Samtíðin - 01.11.1941, Page 22

Samtíðin - 01.11.1941, Page 22
18 SAMTÍÐIN Æðsta fjölskylda Bandaríkjanna Roosevelt-f j ölskyldan hefir reynzt blaðamönnum Bandaríkjanna sannkölluð heillagjöf; hún er alltaf ný og leggur blöðunum sífellt til óþrotlégt efni í miklar grein- ar með feitum fyrirsögnum. Er ó- hætt að fullyrða, að engin forseta- fjölskylda þar vestra hafi orðið hlöð- um landsins jafn geysivinsælt og ó- hemju drjúgt umtalsefni. Fyrst skal telja forsetann sjálfan, sem óþarft er að kvnna liér, og þar næst kemur kona lians, frú Eteanor Roosevelt. Hún er há kona, hispurs- laus og óþreytandi starfsmaður. Leggur hún margt á gjörva hönd og hefur m. a. fengizt við kennslu, rit- störf og fyrirlestraflutning i útvarp. Ómetanlegur lífsförunautur hefur hún revnzt manni sínum í haráttu hans og öðrum störfum. Anna Roosevelt er elzt af hörnum forsetahjónanna. Hún er 34 ái’a göm- ul, skildi við fyrra mann sinn, en er nú gift ritstjóra blaðsins Seattle Post-lntelligence. Sér hún jafnanum kvennasíðuna i hlaði manns síns. James Roosevell, næslelzla barn forsetans, er 33 ára, kvæntur læknis- dóttur fná Boston. Hann hefur starf- að við vátryggingar, verið einkaritari föður síns, en þótti ekki allsendis lieppilegur til þess starfs og gerðist þvi samstarfsmaður Samuel Gold- wyns, hins heimskunna kvikmvnda- konungs í Hollywood. Elliott Roosevelt er þritugur. Hann er tvíkvæntur og skildi við fyrri konu sína. Hann er kunnur útvarps-ræðu- maður og hefur oft gagnrýnt stjórn- málaskoðanir föður síns á öldum Ijósvakans. Þá er næstur Franklin Delano Roosevelt yngri, 26 ára gamall. Hann kom Iiingað lil lands í för með Wins- ton Churchill, forsætisráðherra Breta, 16. ágúst s. 1., og þótti íslend- ingum liann gervilegur maður á- sýnduin. Hann hefur lagt stund á lög- fræði við háskólann í Virginíu. Með kvonfangi sínu tengdi hann forseta- fjölskylduna einni af voldugustu iðn- aðar- og vopnasmíða-fjölskyldum heimsins, Du Ponts, sem flestir hafa lieyrt nefnda. Yngsta harn forselahjónanna er Jolm Roosevelt, nýkvæntur kaup- sýslumaður. Er það liaft eftir móður lians, að liann hafi erft beztu eigin- leika foreldra sinna. Öll þessi börn eru íþróttafólk. Þau eru miklir hestamenn, sundmenn og kappsiglingamenn. Ivenndi faðir þeirra þeim í bernsku sund og hát- stjórn. Jafnskjótt og aldur leyfði, tóku þau að aka bíl og eignuðust Iivert sinn bil. í Hyde Park, landsetri forsetans, vöndust hörnin snemma liollri útivist. Synirnir þrir fetuðu að því leyti í fótspor föður síns, að þeir gengu í Groton-skólann, er jafngildir á ameríska vísu hinum nafnfræga Eton-skóla í Englandi, sem margir kunnustú menntamenn Brela hafa gengið i. Þaðan fóru þeir i Harvard-

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.