Samtíðin - 01.06.1964, Side 7

Samtíðin - 01.06.1964, Side 7
5. blað 31. árg, IMr. 303 Júní 1964 SAMTÍÐIN HEIMILISBLAÐ TIL SKEMMTLMAR OG FRÓDLEIKS SAMTIÐIN kemur út mánaðarlega nema í janúar og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason, Reykjavík, sími 12526, pósthólf 472. AfgreiSslusími 18985. ÁrgjaldiS 95 kr. (erlendis 105 kr.), greiSist fyrirfram. Áskriftir miSast viS áramót. Áskriftum og áskriftargjöldum veitt móttaka í Rókaverzlun ísafoldar, Austurstræti 8. — FélagsprentsmiSjan hf. LOFGERÐ UM MJÓLK í SAMBANDI VIÐ mjólkurfræðingamót, sem haldið var ekki alls fyrir löngu, birtu dönsk blöð greinar um mjólk og mjólkurafurðir. Hér fer á eftir inntak úr einni þeirra. Mjólk er lífsins lind, eða ein þeirra a. m. b., enda fullkomnasta fæðutegund, sem til er. Það eru ekki kýrnar einar, sem láta okkur bana í té. Allar kvenkynsverur spendýra láta sjúga sig, að kvenfólki auðvitað með töldu, ef bað óttast þá ckki, að það muni lýta vaxtarlag sitt. Talið er, að daglega séu nytjaðir yfir 1000 millj. mjólkurlítra í heiminum, að brjóstamjólk bvenna undanskilinni. Mest af þessu mjólkur- ^agni er úr kúm, en einnig úr ám, geitum, breindýrum, hryssum, vísundakúm, úlföldum °- fl. dýrum. Börnum er eðlilegast að nærast á brjósta- *njolk mæðra sinna fyrstu mánuði ævinnar. Hvað er það þá, sem gerir mjólkina að þvílík- um líf- og orkugjafa, að hún hefur gert okkur sPendýrin að andlegum og líkamlegum drottn- endum yfir öðrum dýrum um milljónir ára? Mjólk er einfaldlega blanda beztu næringar- efna, sem við þekkjum og vel það. Efnafræði- Sreinimgar hafa sýnt, að í mjólk er fita, sterkja, kalk, ýmsar hormónategundir og fjörefni, mörg nytsöm sölt og sýrur og gnægð annarra efna, Svo sem kopars, zinks, fosfórs, alúminiums, joðs °S mangans. Öllum þessum efnum er þar bland- að nákvæmlega samkvæmt þörfum mannslík- amans á fyrsta vaxtarskeiði hans og að margra aliti einnig síðar. Blý finnst einnig í mjólk, °S til þess að auka mótstöðuafl barna gegn sjúkdómum hefur náttúran gætt mjólkina kunn- um og ókunnum sýklavörnum. Spendýrin fá A, B, C, D og sennilega fleiri fjörefni úr jurtafæðunni, og ef um rándýr er að ræða, þá úr holdi, blóði og beinum þeirra dýra, sem þau nærast á. Svipuðu máli gegnir um hvalina, án þess að vatnsblönduð mjólk komi úr spenum þeirra. Það er minna af vatni í hvalamjólk en kúamjólk, en þar er vatns- hundraðshlutinn um 87, ef hann er ekki auk- inn af ásettu ráði. Svo nákvæmlega hefur hin æðsta efnafræði- stofnun veraldarinnar, náttúran sjálf, vandað til blöndunar þeirra mörgu efna, er finnast í mjólkinni, að við getum neytt hennar, án þess að eftir verði úrgangsefni. Mjólkurbúin ger- nýta hana, og í líkama okkar meltist hún og nytjast að kalla má til hlítar. En mjólk er ekki einungis næring. Úr eggja- hvítuefni hennar (k a s e i n i n u) hefur frá því fyrir síðustu aldamót verið unninn „mjólk- ursteinn" (galalith), sem er tæknilegt að- alefni í ýms áhöld. Jafnvel á okkar miklu plast-öld eru margar greiður og tölur gerðar úr mjólk, án þess að unnt sé að leysa þær upp og nærast síðan á mjólkinni í þeim! Marg- ar tækifærisgjafir, svo sem öskubakkar og bréfa- pressur, eru einnig búnar til úr mjólk. Pappír er gljáður með mjólkurefnum. Lim er búið til úr eggjahvítuefni mjólkurinnar, sem einnig er notað í liti og við leðuriðnað. Efnið í fötum okkar getur átt uppruna sinn í júgri kýrinnar, enda þótt hin mörgu.nýju piast- efni séu óðum að útrýma eggjahvítuefni mjólk-

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.