Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 31

Heilbrigðismál - 01.03.1999, Page 31
í góðum félagsskap Fælni (phobia) er einn algengasti geðræni kvillinn. Islenskar rannsóknir sýna að um tólf þúsund manns eru með fælni á svo háu stigi að það hái þeim verulega í lífi og starfi. Flughræðsla (avio- phobia) er ein tegund af fælni og virðast sterk tengsl milli hennar, lofthræðslu og innilokunarkenndar. Fjórða hver íslensk kona og tí- undi hver karl segjast alltaf eða oft finna til hræðslu eða ótta við að fljúga. Flestir eru slegnir ótta þegar flugvél lætur illa á flugi vegna ókyrrðar í lofti en einnig valda flugtök og lendingar ótta hjá mörg- um. Af þekktu erlendu fólki sem er flughrætt má nefna söngkonurnar Cher og Arethu Franklin, tónlistarmanninn Michael Jackson, leik- konuna Glendu Jackson, knattspyrnumanninn Dennis Bergkamp og hnefaleikakappann Muhamed Ali. Nokkrir íslenskir landsliðsmenn í íþróttum hafa lýst því að þeim sé illa við að fljúga og nýlega sagð- ist þekktur tónlistarmaður kjósa heldur áætlunarbíl en flugvél til ferðalaga milli landshluta. indum sem fylgja löngum ferðalög- um. Að lokum má mæla með því að fara í heitt bað á ákvörðunarstað, að minnsta kosti fyrsta kvöldið, til að ná góðum svefni. Nokkur lykilatriði Til að ná tökum á flughræðsl- unni er gott að átta sig á nokkrum atriðum þegar verið er að undirbúa flugið, komast um borð í flugvél- ina, meðan á flugi stendur og eftir að komið er heim úr fiugi. Við undirbúning flugsins verður hinn flughræddi að vera ákveðinn að reyna sitt besta til að forðast ótt- ann og mæta neikvæðri hugsun með rökrænni og jákvæðri afstöðu. Á leið í flugvélina og við flugtak skiptir máli að ætla sér að slaka á og beina athygli hugans að ein- hverju sem stuðlað getur að því. Hafa má í huga að hræðslutilfinn- ing og kvíði fjarar alltaf út. Meðan á flugi stendur er rétt að vænta hins besta vegna þess að það eru hverfandi líkur á því að það sem fólk óttast muni eiga sér stað. Gott er að fylgjast með því sem er að gerast inni í vélinni og heita sjálfum sér því að takast á við erfið- leika hvað sem á dynur. Ágætt er að hafa í huga að flugmennirnir hafi jafn mikinn áhuga á að komast á ákvörðunarstað og farþegarnir. Að loknu flugi má líta yfir farinn veg, leggja á minnið það sem vel tókst og lofa sjálfum sér að gera betur næst. Þess má geta að hér á landi hafa verið haldin námskeið fyrir flug- hrætt fólk. Tveir sálfræðinemar unnu verkefni þar sem árangurinn var metinn. Haft var samband við þá sem setið höfðu námskeiðin og spurt um atferli tengt flugi þann tíma sem liðinn var frá því nám- skeiðinu lauk. Kannaður var árang- ur af námskeiðunum, bæði til skamms tíma og lengri tíma. Reyndist hann mjög góður. Heimildir: 1. Eiríkur Örn Arnarson og Ása Guðmunds- dóttir: The Prevalence of Fear of Flying amongst Icelanders. Proceedings of the 7th International Symposium on Aviation Psycho- logy, 26.-29. apríl 1993, Ohio, USA, Vol 2, 620- 623, R.S. Jensen og D. Neumeister (Ritstj.). 2. Eiríkur Örn Arnarson, Ása Guðmunds- dóttir og Greg Boyle: Six-Month Prevalence of Phobic Symptoms in Iceland: An Epidemio- logical Postal Survey. The Journal of Clinical Psychology; 1998, Vol. 54 (2), pp. 1-9. 3. Einar Baldvin Þorsteinsson og Nanna Herborg Tómasdóttir: Hefur flugfælninám- skeiðið „Njótið þess að fljúga" langtímaáhrif? B.A. verkefni í sálarfræði. Félagsvísindadeild, Háskóla íslands, júní 1991, nr. 545. Eirtkur Örn Arnarson, Ph. D., er yfirsálfræðingur á geðdeild Landspítal- ans. Eldri greinar eftir hann í Heil- brigðismálutn fjalla um svefnleysi (3/1980), matarvenjur (2/1984), fælni (3/1984), streitu (3/1985), tímastjórn- un (3/1987), sjúkrahúsdvöl (2/1989), koffein (4/1990), lystarstol og lotu- græðgi (3/1996) og váktavinnu (2/1997). HEILBRIGÐISMÁL 1/1999 31

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.