Samtíðin - 01.12.1960, Síða 11

Samtíðin - 01.12.1960, Síða 11
10. blaft 27. árg l\lo. 268 Desember 1960 SAMTIÐIIM HEIMILISBLAD TIL SKEMMTIJMAR 0G FRÓÐLEIKS SAMTIÐIN kemur út mánaðarlega nema í jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúla- s°n» Reykjavik, sími 12526, pósthólf 472. Afgreiðslusími 18985. Árgjaldið, 65 kr. (erl. 75 kr.), Sreiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við áramót. Áskriftargjöldum veitt móttaka i Bókaverzlun Isafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan hf. Einstávö þjnnnsta við nitirnður kannr PRÚ Kirsten Graac-Rasmussen í Árósi á Jót- landi hefur að undanförnu unnið mikið nytja- °g mannúðarstarf með því að útvega heimilum l)af í borg aðstoð aldraðra, einstæðingskvenna, sem fannst sér vera orðið ofaukið í heiminum. ^etta hófst þannig, að frú G.-R., sem var ný- ^oniin af sjúkrahúsi, var ekki orðin hraust og ^efði á göngu tyllt sér niður á bekk í trjágarði. Tók hún þá eftir mörgum rosknum konum, sem satu tímunum saman á bekkjunum í garðinum, enda virtist enginn eiga neitt vantalað við þær. k*r áttu sér sýnilega engin viðfangsefni og tannst sér því ekkert liggja á heim. Frúin gaf Sl£ á tal við konurnar og hét því síðan, að ef ^án fengi heilsuna aftur, skyldi hún reyna að verða þeim að einhverju liði. Þannig varð til hugmyndin að heimilahjálp Peirri (Hjemmenes H y g g e h j æ 1 p), sem s>ðan er fræg orðin. Frú G.-R. byrjaði á að kalla laðamenn í Árósi á fund sinn og segja þeim frá agmyndinni. Ekki höfðu þeir fyrr skýrt frá enni á prenti en fyrirspyrjendur tóku að slreyma að. Borðstofa frúarinnar var orðin full fólki, er hún kom á fætur daginn eftir! AHir vddu einstæðingskonu til að hjálpa sér við húsverkin. Frú G.,-R. gerði nú spjaldskrá yfir frambjóð- endur og eftirspyrjendur. Nokkurs misskilnings varð vart af hálfu þeirra síðarnefndu. Sumir eldu nefnilega, að hér væri um venjulega v,nnumiðlun að ræða. Því fór fjarri. Fólk, sem bað ara hjálp við vorhreingerningar, fékk t. d. algera neitun. Það var heldur aldrei ætlunin, gömlu konurnar ættu að fara að liggja á nJanum og þvo gólf og stiga hjá nágrönnun- nm! Frúin hefur beðið gömlu konurnar að ráða sig aldrei til aðstoðar á heimili, fyrr en þær hafi kynnzt því. En venjulega hefur tekizt vinátta með þeim og nýju kunningjunum. Fyrir frú Graae vakti að skapa í stórborginni þau hjálp- semitengsl milli granna, sem alkunn eru í smá- bæjum og þorpurn, og útvega heimilunum elsku- lega gamla „frænku" eða „ömmu“, sem margir söknuðu þar svo mjög. Þetta hefur tekizt með ágætum. Á 4 árum hafa 1600 fyrirspurnir verið gerðar, og frú Graae hefur útvegað 500 heimilum kærkomna „ömmu“, sem hefur brátt samrýnzt fjölskyldunni. Gömlu konurnar koma á heimilin, líta þar eftir las- burða gamalmennum, aðstoða við matreiðslu, borða með fjölskyldunni, staga í flík, hafa gát á börnunum og eru þarna síðast, en ekki sízt „öðrum og sér til glaðværðar“. Fyrir þetta fá þær nokkurt tímakaup og ókeyp- is far með strætisvagni. Er þetta kærkomin við- bót við ellilaunin. Sjálf hefur frú Graae ekki tekið neitt fyrir allt starf sitt. Hún fórnar því 1 klst. árdegis 4 daga vikunnar. Þá hcimsækja gömlu konurnar hana til skrafs og ráðagerða. Stundum hefur hún efnt til kynningarkvölda fyr- ir þær. Margar þeirra voru upphaflega mjög óframfærnar og umkomulausar. Enda þótt sum- ar þeirra væru ekki nema fimmtugar, tókst þeim ekki að fá sér atvinnu. Forsjá hins opinbera benti þeim einungis á glatkistu aðgerðarleysisins. Tilfinningin, mér er alls staðar ofauk- i ð, hafði heltekið sálarlíf þessara einstæðinga. Nú hafa nokkur hundruð aldraðra kvenna í Árósi öðlazt nýja trú á lífið vegna hugkvæmni og atorku bjartsýnnar konu, sem var lasburða og settist andartak á bekk til að hvíla sig.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.