Samtíðin - 01.06.1964, Blaðsíða 10
6
SAMTÍÐIN
* Ji-eifju
KVEIIIIAÞÆITII
+ Tízkan í sumar
AÐALEINKENNI sumartízkunnar er
vídd í bakið, bæði á dragtarjökkum og
léttum sumarkjólum. Dragtarjakkar eru
oftast alveg lausir og án Imeppingar með
útáliggjandi hornum, en innan undir er
þá blússa eða peysa með rúllukraga. Oft-
ast eru þessar blússur ermalausar og
mjög klæðilegar. Lengd jakkanna er ekki
háð neinum reglum. Þeir eru ýmist
stuttir eða siðir og ná þá niður á mjaðm-
ir. Eru þeir með hnýttu belti. Pilsin eru
oftast með alls konar fellingum. Sýnast
konur miklu unglegri í þeím. Atbygli-
vert er, að pils, sem eru slétt að fram-
an, en felld að aftan, eru mjög klæðileg,
enda meistaralega sniðin.
Kjólarnir í sumar eru oft stórrósóttir
i fögrum og fingerðum litum, en ekki
æpandi. Doppótt mynztur sjást einnig
oft.
Sokkar eiga að vera með saum, og
grennir það fótlegginn óneitanlega.
Við birtum hér mynd af drögtum frá
P. Cardin í París. Sýna þær í aðalatrið-
um sumartízkuna, liin breiðu og siðu
liorn og víddina í bakið.
Nokkur hollráð
1. Láttu alltaf glasið með naglalakk-
inu standa „á höfði“, svo að ekki komi
loft í það. Þá þykknar lakkið miklu síð-
ur.
2. Gættu þess að hrista ekki glasið nieð
naglalakkinu, er þú blandar það. Þa
geta myndazt loftbólur i því. Hafðu
beldur nokkrum sinnum endaskipti á
glasinu, áður en þú lakkar neglurnar.
Framleiðum kápur og dragtir úr tízkuefnum eftir sniðum frá
þekktustu tízkuhúsum heims. — Sendum gegn póstkröfu.
Kápail h.f. Laugavegi 35 — Sími 14278.