Samtíðin - 01.11.1941, Page 18

Samtíðin - 01.11.1941, Page 18
14 SAMTÍÐIN Daginn eftir sagði yfirlæknirinn í sjúkrastofunni: —■ Brandel, ég hef góðar fréttir að færa yður. Hershöfðinginn, sem kemur liingað á eftirlitsför, ætlar að sæma yður heiðursmerki. Sannleikurinn var sá, að mælt hafði verið mjög eindregið með því, að Brandel væri sem allra fyrst veitl heiðursmerki, því að eftir að búið var að taka af honum handlegginn kvöldið áður, kom í ljós, að engin von var til þess, að hann mundi lifa. Brandel gat ekki svarað yfirlækn- inum. Blóðdælan hamaðist á heitum gagnaugum hans, Ó, Iive jætta var dá- samlegt tækifæri! Ó, liershöfðingi! I þrjár klukkustundir stóð atburður- inn honum sífellt fyrir hugskotssjón- um. Hann ætlaði að sýna þeim, að hann væri maður til að framfylgja skoðunum sinum. Og þegar hann hafnaði krossinum, mundu læknarnir verða hrifnir af framkomu hans og kannast við, hve mikla hetjudáð hann hefði drýgt. Nú heyrðist mikill undirgangur úti í húsagarðinum. Hann harst upp stig- ana og inn eftir sjúkrahúsgöngunum. Dyrnar opnuðust. Brandel sá, livar læknarnir og hjúkrunarkonurnar komu inn ásamt 5—6 hershöfðingj- um, sem allir voru með fagurlit hönd yfir hrjóstið. Fremstur þeirra gekk maður nokkur, hvítur fyrir hærum, sem kom til hans og leil hlíðlega framan í hann. — Þér eruð hugdjarfur maður, mælti hann með titrandi röddu, — í nafni lands vors flyt ég yður þakkir. Og á hægri hönd sér (því að vinstri handleggurinn hafði verið tekinn) fann Brandel titrandi þrýsting kræld- óttrar handar gamla mannsins. Her- foringi tók kross upp úr kassa, sem hann hafði meðferðis, og hin óstyrka hönd festi hann á skyrtu særða mannsins. Því næst laut hið gráa höf- uð niður að honum, og Brandel mælti lágt: — Þakka yður fvrir .... foringi. Siðan fóru þeir frá honum, en ung hjúkrunarkona var látin vera hjá lionum .... Hún veitti því athygli. að hann var að gráta og settist við rúmið hans. — Hafið þér kvalir? spurði hún. Hann svaraði engu, en horfði á kalda veggina í sjúkrastofunni, og það var eins og geðshræring hans svifi ásamt augnaráði hans upp eftir þessum veggjum og yrði þar að þoku ásamt þeim, um leið og hún dó út. Málmkrossinn lá á hjarta hans, og þungi lians gerði hinum fárveika manni örðugra um andardráttinn. Það var eins og þessi litli hlutur hefði í sér fólginn allan mannlegan veik- leika. Unga stúlkan hafði tekið um sjóðheita hönd sjúklingsins, en milli þeirra var djúp staðfest. Hún fann þetta glöggt og sat um stund þögul og gersamlega lömuð af vanmáttar- kennd. Alll í kringum þau var and- rúmsloftið mettað sterkum þef af sótthreinsunarlyfjum, og saman við þessa megnu lykt blandaðist hryggð- in, scm streymdi frá sálum þeirra beggja. Að lokum neytti stúlkan ítrustu krafta sinna til þess að finna orð, er megnuðu að veita honum frið, og hún mælti:

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.