Samtíðin - 01.12.1960, Blaðsíða 18

Samtíðin - 01.12.1960, Blaðsíða 18
10 SAMTÍÐlN ☆ ★ ☆ ★ ☆ ☆ ☆ ☆ ★ JS'máiaýjz frá (i&nu. iutnri GESTURIIMN AÐ SIJMMAIM LANGT inn til dala, handan við heim- inn, ef svo mætti segja, hafði gamla kon- an hjarað í hartnær heila öld, bak við harðlæstar hurðir, og ekki opnað fyrir neinum upp á siðkastið. Hvað gerist ekki í Þyrnirósuhúsi? Ef vindurinn æstist, svo að hrikti í bænum, fuglinn trúr snart gluggarúðu með nefi sínu eða ferðalangur rjálaði við loku, var gamla konan vön að hrópa, svo að heyrðist alla leið út á hlað: „Burt með þig, dauði!“ Og ef gesturinn anzaði: „Ég er ekki dauðinn,“ var hún vön að kalla til hans: „Jú, víst ertu dauðinn! Heldurðu ég þekki þig ekki, karl minn? í dag kemurðu hing- að í líki ferðalangs, en ég sé beinagrind- ina gegnum duluna þína!“ Og ef einhver drap hressilega á dyr, var hún viss með að svara: „Nú ertu kominn í líki förumanns. En dyrnar eru harðlæstar, karl minn. Ég hef líka byrgt reykháfinn vandlega og brugðið liknar- belg fyrir skráargötin. Innan við glugga- hlerana er allt vendilega þakið kónguló- arvefjum, og ég hef troðið ull í eyrun, til þess að ég sé viss um að heyra ekki bannsett nöldrið í þér. Svona, burt með þig, rækallinn þinn!“ Þannig hafði þetta gengið til í manna minnum. Kynslóðir komu og fóru. Það gengu ýmsir straumar yfir landið: bílar leystu hestana af hólmi, svo kom her- nám, afstraktlist, óstuðluð ljóðræna. Fólk við sjó fram talaði um Þóru gömlu í dal- bænum eins og persónu i þjóðsögu. Loks liættu menn að muna, hvað liún liét. En strákar fóru stöku sinnum á jepp- um langt inn i dalinn, alla leið heim að hænum hennar og fleygðu steini í glugga' hlera til að ganga úr skugga um tilvist gömlu konunnar, heyra liana hrópa. Þeir sögðu, að liún myndi aldrei deyja. Dauð- inn kæmist ekki inn til hennar. Allt kvikt i kringum hana hlyti að vera löngu dautt. Allar bakteríur sofnaðar svefninum langa. Allar lífsþurftir hennar dvínaðar eins og hjá indverskum fakirum, sem risu bráðlifandi úr sæfingu kviksetningarinn- ar eftir mannsaldra. „Hún lifir okkur öll,“ sagði fólkið 1 nýju borginni, sem var óðum að rísa a eyrinni niðri við fjörðinn. „Já,“ anzaði gamla konan innan ul myrkrinu. ÁR LIÐU, án þess að nokkur nennti að vera að leggja krók á leið sína til að guða . á glugga lijá gömlu konunni, enda halð1 nýr hugsunarháttur tekið völd í landinu. Aukinn hraði hafði kennt mönnum að vera fljótir að gleyma. Og sú tið val löngu liðin, er sendimaður frá garnalh verzlun á eyrarodda við lygnan fjörð hafði fært Þóru lífsnauðsynjar haust og vor, látið þær á varinhelluna hennai> þar sem þær fengu síðan að dúsa óhreyfð- ar stundum dögum saman, sólvermdai. blásnar, jafnvel fenntar í kaf, ef því val að skipta. En einn góðan veðurdag vUlU þær horfnar. Nú var langt síðan þetta væri. Sendimaðurinn löngu dáinn, verzl unin liðin undir lok. Allt þetta tilheyið1 horfnum venjum, annarri öld. Og alljU þennan óraaldur liafði gamla konan seti og beðið — með lokuð augu og spenntai

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.