Samtíðin - 01.03.1957, Page 22

Samtíðin - 01.03.1957, Page 22
18 SAMTÍÐIN vegna þess live atvinnuliorfur Napó- leons voru lélegar, virti Desirée ást- leitni lians að vettugi og fór í þeim efnum að ráðum móður sinnar, sem var hagsýn kona. Loks hvarf svo Napóleon til Parísar í atvinnuleit. Hann hélt áfram sífelldum bréfa- skriftum til Desirée frá Paris. Snort- in af ást hans gerðist stúlkan ástúð- legri og ástúðlegri í svarbréfum sin- um, en gætti þess þó að sniðganga öll ákveðin hjúskaparáform. Allir vinir Desirée Clary og Napóleons um þær mundir litu á það sem sjálfsagðan hlut, að þau yrðu lijón. Þá var það, að hamingjuhjól Napó- leons tók að snúast með undrahraða. Innanlandsherinn þurfti á færum stjórnanda að halda, og hann varð fyrir valinu. Þegar hann var 25 ára gamall, var hann yngsti hershöfðingi landhersins. Þá hafði hann hralcið Breta fi’á Toulon og frelsað borgina. Foringjalaun hans leyfðu honum nú að fá sér glæsilega ibúð. Fagrar kon- ur eltu hann á röndum. Bréf hans til Desirée urðu nú styttri og færri en áður. Ástæðan fyrir þessum sinnaskipt- um Napóleons var lostasöm kyn- blendingskona, ljósbrún á liörund, sem hét Jósefína Beauharnais. Hún var ekkja, tveggja barna móðir, en gædd miklum lífsþrótti og kynþokka og mátti segj a, að listin að elska væri ein af sérgáfum hennar. Hálfum mánuði eftir að fundum þeirra Napó- leons bar fyrst saman, var liún orðin lagskona hans. I Marseille sat Desirée, óróleg í lijarta sinu, og ræddi viðhorfið við móður sina, sem ráðlagði henni að tala í fullri einlægni við Napóleon. En þegar Desirée koin til Parísar, fór liún fyrst á fund Lenormard, sem Napóleon hafði farið mjög lofsam- legum orðum um. Að fundi þeirra loknum liélt Desirée rakleitt heim til Marseille, án þess svo mikið sem hitta Napóleon. Bréfaskipti þeirra strjál- uðust nú og urðu svo að engu, og 9. marz 1796 kvæntist Napóleon Jóse- fínu. Þau Jósef og Júlia Bonaparte höfðu sámúð með Desirée og huðu henni því í fjölda samkvæma á heimili sínu. Og þar kynntist hún föngulegum og ágætum hershöfðingja, Jean Baptiste Bernadotte. Eftir stutt og laggott hónorð voru þau Bernadotte og Desirée gefin saman i hjónaband 24. júní 1798. Ef Desirée liefur nokkuð munað eftir hinum furðulega spádómi ung- frú Lenormards, hefur hún ekki get- að varizt þvi að brosa, því að Berna- dotte var af fátæku bændafólki kom- inn og sjálf var hún dóttir silkikaup- manns. Hvorugt þeirra var liklegt til að setjast á veldisstól. En framvinda örlaganna var ó- sveigjanleg. Napóleon lagði undir sig Evrópu. Ilinn 18. maí 1804 var liann krýndur Frakklandskeisari. Þegar li'ér var komið sögu, var Jean Baptiste Bernadotte yfirliershöfðingi alríkishers Napóleons. Þrátt fyrir hernaðarstörfin var liann hægur, góð- látlegur maður og nýtur stjórnandi. Leitið upplýsinga um vátryggingu hjá Nordisk Brandforsikring A/S. Aðalumboð á íslandi, Vesturgötu 7. Reykjavík. Sími 3569. Pósthólf 1013.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.