldurshópn- um 12-16 ára. Ef allar reykingar eru taldar hækkar hlutfallið í 11,2% pilta og 11,6% stúlkna. Það sýnir að Samanburður á reykingum 12-16 ára grunnskólanema Daglegar reykingar 1990 1994 1998 Reykjavík 6,4% 8,2% 8,6% Vesturland 5,2% 5,7% 6,0% Vestfirðir 8,2% 7,2% 5,4% Norðurland vestra 2,9% 5,5% 7,7% Norðurland eystra 2,1% 4,4% 5,8% Austurland 6,2% 3,2% 4,6% Suðurland 4,2% 7,8% 7,2% Reykjanes 6,7% 8,6% 9,4% Állt landið 5,6% 7,2% 7,8% Allar reykingar 1990 1994 1998 Reykjavík 10,7% 11,8% 13,1% Vesturland 8,0% 9,6% Vestfirðir 8,3% 7,9% Norðurland vestra 7,6% 10,9% Norðurland eystra 6,6% 8,9% Austurland 5,9% 8,0% Suðurland 12,4% 10,3% Reykjanes 11,5% 12,6% Állt landið 10,3% 11,4% stúlkur fikta við reykingar fremur en piltar. Mest er um daglegar reykingar á þessum aldri á Reykjanesi (9,4%) og í Reykjavík (8,6%), síðan kemur Norðurland vestra (7,7%), Suður- land (7,2%), Vesturland (6,0%) og Norðurland eystra (5,8%). Minnst er reykt á Austurlandi (4,6%) og á Vestfjörðum (5,4%). Frá könnuninni fjórum árum áður höfðu reykingar aukist í öllum kjördæmum nema á Vestfjörðum og Suðurlandi. Af einstökum kaupstöðum koma Bolungarvík, Eskifjörður og Ólafs- fjörður best út, þar reykja dag- lega aðeins 2,5% nemenda á aldr- inum 12-16 ára. Hins vegar er ástandið verst á Selfossi (14,0%), í Hafnarfirði (13,1%) og á Sauðár- króki (12,9%). í Strandasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu sögðust engir unglingar reykja daglega en mest var reykt í Norður-Þingeyjar- sýslu (12,5%) og Gullbringusýslu (12,2%). Eins og gefur að skilja er meira um reykingar í eldri aldurshópun- um heldur en þeim yngri. Innan við 1% tólf ára nemenda reykja daglega en 18% þeirra sem eru sex- tán ára. Fleiri piltar en stúlkur reykja í öllum aldursflokkum nema þeim elsta. Nú reyndist nær annað hvert heimili reyklaust, það er að segja að hvorki nemendur né aðrir heimilis- menn reyktu. Vorið 1998 átti þetta við um 48% heimila nemenda á aldrinum 10-16 ára, miðað við allt landið. Fjórum árum áður var hlut- fallið 44% og enn lægra áður, sem sjá má af því að árið 1974 var þetta hlutfall 17% í Reykjavík. Ástandið í reykingamálum virðist því fara batnandi að þessu leyti þó að reyk- ingar nemenda hafi heldur verið að aukast um skeið. -jr. HEILBRIGÐISMÁL 1/1999 25

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.