Samtíðin - 01.03.1957, Qupperneq 21

Samtíðin - 01.03.1957, Qupperneq 21
SAMTÍÐIN 17 2.2.0. SAGA SAMTIÐARINNAR Albert Brandt: Saga 2)eiiree (((ary uar aft/eg far&uteg Þú munt verða drottning EINN AF FURÐULEGUSTU spá- dómum, sem rætzt hafa nákvæmlega, var kveðinn upp árið 1794. Hann var í níu greinum, sem allar rættust. Spá- konan hét Anna-María Lenormard. Hún var Parisarbúi og heimsfræg fyr- ir skyggnigáfu sina. Ungfrú Lenormard bjó í gömlu, hrörlegu húsi á Tournon götu 53. Á vegg hússins hafði af ásettu ráði ver- ið sett villandi skilti, sem á stóð: Bók- sali. Til þessa húss streymdu viðskipta- vinir af öllum stéttum: aðalsmenn, stjórnmálamenn, kaupmenn, óham- ingj usamir eiginmenn og eiginkonur, iðnaðarmenn og verkamenn, því að ungfrú Lenormard hafði á sér al- menningsorð fyrir frábæra ná- kvæmni. Viðskiptavinur hennar þessa stund- ina var laglegheita stúlka frá Mar- seilles, 21 árs gömul, Desirée Clary að nafni. Desirée var grátandi, því að ungur hershöfðingi í her uppreisnar- manna hafði nýlega svikið hana i tryggðum; hann hét Napóleon Bona- parte. „Þú hefur misst manninn, sem þú elskar,“ sagði ungfrú Lenormard blíð lega við stúlkuna. „Hann mun ganga að eiga roskna konu úr fjarlægu landi. Með hana við hlið sér verður hann keisari Frakklands. Hann mun ieggja undir sig Evrópu. En þú skalt ekki syrgja hann um of. Þú munt sjálf verða drottning og sitja að völd- um lengi eftir að maðurinn, sem hef- ur svikið þig í tryggðum, hefur verið ofurliði borinn og hrakinn frá keis- aradómi.“ Desirée Clary ralc upp tryllings- legan hlátur. Allt þetta var hlægileg vitleysa, sem ekki náði nokkurri átt, hugsaði lnin. Frakkland var lýðveldi. Hvernig gat Napóleon ungi orðið keisari. Hvernig gæti fátæk stúlka af borgaralegum stigum orðið drottn- ing? Hún skrifaði spádóminn í dagbók- ina sína þá um kvöldið og gleymdi honum síðan að heita mátti. Desirée Clary var yngri dóttir auð- ugs silkikaupmanns, sem missti bæði aleigu sína og lífið í stj órnarbylting- unni. Móður hennar til mikillar hugg- unar kynntist Júlía, systir hennar, og giftist síðan herforingja, sem hét Jósef Bónaparte. Napóleon ungi kom á heimili þeirra Jósefs og Júlíu Bernadotte i Mar- seille. Hann var þá liðlega tvitugur, lágur vexti, renglulegur, kinnfiska- soginn og átti ekki grænan eyri. Enda þótt liann hefði gegnt foringjastarfi í hernum, var liann atvinnulaus, því að stjórnin liafði losað sig við liann vegna „lióflausrar metorðagirndar hans“. Napóleon varð ástfanginn í Desirée. Hann lét rigna yfir hana eldheitum ástarbréfum og samdi jafnvel ástar- sögu, „Eugenie og Clisson“, þar sem hann úthellti ást sinni til hennar. En

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.