Samtíðin - 01.11.1941, Side 21

Samtíðin - 01.11.1941, Side 21
SAMTÍÐIN 17 ars staðar en á ritlistinni? Ilafa ekki allir islenzkir ritsnillingar og skáld, allt frá Agli og Snorra til Einars og Stefáns, stundað listina sem hjáverk? Enginn niá þó skilja þetta svo, að ég misvirði það gildi, sem aðstaða til ó- skiptra starfa hefur, en vel unnin hjá- verk her okkur að meta að verðleik- um. Þú vilt nú ef til vill spyrja, kunn- ingi góður: Finnast þá engir sannir listamenn á okkar dögum? Jú, þeir finnast. Sumir þessara fáu einstakl- inga, sem rölta einstæðingsslóðir skynseminnar, eru listamenn í raun og sannleika, en þeirra verður sjald- an vart fyrr en seint og síðar meir, þegar skarkali tízkunnar er drukkn- aður i gleymskuhafi fortíðarinnar. Listin er alltaf harn síns tíma. Nú er hún sjúk, því að tíðarandinn er sjúkur. Hún er ruddaleg og hrjáluð eins og stríðið. Visindamenn okkar tíma framleiða vélar og sprengiefni til að tortíma lifi og eyðileggja þau verðmæti, sem fyr- irrennarar þeirra sköpuðu. Lista- mennirnir varpa einnig shmm sprengjum yfir menninguna og verðmæti þau, sem fyrirrennarar þeirra sköpuðu. Form er virt að vett- ugi, samliljómur brjálaður, laglin- unni þevtt á hrott sem fánýti og vitglóran hlátt áfram hötuð. Ég liefi nú lekið að mér að vera barnið og segja í lijartanlegu sak- Ievsi: Keisarinn er nakinn. — Þú heldur kannske, að ég sé fullkominn fábjáni? — Enginn er alfullkominn, vin- nr minn. Heimsendir I' HAYDEN-stjörnuturninum iNew York er mönnum sýnt, hvernig jörðin geti farizt á ýmsan hátt. Reiki- stjörnur eiga að þvi levti sammerkt við menn, að þær fæðast, ná þroska og deyja. Jörðin er enn á æskuskeiði — að eins 2—3 biljón ára gömul, og' menn hafa reiknað út, að hún geti enn ált sér 15 biljón ára aldur fyrir höndum með tilstyrk sólarinnar. En svo gæti farið, að tunglið rækist ein- hvern tíma í framtíðinni á jörðina og splundraði henni. Einnig er því spáð, að með kólnun sólarinnar nnmi jörðin verða öll ísi þakin og gersam- lega óhyggileg lifandi verum. Enn er því spáð, að sólin sundrist, löngu áður en hún er orðin köld. Mundi allt sólkerfið við það eyðast. Loks er gert ráð fvrir þvi, að glóandi hala- stjarna kunni að rekast á jörðina. Halastjarnan mundi, um. leið og hún tættist sundur, valda gerevðingu jarðarinnar, með því að höl'in niundu sjóðhitna við tilkomu hennar. Þessu og þvílíku eru stjörnufræð- ingarnir að vella fyrir sér, meðan stjórnmálamenn stórveldanna Ieiða sífelld stríð og dauða vfir vesalings mannkynið og stuðla eftir getu að því að gera siðuðum mönnuni jarð- lífið óhærilegt. (Lauslega þýtt úr New York Times). — Mundi hann frændi þinn eftir þér, þcgar hann gerði arfleiðsluskrá sína? — Það hefur hann sjálfsagt gert. því að hann ánafnaði mér ekki grænan eijri.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.