Samtíðin - 01.11.1941, Page 16
12
SAMTÍÐIN
MERKIR SAMTÍÐARMENN
B.Benediktsson
Bjarni Benediktsson, borgarstjóri í Reykjavík, er fæddur í Rvík
30. apríl 1908. Foreldrar: Benedikt Sveinsson bókavörður og
kona hans, Gu'ðrún Pétursdóttir, bónda i Engey, Kristinssonar.
— Bjarni lauk studentsprófi við Menntaskólann í Reykjavík vor-
ið 1920 með 1. einkunn. Haustið eftir settist hann i lagadeild
Háskóla íslands og útskrifaðist þaðan árið 1930 með hæstu
einkunn, er þá bafði verið gefin 'þar eftir þágildandi einkunna-
stiga (140% stigum). Að loknu lagaprófi dvaldist Bjarni uni
nærfellt tveggja ára skeið við framhaldsnáni
erlendis, aðallega í Beidín, og kynnti sér þá
einkum stjórnlagafræði. Hann var settur pró-
fessor í lögum við Háskóla íslands árið 1932
og skipaður árið eftir. Gegndi hann því starfi
til hausts 1940, er hann gerðist borgarstjóri.
Bæjarfulltrúi i Rvík hefur liann verið síðan
1934 og í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur
hann setið síðan 1930. Af ritverkum eftir hann
liggja: Deildir Alþingis, mikið rit, er birtist
1939, sem fylgirit Árbókar Háskóla íslands, og
kennslubók í isl. stjórnlagafræði. Bjarni kvænt-
ist 12. okt. 1935 Valgerði Tómasdóttur, forstjóra
-rilMtriTniWilTT i Tómassonar, en hún andaðist
Stanwyck
Herbert Stanley
Morrison, ör-
yggismálaráð-
herra Breta, er
fæddur árið
1888. Hann er
af fátæku fólki
kominn og naut
í æsku lítillar
skólamenntun-
ar. Vann hann
áður fyrir sér
sem sendisveinn, búðarmaður
og símamaður. Morrison befur
setið á þingi 1923—24, 1929—31
og síðan 1935 sem fulltrúi jafn-
aðarmanna. Hann er stórlega
mikilhæfur maður, enda hafa
honum verið falin margháttuð
trúnaðarstörf. Hann liefur áð-
ur verið birgðamálaráðherra
og samgöngumálaráðherra. Þá
hefur hann verið formaður
verkamannaflokksins í Englandi
og forystumaður jafnaðarmanna í bæjarstjórn-
inni i London. Morrison er gætinn stjórnmála-
maður, og á ræðupalli er hann skörungur mikill.
Morrison
Sir Alan Brooke, sem verið hefur yfirforingi
alls heimahers Breta síðan i júli 1940, er 57
ára gamall og fæddur í Frakklandi. Sir Alan
tók við þessu mikilvæga starfi af Sir Edmund
Ironside, og var hann til þess kjörinn sakir
mikilla herstjórnarhæfileika og margháttaðrar
reynslu. Sir Alan hefur um margra ára skeið Brooke
aflað sér þekkingar á vélahernaði. Hann tók
þátt í heimsstyrjöldinni 1914—18 öll styrjaldarárin, en áður hafði
hann gegnt herþjónustu í ludlandi. Hann bafði umsjón með
þjálfun brezka hersins á árunum 1930—39.
11. marz 1936. — Bjarna Bene-
diktssyni hafa ungum verið fal-
in mikil trúnaðarstörf, enda er
hann maður skarpgáfaður,
lærður vel og skapfastur. Bera
menn til hans mikið traust.
Barbara Stanwyck, kvikmynda-
stjarnan heimsfræga, er fædd í
Brooklyn, New York 16. júlí
1907 og heitir réttu nafni Ruby
Stevens. Hún
lék fyrsta hlut-
verk sitt í kvik-
myndinni „The
locked door“
árið 1929 hjá
United Artists.
Síðan hefurhún
leikið í mörg-
um kvikmynd-
um við mikinn
orðstír.
Michael Ivanovitch Kalinin, forseti Sovét-Rússlands, er fséddur
árið 1875. Hann er bóndasonur, en gerðist málmnemi og síðan
sósíalisti. Árið 1913 var hann gerður útlægur, en slapp og tók
þátt i byltingunni 1919. lvalinin er meðlimur í miðstjórn komm-
únistaflokksins í Rússlandi og formaður aðalframkvæmdanefnd-
arinnar þar í landi. Stalin hefur miklar mætur á Kalinin og auk
jiess er hann talinn vinsæll af alþýðu manna, einkum bændum.
Kalinin