Alþýðumaðurinn - 24.04.1996, Side 3
ALÞÝDUMAÐURINN
Miðvikudagur 23. aprfl 1996 - 3
Málefni grunnskóla á Akureyri
Risaverkefni framundan
nsestu árin
Framundan er flutningur grunn-
skóla frá rflci til sveitarfélaga.
Góðar líkur eru nú á því að það
geti átt sér stað í haust eins og að
var stefnt. Kennarar hafa komið
að nýju til viðræðna um réttinda-
mál sín. Strax í haust mun Akur-
eyrarbær taka við rekstri skólanna
að fullu. Sú sýn sem blasir við í
skólamálum í bænum er því miður
ekki með þeim hætti sem æskilegt
væri. I skólunum er unnið geysi-
lega gott faglegt starf, en það um-
hverfi sem skólunum hefur verið
skapað að hálfu hins opinbera er
því miður alls ekki með þeim
hætti sem ætti að vera. Við ein-
setningu skóla hefur verið tekin
áhætta hvað varðar húsnæði í
sumum tilfellum og það hefur
óneitanlega gert starfssemina
mjög erfiða bæði fyrir kennara og
nemendur. Lausnir munu kosta
gríðalega fjármuni. Þær fjárhæðir
munu mælast í hundruðum millj-
óna og ljóst að ekki er nokkur leið
að leysa verkefnið á þann hátt að
ætla að nota afgangs fjármagn til
lausna vandans. Akureyrarbær
verður að finna fjármagn til að
leysa vandamál sem óneitalega
eru til staðar. Það er forgangs-
verkefni að Ijúka einsetningu
skóla í bænum á skemmri tíma en
áður var áætlaður. Það misræmi
sem nú er til staðar getur leitt til
mikilla vandræða. Þeir nemendur
sem eru í skóla seinni part dags
eiga á hættu að einangrast félags-
lega. Því til viðbótar munu kenn-
ararar ekki fást til að starfa við þá
skóla sem búa við þessar aðstæð-
ur.
Samræming skólastarfs
á Akureyri
Á þessu ári er mjög brýnt að hefja
vinnu við endurskipulagningu og
samræmingu grunnskólans á Ak-
ureyri. Það verður að hverfa frá
bráðabirgðalausnum og „redding-
um“. Skólanefnd og fagfólk verð-
ur að hefja vinnu við þetta nú í
haust. Koma verður á A'innuhópi
sem tekur til umfjöllunar alla
þætti grunnskólans á Akureyri og
skili niðurstöðum um skipulag
hans sem fyrst. Að mínu mati
verður að gera róttækar breyt-
ingar á skólaskipulagi, sérstak-
lega sunnan Glerár. Neytendumir,
„börnin", verða að sitja við sama
borð hvar sem er í bænum. Það er
ekki farsælt að skólar séu með
allra handa móti. Möguleikar á
lausnum em margir og á sumum
svæðum gæti gefist tækifæri til að
koma starfi skóla í það form sem
nýjast er í grunnskólum í ná-
grannalöndum okkar. Ekki er
tímabært að ræða einstaka mögu-
leika en brýnt að ná víðtækri sam-
stöðu um lausnir.
Fjármögnun -
viðbótarfjármagn.
Er hægt að leysa þetta risaverk-
efni með fjármagni sem til fellur á
næsta ámm óbreyttu ? Svar mitt er
NEI. Framundan er bygging Gilja-
skóla. Skólanefnd hefur lagt á það
mikla áherslu að framkvæmdum
verði hraðað þar, þannig að hægt
verði að hefja kennslu í hluta
fyrsta áfanga haustið 1997. Það
hefur nú tekist og bæjarstjóm hef-
ur ákveðið að útvega viðbótafjár-
magn til verksins. Fyrsti áfangi
mun kosta 157 milljónir króna.
Fullbúinn mun Giljaskóli kosta
yfir hálfan milljarð. Uppbygging
hverfis við Verkmenntaskólann
mun setja starfsemi Lundarskóla á
ystu mörk og gæti jafnvel leitt til
þess að ákveðið yrði að ljúka
þeim skóla í samræmi við upphaf-
legar áætlanir.
Til lengri framtíðar séð mun
væntanlegt Naustahverfi kalla á
tvo grunnskóla til viðbótar.
Stjórnmálamenn á Akureyri verða
því að horfast í augu við þá stað-
reynd að það er lífsnauðsyn að
veita miklu viðbótarfjármagni í
málaflokkinn á allra næstu árum.
Það sem til fellur í dag mun rétt
hrökkva fyrir nýframkvæmdum
og viðhaldi. Það vantar fjármagn
til að koma grunnskólanum í gott
horf. Það viðbótarfjármagn gæti
komið að mínu mati að hluta frá
ríki, að hluta frá eignasölu bæjar-
ins ef af verður og að lokum kem-
ur lántaka í einhverju formi sterk-
lega til greina. Það er rökstutt af
minni hálfu með því að ef sífelld-
ar bráðabirgðalausnir halda áfram
að soga til sín fjármagn grunn-
skólans í þeim mæli sem verið
hefur þá hefði bærinn, þegar upp
væri staðið tapað gríðalegu fé. Þá
væri betra að taka lán og vinna
lagfæringamar á skipulegan hátt. I
dag er illmögulegt að áætla nokk-
uð af viti fram í tímann því það
fjármagn sem áætlað er, er það
takmarkað, að ekki tekst að nýta
það til annars en bjarga fyrir hom
þar sem ástandið er verst hverju
sinni.
Margar gerðir
af símum fyrir
heimili og
fyrirtæki
Tilboðsverð
rCLVUTÆKI
Furuvöllum 5 • Akureyri
Sími 462 6100
Stefnumörkun
bæjarstjórnar.
Að lokinni þeirri vinnu sem fram-
undan er hvað varðar endurskipu-
lagningu og samræmingu grunn-
skólans á Akureyri verður að
liggja fyrir hjá bæjarráði og bæjar-
stjórn stefnumörkun hvað varðar
áðumefnda fjármögnun. Bæjar-
stjóm verður að ákveða hvort vilji
þar standi til að veita meira fé til
skólanna en gert hefur verið und-
anfarin ár.
Á þeim tímamótum sem óneit-
anlega em í skólastarfi hér í bæ í
haust væri óþolandi að höggva
ekki að rótum vandans. Ef ekki
tekst að komast fyrir þau vanda-
mál sem em í skólastarfí grunn-
skólans nú á þessum tímamótum
gætum við átt eftir að glíma við
fortíðarvanda í skólastarfi á Akur-
eyri um langa framtíð. Því miður
mundi sá fortíðarvandi fyrst og
fremst bitna á komandi kynslóð-
um skólabama á Akureyri.
Jón Ingi Cæsarsson
Til viðskiptavina
Happdrættis D.A.S.
á Akureyri
Kvennadeild Slysavarnafélags íslands á Akureyri ákvað á fundi sínum að hætta
rekstri umboðsskrifstofu fyrir Happdrætti D.A.S. frá og með 12. apríl.
Stjórnin vill þakka öllum þeim sem átt hafa viðskipti við umboðið og skora á þá að
snúa sér til nýja umboðsins sem hefur aðsetur á Geislagötu 12.
F.h. stjórnar kvennadeildar S.V.F.Í. á Akureyri,
Bergljót Jónsdóttir formaður.
- *-
Stjórn Happdrættis D.A.S. þakkar kvennadeild Slysavarnafélags íslands á Akur-
eyri og þá sérstaklega Ásgerði Ágústsdóttur sem hefur annast umboðsskrifstofuna
af mikilli festu, fyrir ánægjulegt samstarf.
Ennfremur vill stjórnin bjóða Gísla Jónsson velkominn til samstarfs og vonumst við
eftir að viðskiptavinir eigi eftir að eiga ánægjuleg viðskipti við starfsfólk hinnar
nýju umboðsskrifstofu.
F.h. stjórnar Happdrœttis D.A.S.,
Sigurður Ágúst Sigurðsson forstjóri.
QlejcUlexýt á44*na/i!
sÞöJzJuun lUÍiJuatm á liínum u&hi
FASTEIGNASALAN EHf.
Gránufélagsgötu 4
V
Sími 462 1878
QlecUleCft 'UunGA!
cPöJeÁum, óxiAMAJsipÍm á luhium uetú
ÚTGERÐARFÉLAG
Akureyringa hf.