Heilbrigðismál - 01.03.1999, Side 33

Heilbrigðismál - 01.03.1999, Side 33
Rapsolía Nýr kostur við matargerð Grein eftir Laufeyju Steingrímsdóttur Nýir og vinsælir réttir ættaðir úr öðrum heimshomum hafa orðið til að auka notkun olíu í stað smjörlík- is hér á landi því víðast hvar utan Norður-Evrópu og Ameríku er smjörlíki nær óþekkt í matargerðar- list. Þar við bætist að heilsunnar vegna er gjarnan mælt með olíum í staðinn fyrir smjör eða smjör- líki, þar sem olíumar hækka ekki kólesteról í blóði eins og flest önnur fita. Ólívuolían hollust? En olíur eru margar og mismun- andi að gerð og því vaknar óneitan- lega sú spurning hvaða olía sé best og hollust. Margir, þar með taldir vísindamenn og læknar, hafa sér- staka trú á hollustu ólívuolíu og styðjast þar við fjölda rannsókna sem sýna að með því að nota ólívu- olíu lækkar LDL-kólesteról (það vonda) en HDL-kólesteról (það góða) lækkar ekki að sama skapi. Olívuolían hefur auk þess þann ótvíræða kost að það er mikil og góð reynsla af notkun hennar. Frá alda öðli hefur ólívuolía verið helsti fitugjafi meðal Miðjarðarhafsþjóða I og eru hjartasjúkdómar fátíðir þar | sem hún er mikið notuð. Þetta á | ekki síst við í Grikklandi, þar sem | neysla olíu er meira en hálfur desi- a lítri á mann á dag, smjörneyslan Af íslenskum ættum Rapsolía er unnin úr repjufræjum en fepja er skyld rófum og fóðurkáli. Þessi planta hentar vel til ræktunar í Ranada og þar var þróað það afbrigði sem nú er notað til vinnslu matarolíu sem hefur heppilega samsetningu fitu- sýra. Frumkvöðull rannsóknanna var Raldur Stefánsson prófessor, en for- eldrar hans voru íslenskir. innan við eitt gramm á dag og smjörlíkisneyslan nánast engin. Þama er borðuð mikil fita, en hún er þeirrar gerðar að hún skaðar ekki æðakerfið. í ólívuolíu er mikið af einómett- aðri fitu en lítið af mettaðri fitu og að flestra dómi er þar fólginn helsti lykillinn að hollustu olíunnar. Auk þess er að finna heilsusamleg andoxunarefni í grænni jómfrúar- olíu. í Frakklandi er olíuneyslan hins vegar nokkuð önnur. Þar er minna notað af ólívuolíu en þess í stað eru sojaolía og sólblómaolía ríkjandi tegundir. Þessar olíur hafa að geyma meira af fjölómettuðum fitusýrum sem lækka kólesterólið, þær hafa meira af E-vítamíni en ólívuolían og þar er líka sérstök tegund ómega-3 fitusýru sem hefur greinileg vemdandi áhrif gegn hjartasjúkdómum. Allar tegundirn- ar þrjár, ólívuolía, sojaolía og sól- blómaolía, eru því hver á sinn hátt ákjósanlegur fitugjafi, ekki síst fyrir þá sem vilja halda kólesterólinu í skefjum. Rapsolían vinnur á En nú er ný tegund olíu að ná vinsældum á markaðnum bæði í Evrópu og Ameríku. Sú nefnist rapsolía á íslensku en ýmist canola eða rape-seed olía á ensku. Rann- sóknir sýna að þessi olía hefur ekki síður æskileg áhrif á kólesteról og gegn hjartasjúkdómum en fyrr- nefndar tegundir, þar sem hún sameinar ýmsa kosti ólívuolíu og sojaolíu, auk þess sem hún hefur þann ágæta kost að vera tiltölulega ódýr. Samsetning rapsolíu er óvenjuleg. Þar er ekki aðeins lítið af mettaðri fitu og mikið af einómett- aðri fitu, heldur er þar líka að finna mun meira af æskilegu fitusýrunni omega-3 en í nokkurri annarri al- gengri jurtaolíu. Þessi ágæta olía fer nú nánast sigurför um Norður- Evrópu og Ameríku, en af einhverj- um ástæðum hefur lítið farið fyrir henni í íslenskum verslunum, enda hefur hún lítið verið kynnt eða kostir hennar tíundaðir. Hins vegar er framleidd fremur óvenjuleg vara úr rapsolíu hér á landi, en það er fljótandi smjörlíki, gert úr óhertri rapsolíu. Þetta smjörlíki er gjörólíkt öðrum smjör- líkistegundum sem notaðar eru til baksturs eða steikinga. Það inni- heldur lítið af mettaðri fitu og enga trans-fitu og því er það kjörið fyrir þá sem hugsa um heilsuna en vilja nota smjörlíki í stað olíu, til dæmis í bakstur. Smörlíkið er þykkfljót- andi og því selt í brúsum en þykkt- in fæst með því að blanda þykki- efnum í olíuna í stað þess að herða fituna eins og um er að ræða í flest- um öðrum smjörlíkistegundum. Við herðingu myndast gjarnan óæskilegar trans-fitusýrur auk mettaðrar fitu og því er síður mælt með hertri fitu, sérstaklega ef fólk er með hækkað kólesteról. Fljótandi smjörlíki hentar ágætlega í ýmiss konar bakstur en er ekki ætlað til að smyrja brauð. Laufey Steingn'msdóttir er næring- arfræðingur og forstööumaóur Mann- eldisráðs. HEILBRIGÐISMÁL 1/1999 33

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.