Samtíðin - 01.03.1957, Qupperneq 14

Samtíðin - 01.03.1957, Qupperneq 14
10 SAMTÍÐIN grípa um hana. Af einhverjum á- stæðum virlist honum ómögulegt að hreyfa hægri höndina, en hann fann greinilega, að vinstri handleggur hans hans lá enn beinn meðfram síðunni. Hann vissi ekki sitt rjúk- andi ráð. Án þess að lita upp reyndi hann í hægðum sínum að losa hægri höndina, en fann þá undir eins, að lialdið var fast um hana og hún var óðara dregin til baka. Fyrst flaug honum í hug, að son- ur prestsins væri að leika á sig. Strákur hafði sennilega falið sig undir rúminu, en hafði nú risið upp og gripið um höndina á honum. Hon- um gramdist þetta, því að hann þoldi illa glettur af þessu tagi. Hann reis snöggt upp á hnén og reyndi að ná taki á handlegg piltsins. Sér til mikillar undrunar greip hann al- veg í tómt! Skyndilega bálaði eldurinn á arn- inum upp, og við hjart skin hans sá hann sér til mikillar skelfingar hönd, sem ekki náði lengra en upp að úlflið, halda dauðahaldi i hönd- ina á sér! Þetta var harnshönd með löng- um, fögrum fingrum, og hún var örlítið bleikari öðrum megin. í hálfgerðu ofboði æpti hann upp yfir sig: „Guð minn almáttugur! Dauð hönd!“ Unv leið þreif hann um úlfliðinn og reyndi að losa tak handarinnar. En við það varð tak þessarar óhugn- anlegu handar aðeins fastara! Eft- ir annað átak tókst presti þó að losa takið og gat fleygt höndinni frá sér. Hún þeyttist með daufu hljóði alla leið inn í dúfuholuna! Prestur leið aftur yfir sig niður í rúmið og féll í öngvit. En smám saman, eflir því sem hann kom til sjálfs sín, varð honum ljóst, hvílík- ur voðalegur athurður hafði gerzt, og þá reyndi hann að sannfæra sig- um, að þetta hefði aðeins verið hræðilegur draumur. En því meira sem hann hugsaði um þella, því dularfyllra varð það í meðvitund hans. Sofandi hafði hann ekki verið — það vissi hann fyrir víst. Nú var eldurinn alveg dvínaður, og það var koldimmt i herberginu. Hann teygði sig eftir lampanum lil að kveikja á honum, en þegar hann ætlaði að seilast eftir eldspýtunum, mundi liann a'Jlt í einu, að hann hafði varpað þessari draugalegu hönd inn í dúfuholuna, þar sem eldspýturnar voru geymd- ar. Það fór hrollur um hann, þegar hann hugsaði til þess að eiga aftur að káfa á þessari hráköldu hönd, og liann hikaði við. Hins vegar var al- veg óhugsandi að liggja þarna i myrkrinu, svo að hann vildi heldur eiga á hættu að snerta dauðu hönd- ina, greip því eldspýturnar, kveikti á lampanum og steig fram úr rúm- inu til að kanna herbergið. Hann lagði mikið af viði á arininn og með tilstyrk físilielgsins tókst honum að kveikja heilmikið bál. Svo settist hann í hægindastólinn og fór að reyna að komast til botns í öllu þ,essu. Prestur var furðu rólegur. Öll hræðsla var nú horfin úr huga lians, en hann vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Hann spurði sjálfan sig upphátt: „Var þetta virkilega holdi klædd

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.