Samtíðin - 01.05.1958, Side 32
28
SAMTÍÐIN
Langar ekki einhvern af lesendum
þáttarins að feta í fótspor Freemans?
Ég tek við tillögum með mestu
ánægju!
SKDPSÚGUR
KONA nokkur fékk hastarlegt
kvef. Hún tók það ráð að hella viskí
í sykurmola og bryðja hann síðan,
undir svefninn. Þegar litla dóttir
hennar bauð henni góða nótt með
kossi, varð henni að orði:
„Þú hefur þá komizt í vellyktandið
hans pabba.“
SÆNSK sveitakona kom til Stokk-
hólms og settist upp í sporvagn. Af
því að hún var bráðókunnug í borg-
inni, bað hún gjaldkerann í vagnin-
um að segja sér, þegar þau kæmu
til ákveðins staðar. Maðurinn lofaði
því. Alltaf þegar vagninn staðnæmd-
ist, ýmist á viðkomustöðum eða vegna
umferðarljósa, spurði konan áhyggju-
full, hvort hún væri nú ekki kom-
in á áfangastaðinn. Gjaldkerinn
neitaði því. Þegar hún spurði að þessu
í á að gizka fimmtánda sinn, bætti
hún við: ,,Og á hverju get ég séð,
hvenær ég er komin alla leið?“
„Þér sjáið það á því, að þá brosi
ég alveg út að eyrum,“ anzaði gjald-
kerinn.
Tökum myndir við öll tækifæri.
Ljósmyndavinnustofa
Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10-297. Pósth. 819.