Samtíðin - 01.03.1957, Qupperneq 8

Samtíðin - 01.03.1957, Qupperneq 8
4 SAMTÍÐIN Iag, sem gerir sparsemi fólksins landræka, drýgir dauðasynd. Sama máli gegnir um allar aðrar fornar dygðir, sem hafa verið le'ðarljós Islendinga imi aldir. Að þeim verður að lilúa, því að þær eru fjöregg þjóðarinnar. I>ótt okkur hafi vegnað vel við fjáröflun á umliðnum árum, megum vlð ekki fyllast rembingi, því að dramb er falli næst. Við megum ekki heldur drýgja þá höfuðsynd gagnvart sjálfum okkur að senda hinar fornu dygðir til fjandans, því að laun syndarinnar er dauði. —★— iZiuti /tossa hcftis: Aron Guðbrandsson: Laun syndar- innar er dauði ................Bls. 3 Dægurlagstextarnir ..............— 4 Kvennaþættir Freyju .............— 5 Presturinn og dauða höndin (saga) — 9 Dauðinn er ekki kvalafullur ........— 12 Verðlaunaspurningarnar .......... — 15 íslenzkunámskejð Samtíðarinnar . . — 16 Þú munt verða drottning (saga) . . — 17 Guðm. Arnlaugsson: Skákþáttur .. — 20 Sonja: Samtíðarhjónin ...........— 22 Árni M. Jónsson: Bridgeþáttur .... — 25 „Við uppspretturnar" (ritfregn) . . — 28 Þeir vitru sögðu. Krossgáta o. fl. tt)œ^ar(a^ó textar FJÓRAR á Austurlandi skrifa: „Kæra Samtíð. Okkur langar til að biðja þ'g að birta fyrir okkur textann: Hljóðlega gegn- um Hljómskálagarð. Ástarþakkir fyrir alla skemmtunina." — Textinn er eftir N. N. og lag eftir Oliver Guðmundsson. Sung- ið af Hauki Morthens á H. M. V. plötu nr. JOR 229. Gjörlð þið svo vel: Við skulum ganga hljóðlega gegnum hljómskálagarð — allt er svo hljótt, höfugt og rótt. Manstu það ei, hve siðasti dansinn drjúgur oss varð; dansinn frá því í nótt. Síðasti valsinn bergmálar enn í eyrum mér. Eftir tónum hans svífum við í dans. Ekkert er það í veröld, sem hrífur muna manns meira en lokkandi vals. Dreymum æsku, yndi og fjör. Lokastund balls verður liðandi vals. Gleymum bæði stund og stað; stígum hinn létta dans. Forsíðumyndin er af ROBERT TAYLOR og ELEANOR PARKER í M.G.M.-kvik- myndinni „Above and Beyond“, sem sýnd verður innan skamrns í Garnla Bíó. Kirkjukór nokkur úti á landsbyggS- inni var á söngæfingu. Þá mælti söng- stjórinn: „Gleymió þiS nú ekki, aö tenórinn syngur einn, þangað til viö komum að: HLIÐUM VlTIS, en þá falla allir inn.“ Tízkan er á okkur bandi Landsins beztu og fjölbreyttustu priónavörur. Sent gegn póstkröfu. HLÍN, Skólavörðustíg 18. Sími 2779. L. & Á. biðja auk þess um; VORKVÖLD Sungið af Öddu Örnólfsdóttur á H. S. H. hljómplötu. Textinn er eftir Reinhardt Reinhardtsson, viðlag eftir Gunnar Kr. Guðmundsson. Hnigin er sól, og blómið lokar brá. Breiðir kyrrð og frið um lönd og sjá vorkvöld blítt. Ó, vina, vak mér hjá, veröld meðan sveipa húmtjöld blá, þér ég blítt að barmi halla, bjarta mey, el liverf mér frá. Þú ert mín um eiFfð alla. Ekkert fær skilið þær verur, sem hvor aðra þrá. Hnigin er sól. Ó, vina, vak mér hjá, veröld meðan sveipar húmtjöld blá.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.