Samtíðin - 01.02.1939, Blaðsíða 26
22
SAMTÍÐIN
lenda tónlistarmenn, er lialdið liafa
liér liljómleika. Má í því sambandi
nefna, að Prag-kvartettinn frægi
kom liingað á vegum félagsins vor-
ið 1936.
Ilins vegar hefir félagið gengist
fyrir fyrstu söngleikasýningum,
sem farið hafa fram hér á landi.
Reið það i þeim efnum á vaðið með
sýningunum á Meyjaskemmunni
árið 1934. Ilún vakti mikinn fögn-
uð og hefir samtals verið sýnd yfir
40 sinnum. Þær góðu undirtektir,
sem ))essi frumtilraun hlaut, veitti
okkur kjark lil þess að sýna 2 aðra
söngleiki, Systurnar frá Prag, árið
1936, og Bláu kápuna árið 1938. Að
undanförnu hefir Meyjaskemman,
auk þess, sem áður er getið, verið
sýnd hér við góða aðsókn, og er þeg-
ar farið að hugsa fyrir nýjum söng-
leik til næsla vetrar.
En ])að eru ýmsir annmarkar á
því að sýna hér söngleiki, enn sem
komið er. Fyrst og fremst vantar
okkur nægilega stórt liúsnæði, þar
sem ætlað er sérstakt rúm fvrir
hljómsveit. Eins og nú standa sak-
ir, er koslnaður al' einni sýningu
með 12—15 leikurum og 20 manna
hJjómsveit, um 1100 krónur, ol
stofnkostnaður leiksýninganna er
varla undir 3000 krónum. Þar með
hlýtur öllum að vera það ljóst, að
eins og nú er í garðinn húið, verð-
um við að afla stofnkostnaðarins
sérstaklega, þar sem Tónlistarfélag
ið hefir ekki fengið neinn opinher-
an stvrk til leiksýninga sinna. Enn
fremur vantar okkur tilfinnanlega
Happdrætti Háskóla íslands.
5000 vtnningar - samtals 1 mlljón 50 þús. kr. á ári.
Happdrættið færir heppnustu viöskiftamönn-
um sínum þessa happadrætti á árinu:
50 þús. kr.
25 þús. kr. (2 vinningar)
20 þús. kr. (3 vinningar)
15 þús. kr. (2 vinningar)
10 þús. kr. (5 vinningar)
5 þús. kr. (10 vinningar)
2000 kr. (25 vinningar)
1000 kr. (75 vinningar) o.s.frv.
Látið ekki happ úr hendi sleppa !